Fréttablaðið - 12.06.2019, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 12.06.2019, Blaðsíða 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Þetta fólk á ekki nein sérstaklega góð ár heldur endalausa röð af mögr- um árum. Niðurskurð- ur VG, Framsóknar og Sjálf- stæðisfólks á Alþingi á fyrirhug- uðum fjárveiting- um til að bregðast við breyttum aðstæðum í hagkerfinu er einna mestur gagnvart öryrkjum. Á föstudegi fyrir hvítasunnu birtust djúpt á fylgiskjali númer 7 ótrúlegar breytingartillögur ríkisstjórnar-innar á fjármálaáætlun sinni. 1. Fjárframlög til öryrkja næstu 5 árin eiga að lækka sam- anlagt um tæpa 8 milljarða frá því sem hafði þegar verið kynnt þegar fjármálaáætlunin var fyrst lögð fram fyrir rúmum 2 mánuðum. Niðurskurður VG, Framsóknar og Sjálfstæðisfólks á Alþingi á fyrirhuguðum fjárveitingum til að bregðast við breyttum aðstæðum í hagkerfinu er einna mestur gagnvart öryrkjum. Það er nú ansi vond pólitík. 2. Nýsköpun og rannsóknir fá tæpa 3 milljarða kr. lækkun samanlagt næstu 5 árin og umhverfismálin lækka um 1,4 milljarða kr. frá því sem hafði verið tilkynnt í fjármála- áætluninni. Framtíðin fær þarna högg. 3. Framhaldsskólar fá 1,8 milljörðum kr. lægri upphæð samanlagt næstu fimm árin miðað við framlagða fjár- málaáætlun og minnka heildarframlög til þeirra meira að segja næstu fimm árin þrátt fyrir loforð um að „styttingar- peningarnir“ ættu að haldast og allt tal um „menntasókn“. 4. Menning og æskulýðsmál fá tæplega 9% lækkun á heild- arframlögum frá 2019 til 2024. 5. Sjúkrahúsþjónusta fær um 4,7 milljarða kr. lækkun samanlagt næstu 5 árin í breytingartillögunum og heilsu- gæsla og sérfræðiþjónusta fær um 2 milljarða kr. lækkun næstu 5 árin. 6. Hjúkrunarheimilin fá 3,3% lækkun á fjárframlögum sínum næstu 5 árin þrátt fyrir aukna öldrun þjóðarinnar. 7. Samgöngumál fá 2,8 milljarða kr. lækkun samanlagt næstu fimm árin frá því sem áætlunin gerði fyrst ráð fyrir. Sé litið til heildarútgjalda til samgöngumála þá lækka þau um 17% næstu fimm árin. Þetta er allt saman gert á sama tíma og veiðileyfagjöldin eru lækkuð niður í upphæð tóbaksgjalda, lækkun banka- skatts er enn í forgangi og við höldum enn í lægsta fjár- magnstekjuskatt af öllum Norðurlöndunum. Viðbrögð formanns Öryrkjabandalagsins við breyting- artillögunum voru þessi: „Verða þetta málalokin, verða þessar vanefndir minnisvarði ríkisstjórnar Katrínar Jak- obsdóttur?“ Svört hvítasunna ÚTILJÓSADAGAR Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888 afsláttur á völdum útiljósum 50% Margt gott og viturlegt má finna í sögum Biblíunnar. Þannig er til dæmis rík ástæða til að rifja reglulega upp söguna um draum hins egypska faraós. Hann dreymdi sjö feitar kýr koma upp úr á og á eftir þeim komu sjö aðrar kýr, ljótar og horaðar, sem átu upp hinar sjö fallegu. Draumurinn var ráðinn á þann veg að eftir sjö ára góðæri kæmi sjö ára alvarleg niðursveif la. Skilaboð sögunnar eru þau að til að gera erfiðu árin ögn bærilegri eigi að sýna ráðdeild á uppgangstímum og leggja til hliðar fyrir mögru árin. Íslendingar voru undraf ljótir að jafna sig á efna- hagshruni og hafa undanfarin ár búið við mikið góðæri. Í óhóf legri bjartsýni hafa einhverjir þeirra lifað eins og góðærið myndi vara alla tíð og virðist brugðið þegar í ljós kemur að svo muni ekki verða. Samdráttur setur þá úr jafnvægi og fyrir bregður ólundarsvip við tilhugsunina um að gróðinn verði minni en áður. Þetta á sérstaklega við í ferðaþjón- ustunni. Þegar gróskan var þar hvað mest var veinað yfir hugmyndum um að ferðaþjónustan greiddi sitt til samfélagsins í formi skatta. Ferðaþjónustan var sögð ofurviðkvæm grein sem ætti að njóta alls kyns fríðinda. Á þessu var tekið mark og ferðaþjónustan hefur ekki verið skattlögð eins og ástæða er til. Hún hefur hvað eftir annað verið staðin að okri en rekur upp skaðræðisvein ef einhverjir gera athugasemdir við það. Græðgishugsun hefur verið í forgrunni en fyrirhyggju ekki gætt að sama skapi. Þetta á ekki einungis við í ferðaþjónustu þótt hún sé hér tekin sem dæmi. Hið sama á við ýmsa aðra, eins og til dæmis fjárfesta og aðra peningagutta sem vilja planta sem f lestum lúxusíbúðum og lúxushót- elum út um allar trissur, ekki síst í miðbæ Reykja- víkur, og gera sjálf krafa ráð fyrir að anna ekki eftirspurn. Þar á bæ var gengið út frá því að góðu árin séu komin til að vera. Nú blasir samdráttur við og erfitt er að sjá fyrir sér að lúxushúsnæðið fyllist. Það mun standa á sínum stað, sem eins konar minnismerki um of látungshátt og veruleikafirr- ingu. Nokkuð sem íslenskur almenningur sá ótal dæmi um á árunum fyrir hrun og hélt að myndi ekki endurtaka sig í bráð. Þrátt fyrir samdrátt og niðursveif lu munu Íslendingar áfram búa við velsæld þótt hún verði ekki jafn mikil og síðustu ár. Einu einstaklingarnir sem hafa raunverulega ástæðu til að kvarta eru öryrkjar og það launafólk sem býr við lægstu launin og nær engan veginn endum saman. Lítt er hugað að þessum hópi, stundum er eins og viðhorfið sé að hann hafi kallað þetta hlutskipti yfir sig og verði að vinna sig út úr því á eigin spýtur. Það er hægara sagt en gert í þjóðfélagi þar sem fólk á leigumarkaði er fast í vítahring. Megnið af tekjunum fer í svívirði- lega háa húsaleigu og ekkert er afgangs til að leggja fyrir. Þetta fólk á ekki nein sérstaklega góð ár heldur endalausa röð af mögrum árum þar sem það reynir að skrimta. Það á að setja hag þessa fólks í forgang, ekki hag þeirra sem vilja græða sem mest. Mögru árin Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingar- innar Blátt bann Þjóðernishyggjan virðist hafa heltekið fótboltaæsta Tyrki. Allt sem Íslendingar gera er ómögu­ legt. Við megum ekki stoppa landslið þeirra á flugvellinum, róta í töskum né hrista vega­ bréf þeirra. Svo má alls ekki leyfa Belga að veifa framan í þá uppþvottabursta. Utanríkisráð­ herrar landanna ræddu saman í gær til að bera klæði á vopnin. Fyrrverandi utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, vildi ganga lengra. Á Fésbók hvatti hann landsmenn til að mæta með uppþvottabursta á völlinn. KSÍ lagði hins vegar blátt bann við slíku kynþáttaníði og hirti þá af sniðugum áhangendum. Hringt í Jens Íslendingar tóku mun betur á móti Jens Stoltenberg, fram­ kvæmdastjóra NATO, en Tyrkjum. Fékk hann að ferðast hindrunarlaust um götur borgarinnar í lögreglufylgd. Eitt það helsta sem hrjáir íslenska stjórnmála­ og umræðuhefð er tregðan til að setja sig í spor annarra. Því getur það ekki verið auðvelt fyrir forsætisráðherra að dekra við samtök sem hún er beinlínis á móti. Hún hefur sagt NATO hluta af málamiðlun ríkisstjórnarflokkanna. Jens og Katrín hafa vissulega hist áður, en í þetta skiptið var það Katrín sem bauð. Það getur ekki hafa verið auðvelt að hringja í Jens. arib@frettabladid.is 1 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 1 2 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 3 2 -E C 4 C 2 3 3 2 -E B 1 0 2 3 3 2 -E 9 D 4 2 3 3 2 -E 8 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.