Fréttablaðið - 20.06.2019, Side 6

Fréttablaðið - 20.06.2019, Side 6
SJÁVARÚTVEGSMÁL Hæstiréttur horfði fram hjá meginmarkmiðum fiskveiðistjórnunarlaga um að það beri að stýra veiðum út frá þjóðar- hagsmunum en ekki hagsmunum einstakra fyrirtækja, að mati Jóns Bjarnasonar, fyrrverandi sjávarút- vegsráðherra. Jón dregur í efa að Hæstiréttur hafi verið hlutlaus þegar dómur var kveðinn upp í desember í fyrra þar sem ríkið var gert skaðabóta- skylt vegna úthlutunar makríl- kvóta. Hann segir að útgerðir ættu frekar að þakka honum fyrir að hafa staðið í lappirnar gagnvart ESB. „Enn er ósamið um makríl milli ríkja og því er það svo fáránlegt að einstaka útgerðir geta verið að gera kröfur til þess og hins í óumsömd- um hlutaskiptum veiða,“ segir Jón. Jón, sem var sjávarútvegsráð- herra í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, fór ekki að lögum þegar makrílkvóta var úthlutað. Umboðsmaður Alþingis hafði komist að þeirri niðurstöðu árið 2014. Hæstiréttur komst að sams konar niðurstöðu í desember síð- astliðnum. „Einnig þykir mér makalaust ef útgerðir hafi í sér siðferðis- og samfélagslega að höfða mál til að fá bætur frá ríkinu. Þeir ættu miklu frekar að þakka ráðherra fyrir að hafa komið skikkan á veiðarnar og varið rétt Íslands til makrílveiða,“ segir sjávarútvegsráðherrann fyrr- verandi. „Því sá réttur var ekki sjálfsagður á þessum tíma. Ísland stóð í hörð- um deilum við ESB sem neitaði að viðurkenna að hér væri makríll og hótaði umfangsmiklu viðskipta- banni með íslenskan fisk ef við hættum ekki makrílveiðum. Það hefði ekki verið til framdráttar fyrir þessi útgerðarfélög ef ráðherra hefði ek k i st aðið í lappir na r og hafnað kröf- um ESB sem á sama tíma set t i lönd- u n a r b a n n á Færey jar vegna veiða á makríl og síld,“ bætir hann við. Jón gagn- rýnir einnig að ríkislög- maður haf i ekki tr yggt h l u t l a u s a n d ó m s t ó l . B e n d i r hann á að einn af hæstaréttardómurum í mak r ílmá linu , Árni Kolbeinsson, var ráðuneytis- stjóri í sjávarút- vegsráðuneytinu á r i n 1985 t i l 19 98 . E i n n ig greindi Oddný G . H a r ð a r - dóttir, þing- maður Sam- fylkingar, frá því að sonur h a n s he f ð i ver ið f ram- k v æ m d a - s t j ó r i L Í Ú og haft ríka aðkomu að kröfugerðum á hendur ríkinu í tengslum við makrílhags- muni. „Þessi mál eru afar pólitísk og umdeild og voru það frá byrjun að þessi lög eins og lögin um kvóta- lögin voru. Mér finnst skrítið að hæstaréttardómari, sem hefur áður átt beina hlutdeild að máli með samningu og setningu mjög umdeildra laga á sínum tíma, skuli líka kallaður til sérstaklega til að dæma í Hæstarétti um svo umdeilt mál. Hann hafði áður komið að virkum hætti sem ráðuneytisstjóri þess tíma,“ segir ráðherrann fyrr- verandi. „Og ég er hissa á því að ríkislög- maður skuli ekki hafa farið fram á að hann viki úr dómnum vegna fyrri tengsla við málið til að tryggja að dómurinn sé hlutlaus og rétt- mætur,“ heldur Jón áfram. Hann kveðst hafa verið þess fullviss á sínum tíma að reglugerðin stæðist lög og gott betur en það. „Reglugerðin var nauðsynleg á sínum tíma til að koma skipulagi á makrílveiðar,“ segir Jón. „Undir- réttur dæmdi þetta lögmætt og þess vegna átti ríkislögmaður að gæta þess að Hæstiréttur væri hlutlaus.“ Jón bætir við að frumvarp Krist- jáns Þórs Júlíussonar um makríl- veiðar, sem samþykkt var á Alþingi í gær, verji ekki hagsmuni þjóðar- innar. „Sú lagabreyting er óttaleg hrákasmíð þar sem verið er að fara á svig við meginhagsmuni þjóðar- innar hvað varðar stjórnun, ráð- stöfun og nýtingu auðlindarinnar.“ sveinn@frettabladid.is Nær að þakka en að krefja ríkið bóta Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, gagnrýnir útgerðir sem ætli sér að sækja bætur til ríkisins vegna makrílkvóta. Telur að þau ættu að þakka fyrir að ráðherra hafi staðið í lappirnar og varið rétt þeirra. Gagnrýnir einnig ríkislögmann og Hæstarétt. Makríllinn kom á góðum tíma fyrir íslenskt þjóðarbú og mokveiddist í upphafi áratugarins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA OPEL CORSA E Nýskráður: 2015 / Bensín Sjálfskiptur / Ekinn: 32.000 km. * B irt m eð fyrirvara um m ynda- og textabrengl. Kíktu í sýningarsali okkar Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 12-16 Verð: 4.590.000 kr.Verð: 1.590.000 kr. NISSAN X-TRAIL Nýskráður: 2018 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 24.000 km. SUZUKI GRAND VITARA LUXURY Nýskráður: 2010 / Bensín Sjálfskiptur / Ekinn: 118.000 km. Verð: 1.490.000 kr. HONDA JAZZ Nýskráður: 2018 / Bensín Sjálfskiptur / Ekinn: 10.000 km. Verð: 2.490.000 kr. Rað.nr. 445707Rað.nr. 150400Rað.nr. 445694Rað.nr. 445692 Gott úrval notaðra bíla benni.is Tilboð: 2.890.000 kr. SSANGYONG REXTON DLX Nýskráður: 2016 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 96.000 km. Verð: 3.490.000 kr. Rað.nr. 720088 4X 4 4X 4 Jón Bjarnason Þykir mér maka- laust ef útgerðir hafi í sér siðferðis- og samfélags- lega að höfða mál til að fá bætur frá ríkinu. Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra 2 0 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 0 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 4 0 -B 7 D 8 2 3 4 0 -B 6 9 C 2 3 4 0 -B 5 6 0 2 3 4 0 -B 4 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 1 9 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.