Fréttablaðið - 12.06.2019, Page 14
2
milljarðar króna voru
kröfur Andra Más Ingólfs
sonar og félaga á hans
vegum í þrotabú Primera
Air á Íslandi.
Á árinu hafa forstjóri,
fjármálastjóri og sjö aðrir
stjórnendur Sýnar látið af
störfum.
Andri Már Ingólfs-son, f y r r ver a nd i aðaleigandi Primera Air sem var tekið til gjaldþrotaskipta síðasta haust, reiddi
fram tæplega 200 milljónir króna
í reiðufé til þrotabús f lugfélagsins
gegn því að fallið yrði frá málsókn-
um á hendur honum, samkvæmt
heimildum Markaðarins.
Til viðbótar samþykkti Andri
Már að falla frá þeim kröfum sem
hann hafði lýst í þrotabúið, eins og
áður hefur komið fram, en kröfur
hans og félaga á hans vegum, þar
á meðal félags í eigu dönsku ferða-
skrifstofunnar Bravo Tours, námu
samanlagt ríf lega tveimur millj-
örðum króna.
Greint var frá því á vef Við-
skiptablaðsins í síðasta mánuði að
samkomulag hefði tekist á milli
Andra Más og þrotabús Primera
Air á Íslandi, sem hæstaréttarlög-
maðurinn Eiríkur Elís Þorláksson
stýrir, um að búið félli frá þeim rift-
unarmálum sem það hugðist höfða
á hendur Andra Má en ekki hefur
áður verið upplýst um eingreiðsl-
una sem Andri Már þurfti að inna
af hendi til búsins.
Andri Már, sem var næststærsti
kröfuhafi þrotabúsins á eftir Arion
banka, sagði í samtali við Viðskipta-
blaðið í kjölfar samkomulagsins að
frá sínum bæjardyrum séð væri
málinu lokið. Hann hefði tapað
gríðarlegum fjárhæðum á gjald-
þroti Primera Air.
„Það er auðvitað mikil eftirsjá að
svona skyldi fara fyrir félagi sem
hafði verið í góðum rekstri í fjórtán
ár,“ sagði hann.
Rekstur Prim era Air og erlendra
dótturfélaga stöðvaðist sem kunn-
ugt er í október í fyrra þegar félög-
in voru tekin til gjaldþrotaskipta.
Lýstar kröfur í búið nema rúmlega
10 milljörðum króna og af þeim
nema kröfur frá Arion banka sam-
tals um 4,8 milljörðum króna.
Bankinn þurfti að færa niður
tæplega þrjá milljarða króna í
ábyrgðum og lánveitingum vegna
gjaldþrotsins.
Fram kom í skýrslu skiptastjóra
sem var lögð fram á skiptafundi
þrotabús f lugfélagsins í febrúar
síðastliðnum og Markaðurinn
hefur undir höndum að rannsóknir
skiptastjórans hefðu „leitt í ljós að
mögulegt sé að fyrirsvarsmenn
félagsins hafi bakað því tjón“ í að
minnsta kosti tveimur tilvikum.
Auk þess var tekið fram að skipta-
stjórinn hefði það til skoðunar
„hvernig staðið var að reikningsskil-
um þrotamannsins að öðru leyti“.
Í skýrslunni sagði jafnframt að
athugun skiptastjóra á reiknings-
skilum flugfélagsins kynni að leiða
til þess að þrotabúið gæti sótt frek-
ari fjárkröfur á hendur þeim sem
báru ábyrgð á reikningsskilunum.
Endurskoðendur Primera Air voru
frá ráðgjafarfyrirtækinu Deloitte.
Draga ársreikninga í efa
Í umfjöllun Markaðarins í nóvem-
ber kom fram að endurskoðendur
sem höfðu rýnt í ársreikninga félaga
innan Primera-samstæðunnar fyrir
2017 teldu vafa leika á því að þeir
væru í samræmi við lög, reglur og
góða endurskoðunarvenju. Töldu
þeir til að mynda vandséð að víkj-
andi lán sem Prim era Air var veitt
frá tengdum aðila geti talist til eigin
fjár félagsins en án lánsins hefði
eigið fé þess verið neikvætt um 16,3
milljónir evra, jafnvirði 2,2 millj-
arða króna, í árslok 2017.
Þá sögðu þeir óvíst hvort félaginu
hefði verið heimilt að innleysa 13,3
milljóna evra söluhagnað á árinu
2017 vegna endursölu á Boeing-
flugvélum sem voru enn í smíðum
og yrðu afhentar í apríl árið 2019.
Andri Már hafnaði því að rang-
lega hefði verið staðið að gerð árs-
reikninga félaga innan Primera-
samstæðunnar.
Eins og Markaðurinn hefur
greint frá lýsti skiptastjóri þrota-
búsins yfir riftun á tveimur ráð-
stöfunum Primera Air upp á sam-
tals um 520 milljónir króna í lok
nóvember í fyrra. Þeim riftunum
var mótmælt en fram kom í skýrslu
skiptastjórans frá því í febrúar að
hann hefði í hyggju að höfða rift-
unarmál, meðal annars á hendur
Andra Má, og láta reyna á endur-
heimt þeirra verðmæta fyrir dóm-
stólum. Nú er hins vegar ljóst að
ekkert verður af málsóknum gegn
fyrrverandi aðaleiganda ferðaþjón-
ustusamstæðunnar.
hordur@frettabladid.is
kristinningi@frettabladid.is
Greiddi búi Primera um 200 milljónir
Andri Már Ingólfsson greiddi þrotabúi Primera Air tæpar 200 milljónir króna til að forðast málsóknir af hálfu búsins. Hann féll
jafnframt frá milljarða kröfum sínum í búið. Forsvarsmenn félagsins voru taldir hafa mögulega valdið því tjóni í tveimur tilvikum.
Andri Már Ingólfsson, fyrrverandi aðaleigandi Primera-samstæðunnar, en hann lýsti um tveggja milljarða kröfum í þrotabú flugfélagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hlutabréfagreinendur Lands-bankans líta miklar breyt-ingar á stjórnendateymi
Sýnar jákvæðum augum. Þær séu
nauðsynlegar í ljósi erfiðleika í
rekstri fyrirtækisins. Á árinu hafa
forstjóri, fjármálastjóri og sjö aðrir
stjórnendur látið af störfum. Þetta
kemur fram í nýju verðmati, sem
Markaðurinn hefur undir höndum.
Sérfræðingar bankans horfa
meðal annars til þess að nýir
stjórnendur þekki vel til félagsins
og þeirra markaða sem það starfi á.
„Það á hins vegar eftir að koma í ljós
hverjar verða áherslur nýrra stjórn-
enda og hvernig þeir fara að því að
snúa vörn í sókn,“ segir í greining-
unni. Mikið verk sé fyrir höndum
við að endurheimta viðskiptavini
og halda tekjum og framlegð.
Bent er á að verkefni tengd sam-
einingu Vodafone við fjölmiðla 365
sé flestum lokið eða þau séu langt á
veg komin og færeyska fjarskipta-
félagið Hey hafi verið selt, sem sé af
hinu góða því stjórnendur þurfi að
einbeita sér að rekstrinum á Íslandi.
Þetta ætti að auðvelda stjórnend-
unum að beina sjónum að sam-
keppninni á markaðnum.
Í verðmati Landsbankans er talið
að EBITDA Sýnar, það er hagnaður
fyrir fjármagnsliði og afskriftir,
verði við miðju spábils stjórnenda
fyrirtækisins, eða 6.138 milljónir
króna. „Eftir ítrekaða ofspá fyrrver-
andi stjórnenda á horfum félagsins
teljum við að núverandi spá félags-
ins fyrir 2019 hljóti að vera hófsöm,“
segja greinendurnir.
Landsbankinn lækkaði verðmat
sitt í 42,5 krónur á hlut á föstudag
en markaðsgengið var 35,7 í gær-
morgun. Bankinn birti síðasta
verðmat í lok mars á síðasta ári sem
hljóðaði upp á 77,8 krónur á hlut.
Í verðmatinu er ekki gert ráð fyrir
viðsnúningi í rekstri strax heldur
er beðið eftir sýnilegum árangri í
rekstri þar til reiknað er með veru-
legum rekstrarbata. – hvj
Fagna stjórnendabreytingum hjá Sýn
ÍV fjárfestingafélag, sem er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu, aðaleigenda Ísfélags-
ins í Vestmannaeyjum, hagnaðist
um ríf lega einn milljarð króna á
síðasta ári, samkvæmt nýlegum
ársreikningi félagsins, og jókst
hagnaðurinn um 410 milljónir
króna frá fyrra ári.
Hagnaður síðasta árs skýrist að
mestu af áhrifum dótturfélaga fjár-
festingafélagsins sem voru jákvæð
um samanlagt 986 milljónir króna.
Fjárfestingafélag Guðbjargar, sem
fer meðal annars með 89 prósenta
hlut í Ísfélagi Vestmannaeyja,
átti eignir upp á 15,6 milljarða
króna í lok síðasta árs en þar
af er hluturinn í útgerðinni
bókfærður á um 13,8 millj-
arða króna.
Í á r s r ei k n i ng nu m
kemur auk þess fram að
félagið hafi greitt móð-
urfélaginu, Fram, 428
milljónir króna
í arð á síðasta
ári borið saman
við 3,3 milljarða
króna árið 2017.
Auk hlutarins í Ísfélagi Vest-
mannaeyja á fjárfestingafélagið
einnig hlutabréf í meðal ann-
ars Símanum og Tryggingamið-
stöðinni en félagið komst fyrr á
árinu í hóp stærstu hluthafa
síðastnefnda félagsins með
1,33 prósenta hlut. Fyrir
átti annað félag í eigu fjöl-
skyldunnar, Kristinn, um
1,14 prósent í trygginga-
félaginu en til viðbótar
eiga félög Guðbjargar hlut
í félaginu í gegnum fram-
virka samninga hjá
Íslandsbanka, eins
og Markaðurinn
hefur áður greint
frá. – kij
Félag Guðbjargar hagnast
um liðlega milljarð króna
15,6
milljarðar króna var eigið
fé ÍV fjárfestingafélags í lok
síðasta árs.
Heiðar Guðjónsson tók við sem for-
stjóri Sýnar í apríl síðastliðnum.
1 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
1
2
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
2
-E
7
5
C
2
3
3
2
-E
6
2
0
2
3
3
2
-E
4
E
4
2
3
3
2
-E
3
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K