Fréttablaðið - 12.06.2019, Page 28
Undanfarin misseri hefur Samkeppnis-eftirlitið rannsakað samruna á smásölu-mörkuðum sem eiga það sameiginlegt að
hafa meðal annars haft áhrif utan
Reykjavíkur. Í fyrsta lagi var um að
ræða fyrirhuguð kaup Haga á Lyfju
sem voru ógilt. Í öðru lagi kaup N1
á Festi sem voru samþykkt með
skilyrðum. Í þriðja lagi kaup Haga
á Olís sem einnig voru samþykkt
með skilyrðum. Í fjórða lagi fyrir-
huguð kaup Lyfja og heilsu á eina
keppinaut sínum í Mosfellsbæ
sem voru ógilt. Í fimmta lagi kaup
Samkaupa á Iceland-verslunum
á höfuðborgarsvæðinu sem voru
samþykkt án skilyrða og fyrirhug-
uð kaup Samkaupa á Iceland-versl-
unum á Suðurnesjum og Akureyri
sem voru ógilt.
Í tengslum við þessar rann-
sóknir hefur Samkeppniseftirlitið
meðal annars verið gagnrýnt fyrir
að grípa inn í vegna áhrifa sam-
runanna á afmörkuðum landfræði-
legum mörkuðum og í sumum til-
vikum gagnvart fyrirtækjum sem
eru ekki markaðsráðandi. Gagn-
rýnin gefur tilefni til að útskýra
með hvaða hætti samkeppnisyfir-
völd nálgast þessi atriði.
Markaðir oft staðbundnir
Við rannsókn á samrunum smásala
horfir Samkeppniseftirlitið til þess
á hvaða landfræðilega markaði, eða
mörkuðum, þeir starfa. Er meðal
annars lagt á það mat hvað neyt-
endur eru tilbúnir að eyða miklum
tíma í ferðalög milli verslana og
hvort netverslanir séu raunhæfur
valkostur. Við blasir að dagvöru-
verslanir á Vesturlandi veita til
að mynda dagvöruverslunum á
Austurlandi afar takmarkað sam-
keppnislegt aðhald. Hið sama á við
um apótek, veitingastaði, bakarí,
fiskbúðir o.s.frv. Af því má ráða að
smásölumarkaðir eru oft á tíðum,
eðli síns vegna, afmarkaðir við til-
tekin landsvæði.
Fyrrgreindir samrunar hafa
þannig verið taldir raska sam-
keppni í smásölu dagvöru á Suður-
landi, Suðurnesjum, Vesturlandi,
Akureyri og í smásölu lyfja í Mos-
fellsbæ. Í öllum þessum málum lágu
til grundvallar ítarlegar greiningar
á staðgöngu milli keppinauta,
mismunandi tegunda verslana og
svæða.
Þetta er í takt við nálgun ann-
arra samkeppnisyfirvalda. Fram-
kvæmdastjórn ESB og bandarísk
samkeppnisyfirvöld hafa almennt
lagt til grundvallar að smásala lyfja
afmarkist við mjög takmörkuð
svæði sem samsvari 1,5 til 4 kíló-
metra radíus frá staðsetningu lyfja-
búða. Í nýrri ákvörðun breskra sam-
keppnisyfirvalda vegna fyrirhugaðs
samruna Asda og Sainsbury's var
við afmörkun á landfræðilega
markaðnum horft til verslana í allt
að 15 mínútna aksturstíma frá versl-
unum samrunaaðila.
Stærðin hefur ekki úrslitaáhrif
Við rannsókn á samrunum horfir
Samkeppniseftirlitið ekki eingöngu
til stærðar viðkomandi fyrirtækja á
landsvísu heldur skipta þar höfuð-
máli samkeppnisleg áhrif samrun-
ans á viðkomandi markaði. Fyrir-
tæki getur verið lítið á landsvísu en
mjög sterkt á einstökum svæðum.
Í þeim tilvikum er horft til áhrifa
samrunans á samkeppni annars
vegar á landsvísu og hins vegar á
tilteknum landsvæðum sem mynda
sérstaka landfræðilega markaði.
Samruni Sainsbury's og Asda var
ógiltur af breskum samkeppnis-
yfirvöldum. Í því máli var saman-
lögð hlutdeild fyrirtækjanna í dag-
vörusölu um 29%. Þrátt fyrir það
var samruninn talinn raska sam-
keppni á 537 landfræðilega afmörk-
uðum svæðum Í Bretlandi. Í tilviki
kaupa Samkaupa á 14 verslunum
af Baskó var samanlögð hlutdeild
fyrirtækjanna á landsvísu á bilinu
20 til 25 prósent. Samruninn var
talinn raska samkeppni á Akureyri
og í Reykjanesbæ, þar sem tvær af
fyrrgreindum 14 verslunum voru
staðsettar, en ekki á höfuðborgar-
svæðinu.
Röskun líklegri úti á landi
Ljóst er að samrunar á smásölu-
mörkuðum geta haft áhrif á sam-
keppni þrátt fyrir að fáir íbúar búi
á viðkomandi svæði og viðkomandi
fyrirtæki séu ekki markaðsráðandi.
Raunar er líklegra að samkeppnis-
leg vandamál komi upp á smásölu-
mörkuðum á landsbyggðinni en á
höfuðborgarsvæðinu. Ástæðan er
sú að á landsbyggðinni starfa að
öllu jöfnu færri aðilar á samþjapp-
aðri mörkuðum. Horfi samkeppnis-
yfirvöld fram hjá samrunum sem
raska samkeppni á fámennari
stöðum mun það leiða til þess að
þau svæði verða ósamkeppnishæf
vegna hærra verðs en ella, minni
gæða og verri þjónustu. Slík stefna
samkeppnisyfirvalda væri óásætt-
anleg og myndi skaða neytendur í
dreifðari byggðum landsins.
Samrunaeftirlit og landsbyggðin
Kínverjar vilja eignast ferðaskrifstofuna Thomas Cook
Forsvarsmenn Thomas Cook, breska ferðaþjónusturisans sem glímir við háar skuldir og mikinn taprekstur, eiga nú í viðræðum við kínverska
fjárfestingafélagið Fosun um sölu á ferðaskrifstofu og hótelrekstri samstæðunnar. Kínverjarnir eiga þegar fimmtungshlut í samstæðunni. Breska
félagið þarf nauðsynlega að endurskipuleggja reksturinn og selja eignir til að eiga sér viðreisnar von að mati greinenda. NORDICPHOTOS/GETTY
Valur Þráinsson
aðalhagfræðing-
ur Samkeppnis-
eftirlitsins
Orðræðan í kringum nýaf-staðna kjaradeilu var oft komin á furðulegar slóðir.
Skemmst er þess að minnast þegar
heildsölu- og framleiðslufyrirtækið
ÍSAM boðaði verðhækkanir á öllum
vörum í tölvupósti til viðskiptavina
sinna, yrðu kjarasamningar sam-
þykktir. Viðbrögð verkalýðshreyf-
ingarinnar voru eftir bókinni. Einn
forystumaður lýsti þessum verð-
hækkunum sem „ógeðfelldum“ og
annar sagðist ekki útiloka að félags-
menn yrðu hvattir til að sniðganga
vörur fyrirtækisins. Í augum þeirra
voru verðhækkanir ÍSAM stríðs-
yfirlýsing, eins og reyndar svo margt
annað sem atvinnurekendur hafa
tekið upp á undanfarin misseri.
Formaður Ef lingar gengur hins
vegar venjulega skrefinu lengra. Hún
talaði um „ÍSAM auðvaldið“ og sagði
þarna „afhjúpast afstaða þeirra sem
í stjórnlausri frekju sinni trúa því af
öllu hjarta að þeirra sé algjört vald-
ið“. Sami ískyggilegi undirtónninn í
skrifum formannsins sem sér aðeins
svarthvítt samfélag. Hið góða gegn
hinu illa. Kúgaðir gegn kúgurum
sínum. Verkalýðurinn gegn ÍSAM
auðvaldinu.
En arðránið virðist ekki ganga sem
skyldi. Eins og Markaðurinn greindi
frá í síðustu viku tapaði ÍSAM 662
milljónum króna á síðasta ári og eig-
endur félagsins þurftu að leggja því
til 800 milljónir króna. Tapið jókst
um 310 milljónir króna á milli ára.
Segja má að útgerðarfjölskyldan hafi
greitt með hverri seldri baunadós og
hverjum seldum kexpakka.
Svona var nú staðan áður en skrifað
var undir kjarasamninga sem fela í sér
verulegar hækkanir á lægstu launum.
Er stjórnlaus frekja að ætla að brúa
risavaxið bil í rekstrinum með verð-
hækkunum? Aðeins í huga þeirra
sem eru helteknir af hugmynda-
fræði stéttaátaka. ÍSAM getur ekki
gert þeim til geðs með neinum hætti,
nema kannski með því að hverfa af
yfirborði jarðar og skilja eftir fram-
leiðsluþættina fyrir verkafólkið.
Heildsölurisanum var í raun refsað
fyrir að gera það rétta í stöðunni, þ.e.
að greina frá fyrirhuguðum verð-
hækkunum í stað þess að fara leynt
með áform sín uns samningarnir
væru samþykktir. Viðsemjendur
á vinnumarkaðinum höfðu þann-
ig betri forsendur til að meta áhrif
samninganna. Fleiri fyrirtæki mega
fylgja fordæmi ÍSAM.
Stjórnlaus frekja í bullandi taprekstri
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
SKOÐUN
Skotsilfur
Hættir hjá
Landsbankanum
Steingrímur
Helgason, for-
stöðumaður
fyrirtækjaráð-
gjafar Lands-
bankans, hefur
hætt störfum hjá
bankanum. Steingrímur, sem er
hagfræðingur að mennt, lét af
störfum í gær, þriðjudag, sam-
kvæmt heimildum Markaðarins.
Hann hafði unnið í Landsbankan-
um samfleytt í 16 ár og þar af stýrt
fyrirtækjaráðgjöf bankans frá árinu
2009. Þar áður starfaði Steingrímur
hjá Búnaðarbanka og Kaupþingi.
Gróðamaskína
Kauphöllin er með
nær órjúfanlegt
samkeppnis-
forskot og
njóta hluthafar
ávaxtanna af því.
Arðsemi eigin fjár
var um 50 prósent árið
2017 og hún greiðir rausnarleg laun.
Fyrirtækið hefur því ljóslega hags-
muni af því að sem flest félög séu
skráð á hlutabréfamarkað. Engu að
síður er hún oft flokkuð með Fjár-
málaeftirlitinu og Seðlabankanum
sem horfa ekki til arðsemisjónar-
miða enda er um mikilvægan
innvið að ræða. Það er vert að
halda þeim hagsmunum til haga
í umræðu um að Kauphöllin með
Pál Harðarson forstjóra í stafni
hafi meinað hluthöfum Heimavalla
að skrá félagið af markaði.
Ný stjórn
GAMMA
Andri Vilhjálmur
Sigurðsson, einn
eigenda Lög-
manna Lækjar-
götu, og Anna
Rut Ágústsdóttir,
forstöðumaður
viðskiptatengsla
Kviku banka, hafa tekið sæti í
stjórn GAMMA Capital Manage-
ment í kjölfar kaupa Kviku á
verðbréfafyrirtækinu. Hlíf Sturlu-
dóttir, sem hefur setið í stjórn
GAMMA frá árinu 2013, þar af sem
stjórnarformaður síðasta árið,
mun áfram eiga þar sæti. Starf-
semi GAMMA mun breytast tals-
vert í kjölfar sameiningarinnar en
í félaginu verða nú einkum reknir
sjóðir sem fjárfesta í fasteignum
og lóðum og öðrum sérhæfðum
verkefnum.
1 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN
1
2
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
2
-E
2
6
C
2
3
3
2
-E
1
3
0
2
3
3
2
-D
F
F
4
2
3
3
2
-D
E
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K