Fréttablaðið - 12.06.2019, Blaðsíða 22
Allar okkar kerfis-
einingar eru í
stöðugri þróun og við
hlustum mikið á ábend-
ingar og þarfir við-
skiptavina okkar.
Ég get viðurkennt að ég grét af gleði og létti þegar ég fékk póstinn um að hafa náð lög-
gildingarprófinu. Það var mikið
spennufall eftir að hafa beðið
í rúma tvo mánuði eftir niður-
stöðunni,“ segir Hörður, löggiltur
endurskoðandi hjá Icelandair.
Hann er einn tíu nýlega útskrif-
aðra löggiltra endurskoðenda.
„Námið er strembið í heild
sinni en allra erfiðasti hjallinn er
Grét af létti
Eftir sextán tíma strangt löggildingar-
próf útskrifaðist Hörður Freyr Val-
björnsson sem löggiltur endurskoð-
andi í fyrstu atrennu.
䈀欀栀愀氀搀猀︀樀渀甀猀琀愀
刀준吀吀匀䬀䤀䰀
Bryndís Björk Karlsdóttir • Ármúla 29.2.hæð,
sími 562 7777 og rettskil@simnet.is
Þar sem um 100% skýjalausn er að ræða virkar Regla óháð stýrikerfum og virkar jafn
vel á PC og Apple tölvum. Það eina
sem þarf að gera til að komast í
gögnin er að fara inn á regla.is og
byrja að vinna. Viðskiptavinir
Reglu eru því alltaf með nýjustu
útgáfuna af kerfinu og þurfa
ekki að hafa áhyggjur af dýrum
uppfærslum á komandi árum.
Reksturinn verður hagkvæmari,
einfaldari og öruggari með heildar
viðskiptakerfi frá Reglu þar sem
allar kerfiseiningar tala saman.
Hvert er markmið Reglu?
„Markmið félagsins hefur frá
upphafi verið að minnka vinnuna
við bókhaldið með aukinni sjálf-
virkni og nútímalegum vinnu-
brögðum. Sem dæmi má nefna að
hægt er að tengja bókhaldskerfi
Reglu við bankann þannig að allar
færslur lesast inn sjálfkrafa. Regla
lærir síðan á færslurnar og gerir
bókunartillögur á rétta bókhalds-
lykla. Einnig er hægt að tengja
rafræn eða skönnuð fylgiskjöl
við færslur eða tímabil með inn-
byggðu skönnunarforriti og appi
fyrir Android síma,“ segir Darri
Örn Hilmarsson, sölu- og mark-
aðsstjóri Reglu.
Hvaðan kemur Regla?
„Öll kerfin okkar eru þróuð
og smíðuð af okkur og eru því
íslensk hönnun. Kerfið er smíðað
fyrir íslenskan markað jafnt sem
erlendan og er fáanlegt á mörgum
tungumálum. Það eru margir
sérfræðingar sem hafa komið
að þessari uppbyggingu en við
hlustum einnig mikið á þarfir
okkar viðskiptavina. Við segjum
stundum, bæði í gríni og alvöru, að
þeir séu bestu kerfisfræðingarnir.
Að þróa nýja kynslóð bókhalds-
kerfis hefur verið spennandi
vegferð undanfarin 11 ár en í dag
starfa 12 starfsmenn við þróun,
þar af átta við forritun auk tveggja
við sölu og þjónustu.“
Hvað er það nýjasta hjá ykkur?
„Til að byrja með vorum við
bara með þrjár kerfiseiningar;
fjárhagsbókhald, sölukerfi og
verkbókhald. Með tímanum
hafa bæst við fleiri kerfi á borð
við launakerfi á mörgum tungu-
málum, vefþjónustu við önnur
kerfi og afgreiðslukerfi eða „kassa-
kerfi“ eins og þau eru oft kölluð.
Nýjasta varan okkar er hins vegar
netverslunartenging við Shopify
og Woocommerce heimasíður.
Með þessari tengingu bókast öll
sala í rauntíma og birgðir haldast
réttar, sama hvort salan á sér stað í
verslun eða á netinu.“
Krefst rekstur Reglu mikillar
vöruþróunar?
„Allar okkar kerfiseiningar eru
í stöðugri þróun og við hlustum
mikið á ábendingar og þarfir við-
skiptavina okkar. Þessa dagana
erum við til dæmis að þróa kassa-
kerfið okkar enn frekar með
nýjum veitingastað og munum
á næstu dögum setja upp okkar
fyrsta eldhússkjákerfi (e. kitchen
display system). Hingað til hafa
pantanir hrannast upp á miðum
inni í eldhúsi og ef einn miðinn
dettur þá er sú pöntun bara týnd.
Með nýja kerfinu okkar munu
allar pantanir skila sér á mis-
munandi snertiskjái inn í eldhúsi.
Þannig fer til dæmis hamborgari á
skjáinn hjá grillinu á meðan salat
fer á annan skjá hjá grænmetinu.
Kokkarnir geta síðan merkt við
þegar hver réttur fer í gang eða er
tilbúinn fyrir þjóninn.“
Hvað er fram undan?
„Eins og ég segi þá er stöðug
vöruþróun í gangi og margt spenn-
andi fram undan. Við erum til
dæmis að vinna í tímaskráningar-
kerfi sem mun tengjast beint við
launakerfið. Við sjáum líka að þró-
unin er í þá átt að fólk vill gera sem
mest úr símanum sínum en það
er stór partur af því verkefni sem
við erum að vinna í undir vinnu-
heitinu „Skrifstofan í símann“.“
Regla, bókhalds- og viðskiptakerfi
Regla ehf. hefur þróað nýja kynslóð bókhaldskerfis. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
löggildingarpróf atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins og
tilhugsunin um sextán klukku-
stunda próf þar sem sögulega hefur
verið í kringum 70 prósent fall. Það
er almenn hræðsla við þetta próf
sem má líkja við herbúðir. Í því er
enginn matartími né pásur og í
prófinu er ekkert gefins. Það tekur
því á andlega að fara inn í skóla-
stofu til að reikna og skrifa í átta
tíma, tvo daga í röð,“ segir Hörður
sem er ekki sannfærður um að
prófið þurfi að vera svo strangt.
„Það eru miklar umræður um að
breyta próffyrirkomulaginu. Áður
voru þetta þrjú próf og hægt að
fara í eitt próf á ári en eftir að þau
voru sett saman í eitt próf hefur
reynst erfiðara að ná því og margir
fara tvisvar, þrisvar og jafnvel
fjórum sinnum áður en þeir ná
því,“ upplýsir Hörður.
Stimpill sem endist út lífið
Hörður tók BS-próf í viðskipta-
fræði frá Háskóla Íslands og fór
þaðan í meistaranám í endur-
skoðun og reikningsskilum við HÍ.
„Meistaranámið þykir mjög
strembið en það hjálpaði mér að
vinna á endurskoðendastofunni
KPMG samhliða náminu. Ég fékk
smjörþefinn af endurskoðun
í menntaskóla og fannst hún
heillandi. Eftir að hafa unnið
í Arion banka um tíma var ég
ráðinn til KPMG og eftir fyrsta
árið fann ég hversu umfangsmikið
starfið er og að ég hafði einlægan
áhuga á því,“ segir Hörður sem fór
í þriggja ára starfsnám undir leið-
sögn endurskoðanda hjá KPMG.
„KPMG reyndist mér afar vel og
gaf mér tvo mánuði í upplestrarfrí
fyrir löggildingarprófið. Prófið
samanstendur af þremur megin-
stoðum; reikningsskilum, endur-
skoðun og sköttum, og maður
þarf að átta sig á í hverju maður er
bestur og herða sig í því sem maður
er veikari í,“ segir Hörður.
„Það er til mikils að vinna að
ljúka náminu því maður upp-
sker gott og vel launað starf. Ég
horfði til þess að löggildingin væri
stimpill sem ég byggi að út lífið.“
Fleiri látast en bætast við
Hörður er 29 ára og var sá yngsti
sem tók löggildingarprófið nú.
„Ég er ungur í þessum geira og
eins og er látast f leiri endurskoð-
endur á ári en bætast við í stéttina.
Við erum að verða sjaldgæfari og
sjaldgæfari og því vantar fleiri
endurskoðendur til að anna
störfunum,“ segir Hörður og mælir
hiklaust með náminu.
„En til að ljúka náminu þarf
bæði áhuga og vilja,“ segir Hörður
sem hafði strax gaman af stærð-
fræði á barnsaldri.
„Það lá alltaf fyrir að ég legði
fyrir mig eitthvað þessu tengt.
Góður endurskoðandi þarf að vera
talnaglöggur og nákvæmur og
eins er gott siðferði og rökhugsun
mikilvæg.“
Eftir fimm ára starf hjá KPMG
starfar Hörður nú sem löggiltur
endurskoðandi hjá Icelandair.
„Ég breytti um starf til að geta
sinnt fjölskyldunni betur. Á
endurskoðendastofum er mikil
tarnavinna og þegar mest var
vann ég 100 til 130 yfirvinnutíma
á mánuði. Það hefur sína kosti og
galla, en ég var tilbúinn í það. Ég
hafði áður unnið á frystitogara og
kynnst þar enn meiri tarnavinnu
en ég held að endurskoðendastofur
séu stærstu kaupendur Nocco-
orkudrykkja af íslenskum vinnu-
stöðum,“ segir Hörður og hlær.
„Það er sagt að starf endurskoð-
enda sé það leiðinlegasta í heimi og
meira fjör sé að fara á skemmtun á
elliheimili en á skemmtun endur-
skoðenda. Erkitýpan er talna-
glöggur einfari sem lítur ekki upp
frá skrif borðinu en auðvitað er öll
f lóra fólks í starfinu og ekki alveg
satt að stéttina skipi aðeins graut-
leiðinlegt fólk,“ segir Hörður, sæll
með sitt hlutskipti.
„Ég var smeykur þegar ég
skráði mig í prófið en er stoltur og
ánægður að hafa náð prófinu við
fyrstu tilraun og það var óvenju-
legt og gleðiefni hversu margir
náðu síðasta prófi miðað við fyrri
ár. Vonandi dregur það úr hræðslu
þeirra sem hafa áhuga og sýnir að
þetta er gerlegt.“
Regla býður
bókhalds- og
viðskiptakerfi í
áskrift á netinu
eða „í skýinu“ og
því er engin þörf
á hýsingu eða
rekstri á eigin
tölvuþjónum.
Hörður Freyr er löggiltur endurskoðandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
4 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RBÓKHALD, REKSTUR OG RÁÐGJÖF
1
2
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
2
-E
7
5
C
2
3
3
2
-E
6
2
0
2
3
3
2
-E
4
E
4
2
3
3
2
-E
3
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K