Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 25
Þar sem 600-700.000 tunnur af olíu eru sendar frá Mexíkó til Bandaríkjanna á hverjum
degi er hætt við því að elds-
neytisverð í Bandaríkjunum muni
hækka um það sem tollunum
nemur. Þessi olía er óunnin en
bandarískar olíuhreinsunar-
stöðvar hreinsa þessa olíu og
selja hana þar. Mexíkó kaupir
reyndar meira af unninni olíu af
Bandaríkjunum heldur en magn
olíunnar sem f lutt er frá Mexíkó
yfir landamærin mælist. Þessi
viðskipti hafa staðið lengi og ríkt
mikil sátt og tollaleysi. Því gæfu-
ástandi verður líklega raskað með
nýjum tollum Trumps á Mexíkó.
Trump hyggst í fyrstu leggja
á 5% tolla á allan varning frá
Mexíkó sem fara svo síhækk-
andi ef Mexíkó gerir ekkert í því
að stöðva ólöglegan innf lutning
fólks yfir landamærin til Banda-
ríkjanna. Þessir fyrirhuguðu
tollar mundu kosta kaupendur
þessarar hráolíu frá Mexíkó um
250 milljónir króna á dag, miðað
við 5% toll og fara svo enn hækk-
andi. Mexíkó seldi Bandaríkj-
unum 9% af allri þeirri olíu sem til
Bandaríkjanna var f lutt í fyrra.
Tollar Trumps á Mexíkó hækka
bensínverð í Bandaríkjunum
Tollar á varning frá Mexíkó byrja í 5% en fara svo hækkandi.
Ford sýndi fyrir skömmu fyrstu myndirnar af nýjum Focus ST langbak en bíllinn sá fer á
markað seinna í sumar. Hann mun
fást bæði með dísil- og bensínvél
eins og Hatchback útfærsla hans.
Dísilvélin er 2,0 lítra EcoBlue vél
skráð fyrir 187 hestöflum og bens-
ínvélin 2,3 lítra forþjöppudrifin
vél, 276 hestafla. Hægt verður að
velja á milli 6 gíra beinskiptingar
og 7 gíra sjálfskiptingar í bílinn.
Ford Focus ST er undir 6 sek-
úndum í hundraðið og búast má
við því að 30 kg þyngri langbaks-
útfærsla hans sé örlítið seinni, lík-
lega nálægt sléttum 6 sekúndum.
Aðalkosturinn við langbaksút-
færsluna er líklega yfrið skott-
rýmið sem mælist hvorki meira né
minna en 608 lítrar og því bíllinn
hæfur til lengri og náttúrulega
mjög skemmtilegra ferðalaga.
Verðið á dísilútgáfunni er 30.595
pund í Bretlandi, eða 4,8 milljónir
og bensínútgáfan 33.095 pund, eða
5,2 milljónir króna.
Ford Focus ST langbakur
með 276 hestafla ruddaafl
Ford Focus ST er innan við 6 sekúndur í hundraðið en búast má við því að langbaksútfærsla hans sé örlítið seinni.
BÍLAR
B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9Þ R I Ð J U D A G U R 4 . J Ú N Í 2 0 1 9
0
4
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
7
-D
5
3
C
2
3
2
7
-D
4
0
0
2
3
2
7
-D
2
C
4
2
3
2
7
-D
1
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K