Fréttablaðið - 31.07.2019, Side 36
Ódauðleg lög Sigvalda Kaldalóns
Tónlistarhátíðin Berja-dagar hef u r ver ið haldin í tuttugu og eitt ár í Ólafsfirði og þá um miðjan ágúst en nú er hún í fyrsta sinn hald-
in um verslunarmannahelgi. Ólöf
Sigursveinsdóttir sellóleikari er list-
rænn stjórnandi og framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar.
Lítið óperuhús
„Margir af f lottustu söngvurum
landsins verða í Ólafsfirði á þessum
dögum,“ segir Ólöf. „Á hátíðar-
kvöldi í kirkjunni klukkan 20
föstudagskvöldið 2. ágúst koma níu
listamenn fram og flytja spennandi
efnisskrá, þar verða aríur, einsöngur
og dúettar, í bland við ljóðasöng og
kammermúsík eftir meðal annarra
Schubert. Hundur í óskilum lokar
svo hátíðarkvöldinu með stuttum
tónleikum rétt fyrir miðnætti.
Ólafsfjörður er einstakur staður
Tónlistin
ómar í
Ólafsfirði
Tónlistarhátíðin
Berjadagar í Ólafs-
firði. Þrjátíu og
fimm listamenn
koma að hátíðinni.
Sérstakt óperu-
kvöld, þjóðlög,
kammermúsík,
brasilísk hljóm-
sveit og söngstund
er meðal þess sem
verður á dagskrá.
„Það er yndislegt að vera þátttakandi í að búa til svona viðburð,“ segir Ólöf. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
GEISLADISKAR
Ég lít í anda liðna tíð
og Svanasöngur á heiði
Minningarsjóður Sigvalda Kalda-
lóns, Fermata
Ég sá því nýlega haldið fram á
Facebook að munurinn á popplagi
og sinfóníu sé eins og munurinn
á hringekju og epískri skáldsögu.
Það getur vel verið, en þá má líka
benda á að ekki er sjálfgefið að
semja popplag. Allir skilja poppið;
menn heyra á augabragði ef eitt-
hvað virkar ekki. Ómögulegt er
að fela sig á bak við akademískar
kúnstir ef innblásturinn vantar,
eins og stundum gerist í íburðar-
meiri tónverkum.
Sig valdi Kaldalóns (sem var
læknir) samdi einföld lög, einfaldar
melódíur sem eru stuttar, ólíkt sin-
fóníunum. Hann hafði fábrotna
tónlistarmenntun miðað við mörg
önnur tónskáld, var að mestu leyti
sjálfmenntaður. Engu að síður
hafði hann þann merkilega hæfi-
leika að geta samið grípandi lag-
línur, og svo virðist sem þær hafi
bókstaf lega runnið upp úr honum.
Hann þurfti ekki annað en að
setjast við píanó með
eitthvert ljóð
fyrir framan
sig og lagið
varð til í einni
sviphendingu.
Mörg tónskáld
m y n d u g e f a
útlim fyrir slíka
getu.
Ófáanlegir
komnir út aftur
Fyrir rúmum áratug
var ráðist í að hljóðrita öll einsöngs-
lögin eftir Sigvalda og út komu tveir
tvöfaldir geisladiskar, sá fyrri árið
2004 en hinn síðari 2006. Þeir hafa
verið ófáanlegir um langt skeið, og
því er mikill fengur að því að þeir
séu nú komnir út aftur. Af hverju?
Vegna þess að lögin eru
dásamleg. Þau eru konfektmolar
sem ekki er hægt að fá nóg af.
Jónas Ingimundarson píanó-
leikari hafði listræna stjórn með
útgáfunni, deildi lögunum á milli
óperusöngvaranna sem á þessum
tíma voru mest áberandi í tón-
listarlífinu. Þetta eru söngvarar á
borð við Ólaf Kjartan Sigurðarson,
Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur,
Sesselju Kristjánsdóttur, Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur, Bergþór Pálsson
og f leiri.
Jónasi hefur tekist vel að velja
réttu söngvarana í mismunandi
lögin, valinn maður er í hverju
rúmi, alveg eins og í góðri bíó-
mynd. Gunnar Guðbjörnsson, með
sína fögru rödd, syngur glæsileg
lög á borð við Hamraborgina;
Jóhann Friðgeir Valdimarsson er
stórbrotinn í aríukenndum lögum;
húmorinn og leikurinn er aldrei
langt undan hjá Bergþóri Pálssyni,
og gríðarlegar tilfinningar eru í
söng Ólafs Kjartans Sigurðarsonar.
Þannig mætti lengi telja.
Hrífandi lög
Sérstaklega verður að geta söngs
Guðrúnar Jóhönnu. Hann er afar
fallegur, svo hjartahlýr og ljóð-
rænn að maður fellur í stafi. Langt
er síðan ég hef heyrt eitthvað jafn
hrífandi og Vöggubarnsins mál eða
Lofið þreyttum að sofa. Þessi tvö lög
eru ekki jafn þekkt og margt annað
eftir Sigvalda, en ættu svo sannar-
lega að vera það.
Jónas spilar af ríkulegri tilfinn-
ingu á píanóið, hann kann þá list að
syngja á hljóðfærið og leikur hans
er ávallt skreyttur fínlega ofnum
blæbrigðum. Auðheyrt er að hann
elskar tónlist Sigvalda, sú ástríða
rennur saman við sönginn svo úr
verður magnaður seiður.
Þess ber að geta að lög Sigvalda
eru um helmingi f leiri en hér er að
finna, en þá eru kórlögin meðtalin.
Örfá einsöngslög komust ekki fyrir
á geisladiskinum, en í undirbúningi
er útgáfa á öllum kórlögunum, og
einsöngslögin sem eftir urðu verða
þar. Óhætt er að hlakka til.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Sérlega vel heppnuð
útgáfa á einsöngsperlum Sigvalda Kalda-
lóns.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
ÉG HEF ALDREI HAFT
SVONA MARGA
LISTAMENN EN ÞAÐ ERU
ÞRJÁTÍU OG FIMM LISTAMENN
SEM KOMA AÐ HÁTÍÐINNI.
með öll sín fallegu hús. Menningar-
húsið okkar Tjarnarborg er eins og
lítið óperuhús. Þarna langar okkur
að skapa mikinn kraft, lyfta heilu
bjargi og flytja óperu. Laugardags-
kvöldið er óperukvöld. Fyrsti þáttur
La Traviata verður fluttur við píanó-
undirleik Hollendingsins David
Bollen og meðal þeirra sem syngja
eru Elmar Gilbertsson og Sigrún
Pálmadóttir, sem býr fyrir vestan og
er fastráðin í óperuhúsum í Bonn.
Óperukór tekur þátt í þessari dag-
skrá. Nathalia Druzin Halldórsdóttir
flytur síðan rússneskar aríur.“
Þjóðlög og Brasilía
Ólöf segir hátíðina þetta árið vera
sérlega glæsilega. „Ég hef aldrei
haft svona marga listamenn en
það eru þrjátíu og fimm lista-
menn sem koma að hátíðinni.
Það er verið að bjóða upp á ótrú-
lega skemmtilega dagskrá eins og
upphafskvöldið, fimmtudaginn 1.
ágúst, en þar skemmtir hljómsveit
með tónlistarmönnum sem fæddir
eru í Brasilíu en f luttu hingað til
Ólafsfjarðar fyrir nokkrum árum.
Það er mjög skemmtilegt að vita
til þess að áheyrendur sem koma
í Ólafsfjarðar kirkju klukkan átta
á fimmtudagskvöld og hlusta þar
á þjóðlög spiluð á gömul íslensk
hljóðfæri við óskaplega fallegan
hljómburð geti eftir þá tónleika
gengið saman yfir í Tjarnarborg
sem er nokkra metra í burtu og
hlustað þar á brasilíska hljómsveit.“
Tónlist og göngutúr
Spurð hvort hún taki sjálf þátt í dag-
skránni sem flytjandi segir hún svo
vera. „Ég lít á það sem mín laun fyrir
að búa þetta til að fá að hitta aðra
listamenn og brjótast út úr þeirri
einangrun sem fylgir því að sitja inni
í æfingaherbergi. Ég spila á selló á
hátíðarkvöldinu í kirkjunni á föstu-
daginn, þar hlakka ég til að flytja
Myndir á þili eftir Jón Nordal.“
Ólöf vill hvetja fólk til að koma
með börnin á söngstund í Ólafs-
fjarðarkirkju klukkan hálf ellefu á
laugardaginn. Frítt er fyrir átján ára
og yngri á hátíðina.
Fólk getur ekki bara farið á tón-
leika heldur einnig í göngutúr á
laugardag í leiðsögn Maríu Bjarn-
eyjar Leifsdóttur í einn af dölum
Ólafsfjarðar. „Þannig vil ég blanda
saman fegurðinni í Ólafsfirði og
tónlistinni,“ segir Ólöf. „Fólkið
sem kemur á Berjadaga kemur ár
eftir ár. Það er gaman hvað þessar
hátíðir okkar á Íslandi eru ólíkar.
Sígildu tónlistarhátíðirnar eru aldr-
ei á sama tíma og engin þeirra býður
upp á sömu dagskrá. Það er yndis-
legt að vera þátttakandi í að búa til
svona viðburð.“
3 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
3
1
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
8
1
-A
1
0
0
2
3
8
1
-9
F
C
4
2
3
8
1
-9
E
8
8
2
3
8
1
-9
D
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K