Fréttablaðið - 20.06.2019, Side 8

Fréttablaðið - 20.06.2019, Side 8
Afmæli fagnað Stjórnvöld í Mjanmar deildu þessari mynd með umheiminum í gær. Mjanmarskir borgarar höfðu þá stillt sér upp og myndað saman stóra mynd af Aung San Suu Kyi ríkisráðgjafa. 74 ára afmæli hennar var fagnað í Yangon í gær. Orðspor Suu Kyi, sem er einnig þjóðarleiðtogi Asíuríkisins, hefur beðið töluverðan hnekki undanfarin misseri vegna meints þjóðarmorðs á þjóðf lokki Róhingja í Rakhine-ríki Mjanmars. NORDICPHOTOS/AFP NORÐUR-KÓREA Stjórnvöld í Suður- Kóreu munu senda 50.000 tonn af hrísgrjónum til nágrannanna í Norður-Kóreu í gegnum Mat- vælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP). Suðurkóreski miðillinn Yonhap greindi frá þessu í gær. Þetta er fyrsta matarsendingin frá árinu 2010 en þá sendi Suður-Kórea 5.000 tonn. „Við búumst við því að þessi mataraðstoð verði komin til norðurkóresku þjóðarinnar eins f ljótt og auðið er. Tímasetning og umfang framtíðaraðstoðar verður svo ákveðin með árangur þessarar sendingar í huga,“ var haft eftir Kim Yeon-chul sameiningarráðherra. Grjónin eru um 13,5 milljarða íslenskra króna virði. Kim sagði ólíklegt að einræðisríkið gæti nýtt grjónin í öðrum tilgangi en að fæða þjóðina þar sem erfitt myndi reyn- ast að geyma þau til lengri tíma. Kínverjar tilkynntu fyrr í vikunni um sams konar gjöf. Xi Jinping for- seti er sagður ætla að gefa Kim Jong- un, einræðisherra Norður-Kóreu, og þjóð hans 100.000 tonn af hrís- grjónum. Greint var frá því í kín- verskum miðlum að Xi væri á leið til Norður-Kóreu í dag. Þessi aðstoð er til komin vegna ört minnkandi matvælaöryggis í hinu einangraða einræðisríki. Sendiherra Norður-Kóreu hjá Sam- einuðu þjóðunum biðlaði til ríkja heims um aðstoð í febrúar vegna stöðunnar. Sagði útlit fyrir að brúa þyrfti 1,5 milljóna tonna bil á árinu. Þau 150.000 tonn sem Kína og Suður-Kórea senda nú hjálpa til við að brúa bilið. En eru að sögn Ben- jamins Silberstein, sérfræðings í málefnum Norður-Kóreu er heldur úti vefritinu North Korea Economy Watch, ekki nema plástur á sárið. Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) varaði við því í febrúar síðastliðnum að það mætti eiga von á því að staðan yrði enn svartari. „Ekki einungis vegna náttúruhamfara og veðurs heldur einnig skorts á ræktanlegu landi, takmarkaðs aðgengis að nútíma- landbúnaðartækni og áburði. Vegna þessa er búist við því að mat- vælaöryggi minnki, sérstaklega á meðal þeirra allra viðkvæmustu,“ sagði í yfirlýsingu þá. Í maí bentu FAO og WFP svo á að norðurkóresk matarframleiðsla árið 2018 hefði verið sú minnsta frá því 2008. Þar af leiðandi byggju tíu milljónir, eða fjörutíu prósent landsmanna, við sáran skort. Norðurkóreska ríkisfréttastofan KCNA hefur einnig f lutt fréttir þar sem áhyggjum er lýst af ástandinu. Fyrr í mánuðinum var greint frá miklum þurrkum í Suður-Hwang- hae-héraði, þar sem stór hluti hrís- grjónaræktar landsins fer fram. Ákvörðun Suður-Kóreustjórnar um að aðstoða, sem og að gefa um 400 milljónir króna til verkefna UNICEF í Norður-Kóreu, er þó ekki óumdeild. Samkvæmt Yonhap hafa andstæðingar þessa verkefnis sagt að verið sé að aðstoða ríki sem ógnar nágrönnum sínum, nú síð- ast með eldflaugatilraun í maí. Þá greindi Reuters frá því að andstæð- ingar óttist einnig að einræðisstjórn Kim nýti sendingarnar til þess að hagnast persónulega. Annar stór óvissuþáttur er sá að Matvælaáætlunin fær takmark- aðan aðgang að upplýsingum um raunverulega stöðu mála í Norður- Kóreu. Fyrrnefndur Silberstein hefur bent á að það sé ekki hægt að fullyrða að neyðarástand ríki nú, þótt allt bendi vissulega til þess. „Þetta verður að breytast, WFP ætti að krefjast aðgangs að mörkuðum á eins mörgum svæðum og hægt er, eða að minnsta kosti heimsækja nokkra markaði í hverju héraði,“ skrifaði Silberstein í 38North. Þá er einnig vert að benda á að Norður-Kórea sætir miklum við- skiptaþvingunum. Þær þvinganir banna ekki, samkvæmt Reuters, hjálparstarfsemi sem þessa. Hins vegar hafa stofnanir sem að slíku starfi standa bent á að þvinganirnar og bann Bandaríkjastjórnar við ferðalögum til Norður-Kóreu hafi áður komið í veg fyrir hjálparstarf. Fjallað var um þvinganirnar og matvælaöryggi í Norður-Kóreu í Washington Post í síðasta mánuði. Þar sagði að ábyrgðin á hungri landsmanna væri stjórnvalda í Pjongjang sem hefðu eytt umfram getu í kjarnorkuáætlun og her en vanrækt velferð landsmanna. Hazel Smith, prófessor í kóreskum fræð- um, sagði í viðtali við miðilinn að Norður-Kórea gæti aftur á móti ekki framleitt matvæli án þess eldsneytis sem þarf til að knýja landbúnaðar- vélar. Aðgangur að slíku eldsneyti væri mjög svo skertur með þving- unum. thorgnyr@frettabladid.is Tíu milljónir án matar í Norður-Kóreu Norðurkóreskir bændur við vinnu á hrísgrjónaakri í Chongsan-ri í maí. NORDICPHOTOS/AFP Xi heimsækir Kim Xi Jinping, forseti Kína, heim- sækir Kim Jong-un í dag og dvelur í einræðisríkinu í tvo daga. Bæði norðurkóreska ríkisblaðið Rodong Sinmun og kínverski miðillinn Xinhua birtu umfjallanir af þessu tilefni. Kínverski forsetinn fór þar fögrum orðum um Kim og sagði Norður-Kóreu á réttri leið. Ríkið reyndi nú að leysa úr spennunni á Kóreuskaga. Xi er ekki fyrsti kín- verski forsetinn til þess að skrifa í norðurkóreska dagblaðið eða heimsækja Kim-fjölskylduna, en ríkin hafa lengi verið banda- menn. Samkvæmt fréttastofu AP má búast við því að Xi ræði við Kim um kjarnorkuafvopnun Kóreu- skagans. Frost er nú í viðræðum Norður-Kóreu og Bandaríkjanna um málið. Á sama tíma á Xi í erfiðu tollastríði við Bandaríkin. Því telja þeir sérfræðingar sem AP vitnaði til líklegt að Xi reyni að nýta sér bandalagið við Norður- Kóreu er hann hittir Donald Trump Bandaríkjaforseta á G20- fundinum í Japan um næstu helgi. Bæði Suður-Kórea og Kína senda Norður-Kór- eu tugþúsundir tonna af hrísgrjónum. Dugar skammt því að þörfin er talin vera 1,5 milljónir tonna. Fjörutíu prósent landsmanna sögð búa við sáran skort. Staðan flókin vegna skorts á upplýsingum, þvingana og óáreiðanleika Kim- stjórnarinnar. SÁDI-ARABÍA Adel al-Jubeir, utan- ríkisráðherra Sádi-Arabíu, hafnaði í gær því sem segir í nýrri skýrslu sér- fræðings Sameinuðu þjóðanna um aftökur án dóms og laga, um að raun- veruleg sönnunargögn væru fyrir því að Mohammed bin Salman krón- prins og aðrir hátt settir embættis- menn væru ábyrgir fyrir morðinu á blaðamanninum Jamal Khashoggi. „Þetta er ekkert nýtt. Þessi erind- reki mannréttindaráðsins endur- tekur í ráðgefandi skýrslu sinni það sama og hefur verið áður birt. Í skýrslunni má finna skýrar þver- sagnir og tilhæfulausar ásakanir sem draga úr trúverðugleika hennar,“ sagði al-Jubeir. Skýrsluhöfundur, Agnes Callam- ard, komst að sögn Reuters að þeirri niðurstöðu að morðið á Khashoggi hefði verið þaulskipulagt. Skýrslan byggir á upptökum og vettvangs- greiningu tyrkneskra rannsakenda og upplýsingum sem hafa komið fram fyrir dómi í Sádi-Arabíu. Khashoggi skrifaði meðal annars í Washington Post og gagnrýndi krónprinsinn oft harðlega. Hann var myrtur á ræðisskrifstofu Sádi- Araba í tyrknesku borginni Istanbúl í október síðastliðnum. – þea Hafna áliti um þátt prinsins í morðinu Mohammed bin Salman prins. 2 0 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 0 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 4 0 -C B 9 8 2 3 4 0 -C A 5 C 2 3 4 0 -C 9 2 0 2 3 4 0 -C 7 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 1 9 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.