Fréttablaðið - 12.06.2019, Qupperneq 32
Jón Gunnar Skúlason
verkfræðingur,
lést 7. júní á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni. Útförin verður auglýst síðar.
Hildigunnur Ólafsdóttir
Marta María Jónsdóttir
Jóakim Uni Arnaldarson
Okkar ástkæri
Jakob Gísli Þórhallsson
lést þriðjudaginn 4. júní.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 13. júní kl. 13.00.
Fríða Kristbjörg Hjálmarsdóttir
Ingi Þór Jakobsson Hanna Birna Jóhannesdóttir
Hreinn Jakobsson Aðalheiður Ásgrímsdóttir
Þórhallur Jakobsson Stefanía Bergmann Magnúsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Gerður Guðjónsdóttir
Ártúni 7,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
sunnudaginn 2. júní. Útförin fer fram frá
Selfosskirkju föstudaginn 14. júní kl. 13.00.
Jónína Sigurjónsdóttir Sæmundur Bjarni Ingibjartsson
Jón Garðar Sigurjónsson Ólöf Rún Tryggvadóttir
Ævar Smári Sigurjónsson Kristín Bjarnadóttir
Sigurður Ellert Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðríður (Rúrí) Karlsdóttir
Mosabarði 8, Hafnarfirði,
lést sunnudaginn 9. júní.
Útför verður auglýst síðar.
Árni Rosenkjær
Karl Rosenkjær
Guðrún Hildur Rosenkjær
Ágústa Ýr Rosenkjær
Guðný Birna Rosenkjær
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Hljómsveitin Sigur Rós var stofnuð árið 1994. Þá voru þrír í henni, Ágúst Ævar Gunnarsson, Georg Holm og Jón Þórir Birgisson.
Sveitin var skírð í höfuðið á nýfæddri
systur Jónsa. Þetta segir Google. En ég er
með Georg, oft nefnda Gogga, á línunni
og spyr hvernig allt hafi byrjað. „Við
Ágúst vorum nágrannar og æskuvinir
hér í Reykjavík en Jónsi er úr Mosfells-
bænum. Það er útbreiddur misskiln-
ingur að við séum allir úr Mosó. „Fyrsta
æfingin okkar, án þess að heita eitthvað
sem hljómsveit, var undir verksmiðju
við Skútuvoginn. Við Gústi byrjuðum
þar og svo bættist Jónsi við.“
Sigur Rós er ein þekktasta hljómsveit
Íslands á heimsvísu. En fyrsta giggið
lofaði ekki góðu, að sögn Gogga. „Við
komum fram á skemmtun í Mosfells-
bænum, spiluðum tvö eða þrjú lög og
gekk alveg hræðilega. Ákváðum samt
að þrauka og halda samstarfinu áfram
því okkur fannst við betri en þetta.“
Byrjunin var sem sagt ekkert ágæt
þó að titill þriðju plötu sveitarinnar
gefi það í skyn. Áður en undirbúningur
hennar hófst bættist Kjartan Sveinsson
í hópinn. Eftir upptökurnar hætti Ágúst
og í stað hans kom Orri Páll Dýrason.
Platan kom út árið 1999 og í kvöld hefst
hlustunarpartí í Gamla bíói klukkan 21
í tilefni tvítugsafmælis hennar. Það er
opið almenningi meðan húsrúm leyfir.
Georg segir þá félaga hafa tekið
nokkur ár í að æfa. „Eftir þessa uppá-
komu í Mosfellsbænum spiluðum við
ekkert opinberlega í tvö til þrjú ár.
Vorum bæði í vinnu og skóla en nýttum
hverja mínútu sem við höfðum lausa í
að hittast, æfa og semja. Okkur fannst
það gaman og það var tilgangurinn með
þessu öllu. En eftir útkomu Ágætis byrj-
unar byrjaði boltinn að rúlla. Reyndar
spiluðum við ekkert um tíma heldur
vorum á einhverjum lögfræðibuxum að
semja við plötufyrirtæki erlendis og lesa
samninga, frekar leiðinlegt,“ rifjar Georg
upp. „En svo tók við þriggja ára stans-
laust tónleikaferðalag. Við byrjuðum
í Bretlandi og fórum víðar um Evrópu.
Bandaríkin komu inn seinna – en þau
komu og hættu ekkert.“
Georg kveðst ekki 100% klár á því
í hversu mörgum eintökum Ágætis
byrjun hefur selst. „En ég held það sé
pínu slatta yfir milljón, á heimsvísu –
ekki bara á Íslandi! Síðast þegar ég vissi
var Takk … söluhæsta platan okkar, ef ég
á að skjóta á eitthvað þá er hún í einni
og hálfri milljón. Held að f lestar séu í
kringum það en ekki allar.“
Þeir fylgdu sem sagt vel eftir þessari
ágætis byrjun. „Það var eiginlega ekki
um neitt annað að ræða. Við höfðum
strax sterka tilfinningu fyrir plötunni
þegar við vorum að vinna hana og fólk
sýndi henni líka mikinn áhuga. Þegar
við byrjuðum að túra með hana voru
liðin tvö ár frá því hún kom út á Íslandi,
hún kom út árið 2000 í Bretlandi og 2001
í Bandaríkjunum. Þá vorum við dálítið
farnir að spila önnur lög sem enduðu svo
á næstu plötu. Fólki fannst það kannski
svolítið skrítið en við vorum þá eigin-
lega komnir með leiða á sumum lög-
unum á Ágætis byrjun.“
gun@frettabladid.is
Ágætis byrjun orðin tvítug
Sigur Rós býður almenningi í hlustunarpartí í Gamla bíói í kvöld til að fagna tuttugu
ára afmæli plötunnar Ágætis byrjun. Georg Holm fer í huganum aftur til fortíðar.
Febrúar 1995. Upphaflega sveitin. Jón Þór Birgisson (Jónsi), Georg Holm og Ágúst
Ævar Gunnarsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Maí 2002. Orri Dýrason, Jón Þór Birgisson (Jónsi), Kjartan Sveinsson og Georg Holm. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Úr Degi 20. ágúst 2000
1911 Melavöllurinn í Reykjavík er vígður.
1913 Áhöfn dansks varðskips tekur bláhvítan fána af báti
á Reykjavíkurhöfn. Þessi atburður ýtir mjög undir kröfur
um íslenskan fána.
1923 Kaþólska kirkjan á Íslandi er endurreist með
stofnun biskupsdæmis Reykjavíkur.
1926 Kristján 10. kemur í heimsókn til Íslands ásamt
Alexandrínu drottningu og fylgdarliði. Þau fara hringferð
um landið.
1974 Jarðskjálfti upp á 6,3 stig verður í Borgarfirði. Það er
sterkasti kippurinn í tveggja mánaða jarðskjálftahrinu.
1982 Um 750.000 manns mæta í Central Park í New
York-borg til að mótmæla kjarnavopnum. Meðal tón-
listarmanna sem koma fram eru Jackson Browne, James
Taylor, Bruce Springsteen og Linda Ronstadt.
1987 Arkitektarnir Margrét Harðardóttir og Steve
Christer hljóta fyrstu verðlaun í samkeppni um hönnun
ráðhúss fyrir Reykjavík.
1987 Ronald Reagan heldur fræga ræðu í Vestur-Berlín
þar sem hann segir meðal annars „Herra Gorbatsjev, rífðu
þennan vegg niður“.
2014 Heimsmeistarakeppni í knattspyrnu karla hefst í
Brasilíu.
Merkisatburðir
1 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
2
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
2
-D
D
7
C
2
3
3
2
-D
C
4
0
2
3
3
2
-D
B
0
4
2
3
3
2
-D
9
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K