Fréttablaðið - 12.06.2019, Side 35
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
12. JÚNÍ 2019
Orðsins list
Hvað? Menning á miðvikudögum –
Hvað er að óttast?
Hvenær? 12.15-13.00
Hvar? Náttúrufræðistofan í Kópa-
vogi, Kópavogshálsi
Hvað er fælni og af hverju ótt-
ast sumir hluti og aðstæður sem
aðrir óttast almennt ekki? Óttar
Birgisson sálfræðingur fjallar um
ýmiskonar fóbíur og fælni. Við-
burðurinn er gestum að kostn-
aðarlausu.
Leiklist
Hvað? Ókunnugur
Hvenær? 20.00
Hvar? Frystiklefinn á Rifi
Verkið, sem er einleikur, fjallar
um Meðal-jón Meðaljónsson og
varpar ljósi á ýmsar hliðar sam-
félagsins, samskipta og mann-
eskjunnar. Þrjár sýningar verða
á verkinu og ókeypis verður á
þær allar. Sýningarnar hæfa ekki
börnum innan tólf ára.
Tónlist
Hvað? Tónlistardagur Halldórs
Hansen barnalæknis
Hvenær? 17.30
Hvar? Salurinn Kópavogi
Verðlaunaafhending úr Styrktar-
sjóði Halldórs Hansen. Herdís
Anna Jónasdóttir og Bjarni Frí-
mann Bjarnason flytja ljóða-
söngva og aríur. Sverrir Guðjóns-
son flytur erindið Sunnudagar hjá
Halldóri Hansen þar sem skyggnst
er í fágætt plötusafn Halldórs.
Boðið verður upp á veitingar.
Hvað? Svipast um eftir upphafi
íslenskrar dægurtónlistar
Hvenær? 20.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg 10
Í leitarsveitinni eru Bjarni Guð-
mundsson, Jónína Erna Arnar-
dóttir, Olgeir Helgi Ragnarsson,
Ólafur Flosason, Sigurgeir Gísla-
son, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og
Zsuzsanna Budai. Trausti Jónsson
flytur kynningar- og inngangsorð.
Aðgangseyrir er 3.000 krónur en
2.000 fyrir lífeyrisþega.
Hvað? Þjóðlagatónlist
Hvenær? 21.00
Hvar? Norræna húsið í Vatnsmýrinni
Ragnheiður Gröndal syngur og
spilar á píanó og Guðmundur
Pétursson leikur á gítar. Þau hafa
lengi haft áhuga á íslenskri þjóð-
lagatónlist og tjá hana á persónu-
legan hátt.
Hvað? Sigur Rós býður í hlustun-
arpartí
Hvenær? 21.00
Hvar? Gamla Bíó, Ingólfsstræti 2a
Partíið er haldið til að fagna 20 ára
afmæli plötunnar Ágætis byrjun.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
Sýning á íslenskum orða-forða stendur yfir í Safna-húsinu við Hverfisgötu. Stofnun Árna Magnús-sonar í íslenskum fræðum stendur fyrir sýningu
sem heitir Óravíddir – Orðaforð-
inn í nýju ljósi. Um er að ræða inn-
setningu á þrívíddarbirtingu orða-
forðans eins og hann kemur fyrir í
Íslensku orðaneti eftir Jón Hilmar
Jónsson. Trausti Dagsson, verk-
efnisstjóri í upplýsingatækni, og Eva
María Jónsdóttir kynningarstjóri
unnu að sýningunni fyrir hönd
stofnunarinnar.
Nýstárleg framsetning
„Þarna er um að ræða nýstárlega
framsetningu á íslenska orðaforðan-
um. Hann er oftast skoðaður í lengd
og breidd í orðabókum en á þeim
tímum sem við lifum er allt komið
inn á net. Þetta er myndbandsinn-
setning og við erum að sýna íslenskt
orðanet í þrívídd. Úr þessu verða til
einhvers konar stjörnuþokur. Það er
orð í miðjunni og öll orð sem tengj-
ast því eru í kring og síðan tengjast
orðin innbyrðis. Gestir horfa á orðin
sem koma og fara, þetta er eins og
að horfa upp í stjörnuhimin,“ segir
Eva María. „Orðin má finna í Orða-
netinu sem var opnað árið 2016 á
vefnum og er öllum aðgengilegt
eða öðrum orðasöfnum á vegum
Árnastofnunar. Þetta eru orð sem
eru bæði algeng og óalgeng, fjalla til
dæmis um náttúru, veður, tilfinn-
ingar og tengjast svo innbyrðis. Sum
orðin sem birt eru á sýningunni eru
reyndar svo ný að þau hafa enn ekki
ratað í opinber orðasöfn en eru samt
í notkun á vissum sviðum.“
Ný leið til að skoða málið
Í gagnvirkum hluta sýningarinnar
geta gestir síðan kannað vensl orða
og leyft hugrenningatengslum að
kvikna. „Ef einhver slær til dæmis
inn „ferðamaður“ og „friður“ getur
hann komist að því í gegnum hvaða
orð þessi hugtök tengjast. Þeir sem
hafa sérstakan áhuga á köttum geta
fundið orðið „köttur“ og öll orð sem
tengjast því og síðan öll orð sem
tengjast orðunum sem tengjast
ketti. Þetta er alveg ný leið til að
skoða málið, og hún er mjög áhrifa-
rík,“ segir Eva María.
Eins og stjörnuhiminn
„Þarna er um að ræða nýstárlega framsetningu á íslenska orðaforðanum,“
segir Eva María Jónsdóttir kynningarstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Í Safnahúsinu við
Hverfisgötu er
sýning á íslenskum
orðaforða.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
RENAULT KOLEOS
INITIAL PARIS Á EINSTÖKU VERÐI
Staðalbúnaður í Initial Paris útgáfu er m.a.:
Nappa leðuráklæði á sætum, 19" álfelgur, BOSE hljóðkerfi, rafdrifin framsæti,
hiti og loftkæling á framsætum, snertilaus rafdrifin opnun á afturhlera og m.fl.
Verið velkomin í reynsluakstur.
TRYGGÐU ÞÉR KOLEOS Í INITIAL PARIS
ÚTGÁFU Á EINSTÖKU VERÐI
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
4
4
8
4
R
e
n
a
u
lt
K
o
le
o
s
5
x
2
0
j
ú
n
í
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur.
Verð áður: 7.450.000 kr.
TILBOÐ: 6.850.000 kr.
Afsláttur: 600.000 kr.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M I Ð V I K U D A G U R 1 2 . J Ú N Í 2 0 1 9
1
2
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
2
-F
1
3
C
2
3
3
2
-F
0
0
0
2
3
3
2
-E
E
C
4
2
3
3
2
-E
D
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K