Fréttablaðið - 12.06.2019, Blaðsíða 9
Samþykkt bæjarstjórnar er
einkar ánægjuleg en e.t.v.
lítið skref í stóra samheng-
inu um umhverfisvernd
en lýsir vilja bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar í umhverfis-
málum.
Ég hef farið ferða minna hjólandi í mörg ár, nota oft strætó og átti bíl í eitt og hálft ár fyrir nær 15
árum. Hins vegar skil ég vel að slíkt
henti sumum illa og öðrum bara
alls ekki. Og þótt brýnt sé að gera
fólki kleift að velja almenningssam-
göngur, hjólreiðar og annað slíkt til
að komast á milli staða, verða bílar
áfram til samhliða þessu. Hvað er
þá til ráða þegar losun gróðurhúsa-
lofttegunda frá vegasamgöngum er
afar mikil – raunar þriðjungur allrar
þeirrar losunar sem við þurfum að
standa skil á gagnvart Parísarsam-
komulaginu?
Svarið er að við verðum að hætta
að brenna jarðefnaeldsneyti til að
knýja bílaflotann okkar áfram. Þess
í stað þurfum við að nota endur-
nýjanlega orku. Annað er ósjálf-
bært. Við þurfum að ná orkuskipt-
um í vegasamgöngum. Við eigum
þegar að baki álíka byltingu þegar
við hættum að brenna kolum til að
kynda upp húsin okkar og komum
þess í stað upp hitaveitu. Bann við
nýskráningum bensín- og dísilbíla
árið 2030 er hluti af aðgerðaáætlun
stjórnvalda í loftslagsmálum og bíla-
orkuskiptin ganga raunar vel. Ísland
er nú í öðru sæti í heiminum á eftir
Noregi hvað varðar nýskráningar
raf bíla, auk þess sem stjórnvöld
kynntu fyrr í vikunni aðgerðir sem
skipta miklu til að tryggja að orku-
skiptin gangi hratt og örugglega fyrir
sig.
Fjárfesting upp á milljarð
Fjármagni verður veitt til uppbygg-
ingar hraðhleðslustöðva um allt
land, með áherslu á næstu kynslóð
hleðslustöðva sem bjóða upp á mun
styttri hleðslutíma en núverandi
stöðvar gera. Mikilvægt er að koma
upp þéttu neti af stöðvum til að
koma í veg fyrir sóun og offjárfest-
ingu fólks í stórum og langdrægum
rafhlöðum. Einnig verður ráðist í
sérstakt verkefni með ferðaþjón-
ustunni, enda áhrif innkaupa bíla-
leiga á samsetningu bílaflotans hér
á landi afar mikil. Tæpur helmingur
allra nýskráðra bifreiða á Íslandi
eru bílaleigubílar og lykilatriði að
ná þar fram orkuskiptum, þar sem
bílaleigubílar verða síðar að heim-
ilisbílum landsmanna þegar þeir eru
seldir á eftirmarkaði.
Fram undan er síðan að fullvinna
tillögur varðandi metan, vetni, líf-
eldsneyti, orkuskipti í almennings-
samgöngum og f leiri mikilvæga
þætti. Tilkynnt var um ráðstöfun
450 milljóna króna vegna orkuskipta
á árunum 2019-2020 en heildarfjár-
festingin eingöngu af þessari fyrstu
upphæð gæti slagað hátt í milljarð,
enda er gert ráð fyrir mótframlögum
við veitingu fjárfestingarstyrkjanna.
Við höfum allt hér á landi sem þarf
til að vera í fararbroddi í heiminum í
orkuskiptum í samgöngum.
Stórfelld uppbygging
vegna orkuskipta
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
umhverfis-
og auðlinda-
ráðherra
Minnkun á losun gróður-húsalofttegunda er mál sem ekki fyrir svo löngu
síðan komst í hámæli. Við Hafn-
firðingar höfum tekið umhverf-
ismá l in a lva rleg a m . a . með
metnaðarfullri umhverfis- og auð-
lindastefnu þar sem tekið er á f lest-
um málum er varða verndun og
betri umgengni við umhverfið auk
aðgerðaáætlunar varðandi stefnu
Hafnarfjarðar um umhverfis- og
auðlindamál.
Vistvænar framkvæmdir
í Hafnarfirði
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam-
þykkti þann 29. maí tillögur að
aðgerðum til að hvetja húsbyggj-
endur til að setja umhverf ið í
forgang í samræmi við Heims-
markmið Sameinuðu þjóðanna
um sjálf bæra þróun, auk nar
kröfur um minni losun gróður-
húsalofttegunda út í andrúms-
loftið og aukna umhverfisvitund
almennings. Tillögurnar f jalla
m.a. um að djúpgámar verði á
öllum uppbyggingarsvæðum auk
þess sem gert verði ráð fyrir þeim
við endurskoðun á skipulagsskil-
málum í eldri hverfum. Samþykkt
voru ákvæði um endurvinnslu
úrgangs á framkvæmdarstað, að
minnsta kosti 20% byggingarefna
í nýframkvæmdum skuli hafa
umhverfisvottun og að Hafnar-
fjarðarbær móti sér stefnu um
vott u n (BR EE A M , Svanu r inn
eða sambærilegt) allra nýbygg-
inga á vegum sveitarfélagsins.
Samþykkt var að innleiða hvata
til framkvæmdaraðila til þess fá
Svansvottun, BREEAM-vottun eða
sambærilegt á nýbyggingar, meðal
annars í formi afsláttar af lóða-
verði. Samþykkt var að afsláttur
af lóðarverði vegna Svansvottaðs
húss verði 20%, að byggingar með
BREEAM-einkunn „Very good“
55% fái 20% afslátt af lóðarverði og
við BREEAM-einkunn „Excellent“
70% verði afsláttur af lóðarverði
30%. Þá samþykkti bæjarstjórn
jafnframt að Hafnarfjörður gerist
aðili að Grænni byggð.
Í stóra samhenginu
Samþykkt bæjarstjórnar er einkar
ánægjuleg en e.t.v. lítið skref í
stóra samhenginu um umhverfis-
vernd en lýsir vilja bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar í umhverfismálum.
Í stóra samhenginu þar sem bygg-
ingar og byggingariðnaðurinn á
heimsvísu er talinn ábyrgur fyrir
um 25%-35% losunar gróður-
húsalofttegunda má e.t.v. segja
að samþykkt okkar í Hafnarfirði
megi sín lítils en eins og máltækið
segir „margt smátt gerir eitt stórt“,
þannig munum við ná árangri í
umhverfismálum.
Hafnarfjörður í forystu
í aukinni sjálfbærni í
skipulags- og byggingarmálum
Ólafur Ingi
Tómasson
bæjarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokksins í
Hafnarfirði
PORSCHE Cayenne S e-hybrid
Nýskr. 11/2016, ekinn 31 þús. km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur.
Verð 9.490.000 kr.
Rnr. 420113 .
LAND ROVER Discovery Sport
HSE
Nýskr. 4/2016, ekinn 30 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.490.000 kr.
Rnr. 103786 .
BMW 640 D Grand Coupe
Nýskr. 5/2014, ekinn 23 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 7.490.000 kr.
Rnr. 420044.
RANGE ROVER Velar S
Nýskr. 2/2019, ekinn 2 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 11.290.000 kr.
Rnr. 420114.
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
JAGUAR F-PACE Portfolio
Nýskr. 11/2017, ekinn 25 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 8.990.000. kr.
Rnr. 145639 .
JAGUAR XE 2.0 i4 Prestige
Nýskr. 7/2017, ekinn 23 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 4.990.000 kr.
Rnr. 420131 .
RANGE ROVER SPORT SE
Nýskr. 5/2017, ekinn 61 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 10.900.000 kr.
Rnr. 103855.
RANGE ROVER SPORT
HSE Dynamic
Nýskr. 3/2017, ekinn 30 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 13.990.000 kr.
Rnr. 420077.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
4
2
7
8
J
a
g
u
a
r
n
o
t
a
ð
ir
5
x
2
0
2
9
m
a
í
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M I Ð V I K U D A G U R 1 2 . J Ú N Í 2 0 1 9
1
2
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
2
-D
D
7
C
2
3
3
2
-D
C
4
0
2
3
3
2
-D
B
0
4
2
3
3
2
-D
9
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K