Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.06.2019, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 04.06.2019, Qupperneq 18
Ný kynslóð stærsta fólksbíls Skoda, það er Superb mun fást af nýrri háfættri gerð sem ber nafnið Scout í endann, líkt og minni bróðirinn Octavia gerir af sömu gerð. Í þessu formi hefur Superb ekki fengist áður, en þessi bíll er hæfari til átaka í erfiðari færð en hefðbundin gerð Superb og stendur 15 mm hærra á vegi. Bíllinn fær stærri hjólskálar, varnarplötur að neðan og framan og aftan á bílinn, sem og breytta innréttingu. Skoda Superb Scout mun fást með 188 hestafla og for- þjöppudrifna 268 hestafla bensín- vélar, en báðar eru þær tengdar við DSG-sjálfskiptingu með 7 gíra. Fá má Superb Scout líka með 2,0 lítra og 190 hestafla dísilvél. Bílarnir er að sjálfsögðu fjórhjóladrifnir og geta togað aftanívagn allt að 2.200 kílóum. Í akstursstillingum bílsins hefur verið bætt við Off-Road stillingu. Í innréttingu bílsins eru viðarinn- leggingar og áklæði í sætum sem ekki finnst í öðrum gerðum Superb. Velja má líka um slitsterkt Alcantara áklæði í sætum. Skoda Superb Scout fer í sölu seinna á þessu ári samhliða hefðbundinni gerð bílsins, en von er á tengil- tvinnútfærslu bílsins snemma á næsta ári. manna alþjóðasamtaka á borð við Rauða krossinn, starfsmenn þjóð- garða og verndarsvæða fyrir villt dýr og fleiri innlendar og erlendar stofnanir og samtök. Þá eru afnot Tusk Trust af frumgerð Defender ekki síður tilefni til að fagna fimmtán ára farsælu samstarfi samtakanna og Land Rover að nátt- úruvernd í Afríku. Bíllinn verður einkum notaður á hinu víðfeðma verndarsvæði í Borana sem er um 14 þúsund hektarar, meðal annars til flutninga á aðföngum, þar sem sums staðar þarf að fara um erfiða vegi og vegleysur og þvera djúpar og straumharðar ár. 1,2 milljónir km að baki Til að reyna sem mest á flesta þætti hönnunar Defender hefur bílnum ásamt öðrum frumgerðum Defender þegar verið ekið meira en 1,2 milljónir kílómetra á undan- förnum mánuðum. Aksturinn fór fram við ólíkar aðstæður víða um heim, þar á meðal í meira en 50°C hita í eyðimörkum Dubai, í -40°C við norðurheimskautsbaug og í yfir þrjú þúsund metra hæð í fjallabelt- um Rocky Mountains svo fátt eitt sé nefnt. Nick Rogers, yfirmaður tækniteymisins hjá Land Rover, segir að verkefnin fram undan í Kenía séu kærkomið tækifæri til að vígja nýjan Defender með eld- skírn við raunverulegar aðstæður í daglegum störfum þjóðgarðs- varða á verndarsvæðinu í Borana. Hann segir að reynsla starfsmanna verndarsvæðisins af notkun bílsins verði nýtt til að fínpússa ýmis smáatriði fyrir opinbera frum- sýningu bílsins. Land Rover Defender er goðsagnar- kenndur bíll sem gengur nú í endurnýjun lífdaga. Hefur bílnum ásamt öðrum frumgerðum Defender þegar verið ekið meira en 1,2 millj- ónir kílómetra á undan- förnum mánuðum. Bíllinn er að sjálf- sögðu fjórhjóla- drifinn og getur togað aftanívagn allt að 2.200 kílóum. Nýjustu upplýsingar um bíl-þjófnaði í Bretlandi benda til aukinna þjófnaða og í f lestum tilvikum er bílunum ekki stolið með lyklum þeirra heldur komast þjófarnir inn í bílana og geta ræst þá með stolnum hugbún- aði. Á undanförnum mánuðum hefur reyndar 88% þeirra verið stolið án lykla. En hvaða bílgerðir freista þessara bílþjófa mest. Á toppnum trónir BMW X5 jeppinn og á hann þá vafasömu sögu að vera mest stolni bíll Bretlands árin 2009 til 2014, 2016 og 2018 og var í öðru sæti árin 2015 og 2017. Í öðru sæti í fyrra var Mercedes Benz C-Class en hann var sá mest stolni árið á undan. Í þriðja sætinu er BMW 3-línan, Mercedes Benz E-Class í fjórða, BMW 5-línan í fimmta, Range Rover Vogue í sjötta, Land Rover Discovery í sjöunda, Range Rover Sport í áttunda, Mercedes Benz S-Class í níunda og Mercedes Benz GLE jeppinn í því tíunda. Það má því segja að bílþjófarnir í Bretlandi hafi góðan smekk þar sem allar 10 mest stolnu bílgerðir í landinu flokkast sem dýrir lúxusbílar. Aðeins þrjú bílamerki koma þar við sögu, Mercedes Benz, BMW og Jaguar Land Rover. Líklega ekki mjög eftirsóknarverð staðreynd fyrir þessa bílaframleiðendur, en þeir geta þó huggað sig við það að bílar þeirra eru eftirsóknarverðir, en því miður líka á meðal bílþjófa. Tíu mest stolnu bílar Bretlands BMW X5 er sá bíll sem mest er stolið af í Bretlandi. Hver væri ekki til í það að þurfa ekki að ýta á takk-ann við gönguljós þegar til stendur að komast yfir á gang- braut? Þessi takki gæti reyndar brátt heyrt sögunni til því austur- rískir uppfinningamenn hafa smíðað búnað með myndavélum sem greina hvort gangandi fólk vill komast yfir gangbraut, stöðvar akandi umferð og gefur þeim gangandi „græna kallinn“. Mynda- vélin skannar svæði við ljósin sem er 5x9 metrar að stærð og sendir upplýsingar í ljósabúnaðinn ef hún greinir fólk sem greinilega hefur hug á að komast gangandi yfir. Styttir biðtímann Tíminn sem líður frá því að myndavélin greinir gangandi vegfar- endur og þar til þeir geta gengið yfir er mun styttri en almennt gerist þar sem fólk þarf að styðja á viðeigandi takka til að stöðva akandi umferð. Að sögn Gönguljósatakkinn gerður óþarfur Jaguar Land Rover tilkynnti þann 30. apríl að ný og endurhönnuð gerð Land Rover Defender komi á markað í byrjun árs 2020. Þangað til verður ein af frumgerðum bílsins notuð af alþjóðlegum náttúruverndar- samtökum í Kenía þar sem hann verður notaður í akstri um mjög erfiðar og fjölbreyttar aðstæður. Nýr Defender verður framleiddur í nýrri verksmiðju Jaguar Land Rover í Nitra í Slóvakíu og víst má telja að margir bíði spenntir eftir endur- komu þessa goðsagnarkennda jeppa sem ennþá má svo víða sjá á íslenskum vegum. Leggja lokahönd á endanlega hönnun Tilkynning fyrirtækisins 30. apríl var „afmælisdagur“ Defender sem kom fyrst fyrir almenningssjónir á bílasýningunni í Amsterdam þann 30. apríl árið 1948. Næstu mánuði hyggjast tæknisérfræðingar fyrir- tækisins, sem endurhönnuðu og þróuðu hinn nýja Defender í Bret- landi, nýta til að leggja lokahönd á vélbúnað, áreiðanleika og getu frumgerðar bílsins í umfangsmikl- um prófunum við margvíslegar og krefjandi aðstæður í Kenía þar sem starfsmenn alþjóðlegu náttúru- og mannúðarsamtakanna Tusk Trust munu hafa eina af frumgerðum bílsins til afnota á verndarsvæðinu í Borana. Samofin tengsl Land Rover við Afríku Það er vel við hæfi að lokaprófan- irnar fari fram í Afríku þar sem Land Rover hefur verið áratugum saman helsti vinnuþjarkur starfs- Náttúrverndarsamtök fá nýjan LR Defender Næstu mánuði hyggjast tæknisérfræðingar fyrirtækisins, sem endurhönn- uðu og þróuðu nýjan Defender í Bretlandi, nýta til að leggja lokahönd á vél- búnað, áreiðanleika og getu frumgerðar bílsins í umfangsmiklum prófunum.  Skoda Superb Scout háfeti Skoda Superb Scout þeirra sem hönnuðu búnaðinn styttist þessi tími um 3-4 sek- úndur. Búnaður þessi er reyndar svo snjall að ef hann greinir að stór hópur fólks vill komast yfir þá lengir hann tímann þar sem akandi umferðin er stöðvuð. Fyrstu ljósin með þessum búnaði eru nú að komast í gagnið í höfuð- borginni Vín og til stendur að setja upp nokkur slík fyrir enda árs 2020. Vonandi reynist þessi búnaður vel og verður kominn á sem flest gönguljós í fyrirsjáan- legri framtíð. www.frettabladid.is Auglýsingar: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Sími 550 5657 Útgáfufélag: Torg ehf. Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@frettabladid.is 4 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR 0 4 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 2 8 -0 1 A C 2 3 2 8 -0 0 7 0 2 3 2 7 -F F 3 4 2 3 2 7 -F D F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 3 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.