Fréttablaðið - 12.06.2019, Page 20
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Bókhaldsstofan 3 Skref er í eigu systranna Ingibjargar Þorsteinsdóttur viðskipta-
fræðings og Kötlu Þorsteins-
dóttur lögfræðings. Báðar búa
þær yfir áratugareynslu af rekstri
og stjórnun fyrirtækja, bæði á
almenna vinnumarkaðinum og
hjá hinu opinbera.
3 Skref sinnir bókhaldsþjónustu
fyrir allar stærðir og gerðir fyrir-
tækja. Meðal verkefna er bókun
reikninga, launavinnsla, afstemm-
ingar, rekstrarskýrslu- og ársreikn-
ingagerð og skil á virðisaukaskatti.
Stofan sér einnig um skattframtöl
fyrir einstaklinga og lögaðila og
sér um stofnsamninga og skjala-
gerð þegar kemur að stofnun
fyrirtækja og annarra félaga. Auk
þess gerir stofan eignaskiptayfir-
lýsingar og skráningartöflur fyrir
fjölbýlishús.
Auk systranna Ingibjargar og
Kötlu starfa fjórir bókarar hjá
fyrirtækinu, þær Agnes, Gulla,
Diljá og Kolfinna. Allar leggja þær
sig fram um að veita fyrirtaks
þjónustu.
Pappírslaust bókhald
Ingibjörg og Katla segjast stöðugt
vera að leita leiða til að finna hag-
ræðingu fyrir viðskiptavini sína
og auka gagnsæi í bókhaldinu. Í
liðinni viku skrifuðu þær undir
samning við Svar ehf. um að taka
upp Uniconta bókhaldskerfið.
„Þetta er byltingarkennt forrit
sem er svar við þeirri kröfu að gera
bókhaldið algjörlega pappírslaust í
framtíðinni,“ segir Ingibjörg.
Uniconta er forrit sem virkar
þannig að allir reikningar koma
fram með rafrænum hætti. Ýmist
með PDF- eða XML-skjölum eða
einfaldlega ljósmynd.
„Viðskiptavinurinn getur sett
upp app í símanum sínum og ein-
faldlega tekið mynd af strimlinum
og sent hann til okkar gegnum
appið,“ segir Katla.
„Þetta er mjög þægilegt fyrir
viðskiptavininn. Segjum sem
svo að hann fari í byggingavöru-
verslun og kaupi eitthvað fyrir
fyrirtækið sitt. Áður þurfti hann
að koma reikningnum til okkar.
Núna er hægt að taka ljósmynd af
strimlinum í búðinni, senda hana
gegnum appið og reikningurinn er
kominn inn í kerfið.“
Þær systur segja að Uniconta
bókhaldskerfið sé mikil hagræð-
ing fyrir kúnnann auk þess sem
það er umhverfisvænt sem hefur
verið leiðarljós hjá fyrirtækinu.
„Þetta kerfi er mjög aðgengi-
legt fyrir viðskiptavininn. Hvort
sem hann notar það í appinu eða í
tölvu. Hann fær betri yfirsýn yfir
eigin rekstur og getur fylgst mjög
vel með stöðu bókhaldsins í raun-
tíma,“ segir Ingibjörg.
„Innleiðing Uniconta bókhalds-
kerfisins mun spara gríðarlegan
tíma við bókhaldsvinnuna. Þetta
er bara framtíðin í dag, það er allt í
skýjum og öppum, það er fram-
tíðin að losna við allan þennan
svakalega pappír.“
Katla segir að innleiðingarferlið
muni taka einhvern tíma. Hingað
til hafa þær unnið í DK og Navision
en smám saman munu þær færa
viðskiptavinina úr þeim kerfum
yfir í Uniconta. „Fyrir stærri fyrir-
tæki með flóknara bókhald mun
ferlið taka lengri tíma. En það er
klárlega framtíðin samt sem áður.“
Hagræðing að útvista
bókhaldinu
Einn markhópur fyrirtækisins eru
lítil fyrirtæki af þeirri stærðar-
gráðu að starf bókhaldara er
kannski ekki nema 70-80%. „Í
þeim tilvikum er það klárlega hag-
ræðing fyrir fyrirtækin að útvista
bókhaldinu til fyrirtækis eins og
okkar sem er með þetta rafrænt,
það er svo mikill tímasparnaður,“
segir Ingibjörg.
Ásamt því að sinna bókhalds-
þjónustu gerir fyrirtækið 3 Skref
skráningartöflur og eignaskipta-
yfirlýsingar. Skráningartafla
inniheldur upplýsingar um stærðir
allra rýma byggingar, eignateng-
ingar og aðrar grundvallarupplýs-
ingar. Skráningartöflu þarf að gera
fyrir nýbyggingar, endurbyggingar
og breytingar á byggingum.
Í eignaskiptayfirlýsingu kemur
fram hvernig eign, mannvirki eða
lóð, er skipt á milli eigenda ásamt
því hvort um sé að ræða séreign,
sameign sumra eða sameign allra.
Eignaskiptayfirlýsing á að vera til
fyrir öll fjöleignarhús og tilheyr-
andi lóðir.
„Við erum að vinna skráningar-
töf lur og eignaskiptayfirlýsingar
bæði fyrir nýbyggingar og eldri
hús,“ segir Ingibjörg. „Sumir koma
til okkar og láta gera eignaskipta-
yfirlýsingu fyrir gömul hús af
því lögin voru sett eftir að húsin
voru byggð. Þá er kannski einhver
í húsinu að f lytja og verið er að
gera yfirlýsingu vegna þess. Eins
þarf að gera nýja eignaskiptayfir-
lýsingu og skráningartöf lu ef fólk
er til dæmis að bæta við svölum
á eina íbúð í fjölbýlishúsi. Allar
breytingar við hús hafa áhrif
á hvernig það skiptist á milli
eigenda.“
Ingibjörg segir að 3 Skref sé ung
bókhaldsstofa. Hún hafi starfað í
núverandi mynd í þrjú ár. Styrk-
leiki fyrirtækisins að hennar mati
er sá að þær eru ekki hræddar við
nýjungar. „Okkur finnst þær bara
spennandi.“
Áður þurfti að
koma reikningn-
um til okkar. Núna er
hægt að taka ljósmynd af
strimlinum í búðinni,
senda hana gegnum
appið og reikningurinn
er kominn inn í kerfið.
Framhald af forsíðu ➛
Katla og Ingibjörg hjá 3 Skrefum eru óhræddar við nýjungar. Uniconta kerfið er liður í að gera bókhaldið pappírslaust. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Auk systranna Ingibjargar og Kötlu starfa fjórir bókarar hjá fyrirtækinu, þær Agnes, Gulla, Diljá og Kolfinna.
2 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RBÓKHALD, REKSTUR OG RÁÐGJÖF
1
2
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
2
-E
2
6
C
2
3
3
2
-E
1
3
0
2
3
3
2
-D
F
F
4
2
3
3
2
-D
E
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K