Fréttablaðið - 01.08.2019, Side 19
– við Laugalæk
Heill heimur af pylsum!
98% kjöt
Ekkert hveiti
Ekkert soyja
Enginn sykur
Ekkert MSG
Íslenskt kjöt
Íslensk
framleiðsla
Paleo
GAPS
SCD
Keto
á morgunverðarborðið, hádegisverðarborðið, kvöldverðarborðið, garðborðið, útileguborðið,
útileguteppið, í bakpokann, golfpokann, sundpokann, sumarbústaðinn, bátinn, húsbílinn, fellihýsið, tjaldvagninn, tjaldið ...
– og einnig úrvals skinkur, beikon, álegg og meðlæti
PYLSURað vera í kæ
li
se
m
þurfa ekki
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG Reykjavík – Saga heimsins geymir dæmi um sátt og samlyndi ólíkra kynþátta í nábýli og einnig um
ósátt og sundurlyndi.
Frá Singapúr til Suður-Afríku
Singapúr er dæmi um sátt og samlyndi.
Þar hafa ólíkir kynþættir búið þröngt í
örlitlu borgríki í meira en hálfa öld án
nokkurra verulegra vandkvæða. Lands
faðirinn Lee Kuan Yew tók af skarið
þegar landið tók sér sjálfstæði 1965.
Hann sagði: Allir kynþættir eiga sama
rétt í Singapúr. Þannig hughreysti hann,
Kínverjinn, minnihlutahópana í nýju
ríki þar sem sjötti hver íbúi er Indverji
og fjórtándi hver íbúi er frá Malasíu auk
Araba og annarra smærri hópa. Þrír af
hverjum fjórum íbúum landsins eru
Kínverjar. Í Malasíu í næsta nágrenni
býr kínverskur minni hluti íbúanna við
margvíslega fordóma og mismunun af
hálfu innfædda meiri hlutans, Malaj
anna.
Annað gott en öðruvísi dæmi um
sátt og samlyndi ólíkra kynþátta er
SuðurAfríka þar sem ólíkir kynþættir –
blökkumenn og hvítir, Indverjar, Arabar
o.s.frv. – bjuggu lengi saman í friði og
spekt. Svo gerðist það 1948 að Þjóðar
flokkurinn náði völdum í landinu fyrir
tilstilli örlítils nasistaflokks. Ríkisstjórn
in lýsti Svæði sex í Höfðaborg „hvítt“
1966, rak íbúana burt eins og búfénað
og jafnaði byggðina við jörðu með
stórvirkum vinnuvélum. Hvers vegna?
Sambúð ólíkra kynþátta í friði og spekt
rímaði ekki við hugmyndafræði aðskiln
aðarstefnunnar. Aðskilnaðarstjórninni
var loksins steypt í frjálsum kosningum
1994, en sárin sem hún risti í þjóðlífið
hafa ekki enn náð að gróa til fulls.
Bandaríkin og Brasilía
Bandarískir blökkumenn, afkomendur
þrælanna, eru nú 44 milljónir talsins.
Ef þeir mynduðu eigið ríki yrði það
fjölmennara en Pólland (39 milljónir)
og næstum jafnfjölmennt og Spánn (46).
Það kostaði borgarastyrjöld 18611865
og 600 þúsund mannslíf að binda enda
á þrælahald í Bandaríkjunum. Eftir
fylgnin tókst þó ekki vel. Norðurríkin
höfðu suðurríkin undir allströngu eftir
liti 18651877 en slökuðu síðan á klónni.
Hatursmenn blökkumanna höfðu
stofnað með sér samtökin Ku Klux
Klan strax 1865, samtök sem enn eru til
undir því nafni, og gengu á lagið, myrtu
blökkumenn þúsundum saman án
dóms og laga og brenndu heimili þeirra
og kirkjur. Réttindi blökkumanna
voru skert með staðbundinni löggjöf í
suðurríkjunum, m.a. kosningarréttur
og aðgangur að skólum. Það tók önnur
hundrað ár að tryggja bandarískum
blökkumönnum sama rétt og hvítum
skv. lögum. Það hefur samt ekki dugað
til því enn búa þeir við margvíslega mis
munun. Og nú situr rasisti, hinn fyrsti
í meira en hundrað ár, á forsetastóli í
Bandaríkjunum.
Fjórir af hverjum tíu þrælum sem voru
fluttir vestur um haf frá Afríku lentu í
Brasilíu þar sem hvítir menn, afkom
endur Portúgala, Ítala, Spánverja og
Þjóðverja, eru tæpur helmingur mann
fjöldans. Afkomendur þrælanna hafa
blandazt öðrum íbúum landsins í ríkari
mæli en í Bandaríkjunum svo minna
ber því á kynþáttafordómum og öðru
misrétti í Brasilíu en í Bandaríkjunum.
Brasilía vitnar betur en Bandaríkin um
getu manna af ólíkum uppruna til að lifa
saman í sæmilegri sátt og friði.
Ísland og Evrópa
Evrópa er engu síður fjölbreytt en
Bandaríkin og Brasilía. Í Evrópu búa
87 ólíkar þjóðir, þar af 33 sem mynda
meiri hluta í a.m.k. einu þjóðríki og 54
sem mynda minni hluta. Sjöundi hver
íbúi Íslands (14%) er fæddur utan lands
borið saman við 12% í Danmörku, 15%
í Noregi, 18% í Svíþjóð og 28% í Sviss.
Pólverjar á Íslandi eru nú 17 þúsund eða
tæp 5% mannfjöldans í heild. Útlend
ingar, þ.e. borgarar annarra landa, eru
11% af íbúafjölda Íslands og Noregs
borið saman við 8% í Danmörku og Sví
þjóð og 25% í Sviss.
Flestir Íslendingar og Svíar fagna
innflytjendum enda var íslenzkum
og sænskum innflytjendum vel tekið
í Ameríku á sinni tíð þegar fimmti
hver Íslendingur flutti vestur um haf
og fjórði hver Svíi. Sænskar konur
kvarta þó sumar undan því að geta
ekki lengur með góðu móti farið í sund
þar eð í sundlaugunum séu Arabar
sem láta þær ekki í friði, karlar sem sjá
ekkert athugavert við yfirgang gagn
vart konum, jafnvel sæmdarvíg. Fyrir
liggur hvernig rasistinn í Hvíta húsinu
myndi bregðast við vandanum. Hann
myndi banna múslimum að flytja til
Svíþjóðar. Hann reyndi þetta heima
fyrir en dómstólar settu honum stólinn
fyrir dyrnar. Einfaldari og mannúðlegri
leið er að herða eftirlit í sundlaugum og
vísa þeim gestum frá sem láta aðra gesti
ekki í friði. Rómarsáttmálinn sem er
eins konar stjórnarskrá ESB bannar mis
munun eftir þjóðerni.
Hér kemur gestgjafaregla Krist
jáns Hreinssonar skálds til skjalanna.
Gesturinn getur því aðeins ætlazt til
að geta gert sig heimakominn að hann
semji sig skv. reglunni að siðum gest
gjafans sem hefur framfylgd reglunnar
í hendi sér.
Sundlaugar og sæmdarvíg
Flestir Íslendingar og Svíar
fagna innflytjendum enda var
íslenzkum og sænskum inn-
flytjendum vel tekið í Ameríku
á sinni tíð þegar fimmti hver
Íslendingur flutti vestur um haf
og fjórði hver Svíi.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9
0
1
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
8
6
-3
6
E
4
2
3
8
6
-3
5
A
8
2
3
8
6
-3
4
6
C
2
3
8
6
-3
3
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K