Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 16
Gamla staðal- myndin er undir- gefna eiginkona alkó- hólistans. Bæði karlar og konur geta verið með- virk og meðvirkni þarf ekki að tengjast alkó- hólisma. Maður verður ekki allt í einu með- virkur á fertugsaldri. Maður fer ekki óvart í samband með virkum alkóhólista og verður meðvirkur vegna þess. Sólrún Freyja Sen solrunfreyja@frettabladid.is Valdimar Þór starfar sem ráðgjafi hjá félaginu Fyrsta skrefið. Eins og segir á heimasíðu þess, þá er félagið „fjölþætt ráðgjafaþjónusta fyrir einstaklinga, pör, fyrirtæki og stofnanir“ sem leggur sérstaka áherslu á valdeflingu og styrkingu einstaklinga „í gegnum faglegan og persónulegan stuðning“. Í kvöld verður haldið með- virkninámskeið þar sem er farið yfir hvernig meðvirkni tengist uppvextinum og með hvaða hætti hún hefur áhrif á fullorðinsárum. Meðvirkni þarf ekki að tengjast alkóhólisma Flestir geta tengt við fyrirbærið með- virkni, orð sem er oft notað og jafn- vel misnotað. Það mætti segja að allir séu meðvirkir upp að einhverju marki en spurningin er hvort meðvirknin er farin að hafa neikvæð áhrif á líf okkar, segir Valdimar Þór Svavarsson. Valdimar Þór Svavarsson segir að allir séu meðvirkir upp að einhverju marki FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Valdimar segir að það sé nauðsyn- legt að skilja vandann ef maður ætlar að takast á við hann, þess vegna er mikilvægt að ráðast á rótina. Varnarhættir barns verða að meðvirkni á fullorðinsárum Meðvirkni er langt í frá að vera ein- falt hugtak. „Námskeiðið er fjórir tímar og mætti ekki vera mínútu styttra. Við förum yfir gríðarlega mikið efni og skoðum málið frá mörgum hliðum. Fyrst og fremst þá erum við að færa okkur frá því að tala bara um einkenni meðvirkni, sem er eitthvað sem er mikið talað um, yfir í að skoða orsökina. Þetta er langvinsælasta námskeiðið okkar og margir finna þar púslið sem þeir voru alltaf að leita að.“ En hvað er meðvirkni og hverjar eru orsakir hennar? Margir eru með ákveðna mynd í höfðinu af hvernig meðvirkni lítur út. „Gamla staðalímyndin er undirgefna eiginkona alkó- hólistans.Bæði karlar og konur geta verið meðvirk og meðvirkni þarf ekki að tengjast alkóhólisma. Maður verður ekki allt í einu með- virkur á fertugsaldri. Maður fer ekki óvart í samband með virkum alkóhólista og verður meðvirkur vegna þess,“ segir Valdimar. „Meðvirkni þróast snemma í lífinu og veldur því að við lendum í erfiðleikum með sambönd og samskipti þegar við erum orðin fullorðin. Það er algeng ástæða fyrir því að við förum í slæm sam- bönd og eigum erfitt með að fara úr samböndum, jafnvel þó þau séu að valda okkur vanlíðan.“ Valdimar segir að rekja megi rætur meðvirkninnar til ákveð- inna skekkja eða áfalla í sam- skiptum á uppvaxtarárum. „Áföll í uppvexti eru oftast eitthvað sem við verðum fyrir í samskiptum. Ef þú sem barn ólst upp við skammir og öskur, of beldi eða vanrækslu, þá þróar þú með þér ákveðna varn- arhætti til að komast af í erfiðum aðstæðum. Það er eðlilegt að við sem börn förum að verjast sársauka, en þessir varnarhættir fylgja okkur inn í fullorðinsárin. Þegar við erum orðin fullorðin þá hætta þessi viðbrögð að vera heilbrigð. Þau byrjuðu sem eðlileg við- brögð í erfiðum eða óeðlilegum aðstæðum, og verða seinna meir óeðlileg viðbrögð í eðlilegum aðstæðum. Það er meðvirkni.“ Það er munur á góðsemi og meðvirkni Samkvæmt Valdimar getur margt orðið til þess að meðvirkni þróast hjá okkur í uppvextinum. Algengt er að fólk sem er að vinna með meðvirkni hafi upplifað að uppalendur hafi verið andlega eða líkamlega fjarverandi eða jafnvel beitt of beldi. Ástæðurnar geta verið fullkomlega eðlilegar og mikilvægt að hafa í huga að ekki er verið að leita að sökudólgum, eingöngu að skoða hvað gæti hafa haft áhrif á okkar upplifun af okkur sjálfum. Í sumum tilvikum eru ástæðurnar mjög neikvæðar þar sem vanræksla og of beldi af einhverju tagi hefur haft áhrif. Sem dæmi um áhrifavalda eru skiln- aðir, andlát, meðvirkni foreldra, alkóhólismi og ýmis önnur andleg veikindi. Við gætum verið að alast upp við vanrækslu og upplifum að við skiptum ekki máli og allar aðrar tegundir af of beldi hafa veruleg áhrif á sjálfsmyndina. „Alls konar aðstæður geta mótað okkur og leitt til þess að við sem börn þróum aðferðir til að verjast sársauka sem við höldum síðan áfram að nota í framtíðinni.“ Valdimar segist upplifa að margir eigi erfitt með að skilja þetta og það sé flókin sál- fræði þarna á bak við. Sumum finnst erfitt að gera ekki greinarmun á góðsemi og með- virkni. „Einfalda svarið við því er að góðsemi gefur þér orku en meðvirkni tekur hana. Það að segja já þegar maður vill segja nei, getur verið vísbending um meðvirkni. Þetta og margt f leira skoðum við og ræðum á námskeiðinu“. “Doktor.is er ætlað að auðvelda aðgengi almennings að upplýsingum og ráðgjöf um heilsu, lífsstíl og forvarnir.,, Teitur Guðmundsson, læknir og ritstjóri doktor.is Ráðgjöf Fræðsla Forvarnir HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? Frettabladid.is færir þér nýjustu fréttir dagsins og ítarlega umöllun um málefni líðandi stundar. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R 0 4 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 2 7 -E D E C 2 3 2 7 -E C B 0 2 3 2 7 -E B 7 4 2 3 2 7 -E A 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 3 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.