Fréttablaðið - 12.06.2019, Side 26

Fréttablaðið - 12.06.2019, Side 26
Nám: Rekstrarverkfræðingur frá Duke- háskóla í Norður-Karólínu og MCF í fjármálum fyrirtækja frá Háskól- anum í Reykjavík. Störf: Aðstoðarmaður bankastjóra Landsbankans frá árinu 2017, verk- efnastjóri hjá bankanum í stefnu- miðuðum verkefnum á árunum 2012-2017 og í áhættustýringu bankans á árunum 2011-2012. Fjölskylduhagir: Einhleyp. Svipmynd Nanna Kristín Tryggvadóttir Alltaf með nokkrar bækur við höndina Sterkt og gott samband Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki Ekkert mál hjá Vodafone Það skiptir okkur máli að vera í góðu sambandi 24 tíma sólarhringsins. Ég þarf bara að biðja um það sem þarf og Vodafone sér um restina. Nanna Kristín Tryggvadóttir segir að það sé undir bönkunum komið að bregðast við, móta og breyta starfseminni til framtíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Na n n a K r i s t í n T r y g g v a d ó t t i r hefur starfað hjá Landsbankanum í átta ár. Hún lærði m e ð a l a n n a r s rekstrarverkfræði í Duke-háskóla og hefur undanfarin tvö ár verið aðstoðarmaður Lilju Bjarkar Ein- arsdóttur bankastjóra. Hvernig er morgunrútínan þín? Hún er alveg alls konar og fer svolítið eftir plönum hvers dags. Ég byrja undantekningarlaust alla daga á því að fara yfir fréttir, svona á meðan ég nudda stírurnar úr augunum. Bestu morgnarnir eru svo alltaf þegar ég næ að komast á æfingu. Ekki hægt að byrja daginn betur. Hver eru þín helstu áhugamál? Ég er mikil áhugamanneskja um golf, bæði að spila það og horfa á. Ég gef mér þó alltof sjaldan tíma til að sinna því almennilega. Góðar bækur eru svo annað áhugamál en ég veit fátt notalegra en að koma mér vel fyrir með góða bók. Síðan þykir mér ótrúlega gaman að bardúsa eitthvað í eldhúsinu og slaka örugglega hvergi jafn vel á. Skemmtilegast þykir mér þó alltaf að vera með vinum og fjölskyldu og reyni því að gera mikið af því. Hvaða bók ertu að lesa eða last síðast? Ég er ein af þeim sem eru alltaf með nokkrar bækur í gangi í einu. Þessa stundina er ég að lesa um ris og fall f lugfélagsins WOW air. Þótt höfundur bókarinnar og stofnandi félagsins séu ekki á einu máli um hvernig hlutirnir voru nákvæm- lega þá er sagan og stóra myndin engu að síður mjög áhugaverð. Hin bókin sem ég er að lesa þessa stundina er Síðasta stúlkan, saga Nadiu Murad sem hlaut friðar- verðlaun Nóbels árið 2018. Ótrú- lega átakanleg saga um stúlku sem er tekin í þrældóm af ISIS og hvern- ig hún sleppur úr klóm þeirra. Eins erfitt og það getur verið að lesa um átakanlegar raunir fólks um víða veröld þá minnir saga Nadiu mann jafnframt á það hversu ótrú- lega heppin við erum sem byggjum þetta land. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrarumhverfinu? Það hafa miklar breytingar orðið á rekstrarumhverfi banka undanfarið og ég held að það sjái ekki fyrir endann á þeim í bráð. Á síðustu árum hefur banka- þjónusta færst úr því að vera þess eðlis að viðskiptavinir þurfi að gera sér ferð í bankann sinn til að sinna sínum erindum og yfir í það að viðskiptavinir afgreiða sig sjálfir í appi eða netbanka þegar þeim hentar. Nýjasta dæmið er svo auðvitað Apple Pay sem við- skiptavinir Landsbankans hafa tekið alveg gríðarlega vel í og sýnir hvað við erum almennt tilbúin að tileinka okkur nýjar og þægilegar lausnir. Sjálf hef ég ekki tekið upp greiðslukort frá því hægt var að byrja að nota Apple Pay fyrir rúm- lega mánuði. Helstu áskoranirnar eru svo að tryggja áframhaldandi þróun á þeim lausnum sem henta viðskiptavinum bankans og að gera þær aðgengilegar á sama tíma og við tryggjum stöðugan og traustan rekstur, þetta verður að vera í jafnvægi. Hvaða tækifæri eru fram undan í bankarekstri? Það eru ógrynni tækifæra í bankarekstri um þessar mundir. Fjármálageirinn er að breytast hratt um allan heim. Við erum að sjá ótrúlegan fjölda fjártækni- fyrirtækja koma fram á sjónar- sviðið um allan heim. Sum munu ná fótfestu og önnur kveikja hug- myndir. Hefðbundnir bankar eru að fá samkeppni úr nýjum áttum svo sem frá Facebook og Apple. Það er undir bönkunum komið að bregðast við, móta og breyta starf- seminni til framtíðar. Viðbrögð þeirra munu ráða hvernig þeim mun reiða af til lengri tíma í sam- keppni af þessari stærðargráðu sem á sér engin landamæri. En í því felast jafnframt stærstu tækifærin. Sjálf hef ég ekki tekið upp greiðslu- kort frá því hægt var að byrja að nota Apple Pay fyrir rúmlega mánuði. 1 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN 1 2 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 3 2 -F 6 2 C 2 3 3 2 -F 4 F 0 2 3 3 2 -F 3 B 4 2 3 3 2 -F 2 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.