Fréttablaðið - 12.06.2019, Page 2

Fréttablaðið - 12.06.2019, Page 2
Ég ætla ekki að biðja neinn að leggja í einhverja harðsvír- aða náunga sem virða fólk kannski ekki mikils. Ólafur E. Jóhannsson, formaður Elliðaárnefndar Stangaveiðifélags Reykjavíkur Veður Norðvestan 3-10 m/s. Þokubakkar við vesturströndina, annars bjart veður. Hiti víða 13 til 23 stig, hlýjast á S-landi. Þykknar upp á NA-verðu landinu síðdegis, dálítil rigning þar í kvöld. SJÁ SÍÐU 14 Kátir krakkar plokka á Kópavogstúni Þriðji plokkdagur Vinnuskóla Kópavogs var í gær. Auk 450 starfsmanna Vinnuskólans, bæjarstjórans og fulltrúa Landverndar mætti fjöldi grunn- skólakrakka. Nemendur og starfsmenn eru hvattir til að sneiða hjá einnota plasti og skólinn stuðlar að vistvænum innkaupum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Fólkið sem lést í f lugslysinu við Múlakot að kvöldi hvítasunnu- dags voru hjónin Ellen Dahl Wessman og Ægir Ib Wessman og sonur þeirra Jón Emil Wess man. Ellen var fædd árið 1964, Ægir Ib árið 1963 og Jón Emil var fæddur árið 1998. Líðan þeirra tveggja sem kom- ust lífs af er f lugvélin hrapaði skammt frá brautarenda er enn sögð vera stöðug. Þau liggja mikið slösuð á sjúkrahúsi í Reykjavík. Er þar um að ræða 24 ára gamlan son Ellenar og Ægis og 19 ára unnustu Jóns Emils. Tildrög slyssins er nú til rann- sóknar hjá lögreglunni á Suður- landi og rannsóknarnefnd sam- gönguslysa. Þau létust við Múlakot Ellen Dahl Wessman, Jón Emil Wessman og Ægir Ib Wessman. LÖGREGLUMÁL „Þetta er venju fremur mikið núna,“ segir Ólafur E. Jóhannsson, formaður Elliðaár- nefndar Stangaveiðifélags Reykja- víkur, um öldu veiðiþjófnaðar í ánum. Stangaveiðifélagsmenn hafa und- anfarna daga ráðið ráðum sínum vegna þessarar veiðiþjófnaðar- bylgju í Elliðaánum og í hádeginu í gær var ákveðið að herða eftirlit. „Það felst í því að eftirlitsferðum með ánum verður fjölgað og lög- regla kölluð til þegar upp kemst um ólöglegt athæfi. Þá verða öll veiði- brot – hverju nafni sem þau nefnast – kærð til lögreglu,“ segir í tilkynn- ingu sem Ólafur sendi frá sér. Á síðustu dögum hefur meðal annars sést til veiðiþjófa í Höfuð- hyl, efsta veiðistað Elliðaáa, og í Sjávarfossi, einum neðsta og lang- gjöfulasta veiðistað árinnar. Í gær voru menn síðan við veiðar neðan árinnar sjálfrar; á göngubrúnni yst á Geirsnefi. „Það er bannað að veiða lax í sjó og það er einfaldlega brot á lands- lögum,“ undirstrikar Ólafur. Að sögn Ólafs reyna veiðiþjóf- arnir helst fyrir sér þar sem vegur liggur nálægt ánum. „Þá stökkva menn út og gera einhvern usla og geta verið fljótir að forða sér,“ segir hann. Veiðiþjófarnir noti iðulega tól sem eru ekki leyfð við veiðar í Ell- iðaánum. „Menn eru ekki að fylgja veiðireglum. Við höfum verið að taka stóra spúna og alls konar dót þegar verið er að hreinsa árnar.“ Í Facebook-hópi um Elliðaárnar hafa sumir stungið upp á því að þeir sem verða varir við veiðiþjófa fram- kvæmi borgaralega handtöku og hirði veiðistangir þjófanna og jafn- vel brjóti þær. Aðspurður kveðst Allt eftirlit hert vegna veiðiþjófa við Elliðaár Mikill veiðiþjófnaður í Elliðaánum varð til þess að eftirlit með ánum er hert og boðað að hvert slíkt tilvik verði kært til lögreglu. Formaður árnefndar mælir ekki með að almenningur reyni að handsama veiðiþjófa á eigin spýtur. Spígsporað með veiðistöng á brúnni við Geirsnef. MYND/ÓLAFUR JÓHANNSSON Ólafur ekki mæla með slíku. „Ég ætla ekki að biðja neinn að leggja í einhverja harðsvíraða náunga sem virða fólk kannski ekki mikils,“ segir hann. Verði mann varir við eitthvað misjafnt séu þeir beðnir að hafa samband við veiðiverði. Ólafur segir að nú verði eftirlits- ferðum með ánum fjölgað. Megi eiga von á þeim á hvaða tíma sem er. „Aukin harka felst í því að nú verður hvert veiðibrot sem upp kemst kært til lögreglunnar,“ segir hann. Stangaveiðifélagið muni taka málið upp við lögregluna. „Það verður óskað eftir því að lögreglan sinni þessum útköllum hraðar og betur en gert hefur verið. Við ætlum að kæra hvert einstakt tilvik til lögreglunnar.“ gar@frettabladid.is SAMFÉLAG Alls heimsóttu 26 þús- und manns Fjölskyldu- og hús- dýragarðinn í maí. Aðeins hafa einu sinni f leiri sótt garðinn í maímánuði, en það var sama ár og garðurinn var opnaður, árið 1990. Til samanburðar má þess geta að í maí í fyrra voru gestir aðeins 13 þús- und og var það versti maímánuður garðsins frá upphafi. „Maí var annar aðsóknarmesti maímánuðurinn frá upphafi og júní fer mjög vel af stað,“ segir Logi Sigurfinnsson, forstöðumaður Fjöl- skyldu- og húsdýragarðsins. Hann segir að hann búist fastlega við því, ef veður verður áfram gott, að aðsóknin haldist góð. – la Metaðsókn í Húsdýragarðinn 1 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 2 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 3 2 -C 9 B C 2 3 3 2 -C 8 8 0 2 3 3 2 -C 7 4 4 2 3 3 2 -C 6 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.