Fréttablaðið - 31.07.2019, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 31.07.2019, Blaðsíða 37
BÆKUR Qaanaaq Mo Malø Þýðandi: Friðrik Rafnsson Útgefandi: Drápa Blaðsíður: 597 Á bókarkápu segir að Mo Malø not- ist við dulnefni, en sé fæddur árið 1968 og búi í Frakklandi. Fleira fær lesandinn ekki að vita um höfund sem mun vera á þeirri skoðun að verk þarfnist ekki höfundar. Hvað sem mönnum finnst um þá skoðun hans er ekki annað hægt en að hrósa honum fyrir Qaanaaq, en þar gerir hann margt ansi vel. Qaanaaq er danskur lögreglufor- ingi af inúítaættum sem sendur er frá Kaupmannahöfn til Grænlands til að rannsaka hrottaleg dráp. Sundurtætt lík verkamanna, þar á meðal eins Íslendings, hafa fund- ist og engu er líkara en að ísbjörn hafi orðið þeim að bana. Fljótlega kemur þó í ljós að þar er sitthvað málum blandið. Dauðsföllin verða f leiri. Á Grænlandi þarf Qaanaaq síðan að horfast í augu við erfiða fortíð sína. Inn í söguna blandast svo meðal annars olíuvinnsla, menning innfæddra og stjórn- málabarátta á Grænlandi með til- heyrandi svínaríi. Greinilegt er að höfundur hefur lifandi áhuga á sögu Grænlands og þróun mála þar í landi og honum tekst að smita lesandann af þeim áhuga. Höfundi tekst að skapa áhuga- verða persónu í Qaanaaq sem hefur ættleitt tvíbura og á afar sérstaka fósturmóður sem kemur lítillega við sögu og kemst þá nálægt því að stela senunni. Vinur Qaanaaq, Appu, er sömuleiðis persóna sem lesandinn nær góðu sambandi við. Umhverfislýsingar eru áhrifa- miklar og við lesturinn finnst les- andanum eins og hann sé staddur á Grænlandi í óblíðri náttúru. Andrúmsloft sögunnar er æði oft drungalegt og næstum kæfandi. Það segir síðan ýmislegt um hæfileika höfundar hversu vel honum tekst að gera sleðahunda að máttugum aukapersónum í sögunni en þeir framkalla á óttablandna aðdáun. Bókin er mjög löng, um 600 síður, en ólíkt svo mörgum öðrum glæpa- sögum samtímans kemur það ekki að sök. Framvindan er spennandi og í sögunni eru nokkur æsileg augnablik, eitt þeirra bestu gerist í gufubaði og annað á sér stað úti á ís þar sem Qaanaaq er í lífshættu og reynd er óvenjuleg björgunar- tilraun. Friðrik Rafnsson skilar góðri þýðingu eins og hans er von og vísa. Hann hefur gert nokkuð af því að þýða glæpasögur, sem eru undan- tekningarlaust góðar og búa venju- lega yfir nokkurri dýp. Kolbrún Bergþórsdóttir NIÐURSTAÐA: Óvenjuleg og spennandi glæpasaga með áhuga- verðri aðalpersónu og áhrifamiklu umhverfi. Grænlensk spenna Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur hvar@frettabladid.is 31. JÚLÍ 2019 Tónleikar Hvað? Jazz með útsýni Hvenær? 21.00 Hvar? Múlinn Jazzklúbbur, Björtu- loft í Hörpu ASA tríó leikur tónlist úr ýmsum áttum. Hvað? Hádegistónleikar Hvenær? 12.00 Hvar? Hallgrímskirkja Schola cantorum f lytur fallega, hátíðlega og skemmtilega dagskrá. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Schola cantorum flytur fallega dagskrá í Hallgrímskirkju í klukkan 12.00. PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar 2019 Er bókhaldið ekki þín sterkasta hlið? BÓKHALD | LAUN | SKATTUR | RÁÐGJÖF M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25M I Ð V I K U D A G U R 3 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 3 1 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 8 1 -9 7 2 0 2 3 8 1 -9 5 E 4 2 3 8 1 -9 4 A 8 2 3 8 1 -9 3 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.