Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.08.2019, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 01.08.2019, Qupperneq 38
HÚN ER FYRST ERLENDRA EINSTAKL- INGA SEM ÁÆTLAÐ ER AÐ KOMI REGLUGLEGA TIL LANDSINS OG RÆÐI VIÐ ÍSLENSKA MYND- LISTARMENN, GEFI ÞEIM RÁÐ OG SKAPI ÞEIM JAFNVEL TÆKIFÆRI TIL AÐ KOMA VERKUM SÍNUM Á FRAMFÆRI ERLENDIS. Ég hef hvatt söfn og listverkasafnara til að veita íslenskri myndlist athygli, segir Pari. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Pari Stave, listfræðingur og deildarstjóri nýlista­deildar Metropolitan Museum í New York, er stödd hér á landi. Hún kom hingað til að taka viðtöl við íslenska myndlistarmenn og kynna sér verk þeirra. Fram­ takið er samstarfsverkefni Sam­ bands íslenskra myndlistarmanna (SÍM) og Akademíu skynjunarinnar, sem er samfélag fræðimanna sem eiga það sameiginlegt að vilja efla skynjun og upplifun með myndlist. Ræddi við tugi listamanna „Stjórn SÍM hefur leitað eftir að fá sýningarstjóra, listfræðinga og aðra sérfræðinga um myndlist til að taka viðtöl við listamenn sem eru innan SÍM. Við höfðum samband við Pari, sem hefur lengi unnið með íslensk­ um listamönnum og er einn af ráð­ gjöfum Akademíu skynjunarinnar. Hún er fyrst erlendra einstaklinga sem áætlað er að komi reglulega til landsins og ræði við íslenska mynd­ listarmenn, gefi þeim ráð og skapi þeim jafnvel tækifæri til að koma verkum sínum á framfæri erlendis,“ segir Anna Eyjólfsdóttir, sem er formaður SÍM og einn af forsvars­ mönnum Akademíu skynjarinnar. Viðtalstímar við Pari voru aug­ lýstir í fréttablaði SÍM og umsóknir streymdu inn. Pari tók viðtöl við um fjörutíu myndlistarmenn og skoðaði verk þeirra, bæði áður en hún hitti þá og eftir fund með þeim. Pari segist hafa hrifist af verkum allra þeirra listamanna sem hún tal­ aði við. „Þeir voru ekki allir íslenskir því ég hitti bæði serbneska, franska og pólska listamenn sem búa og starfa á Íslandi,“ segir hún. „Það var áhugavert fyrir mig að hitta lista­ mennina og ég vona að þeim hafi fundist þessir fundir gagnlegir.“ Spennandi listalíf Pari er vel kunnug skandinavískri nútímamyndlist og var sýningar­ stjóri í Scandinavia House í New York . Hún hef ur unnið með íslenskum listamönnum bæði hér á landi og í Bandaríkjunum. Hún hefur staðið fyrir sýningum íslenskra listamanna í Metro politan Museum, þar á meðal sýningu sem nú stendur yfir í safninu á verkum Ragnars Kjartanssonar. „Metro­ politan á verk eftir Rúrí, Guðjón Ketilsson, Katrínu Sigurðardóttur, Hallgrím Helgason og Birgi Andr­ ésson og þau eiga örugglega eftir að verða f leiri. Ég hef hvatt söfn og listaverkasafnara til að veita íslenskri myndlist athygli,“ segir hún. Pari kom fyrst til Íslands árið 1982 og hefur komið hingað marg­ oft síðan. Frá 2012 hefur hún komið tvisvar á ári og á marga vini hér. „Listalífið á Íslandi er kraftmikið og spennandi og það er magnað hversu margir sinna listinni,“ segir hún. Á góða vini hér á landi Pari hyggst ferðast um landið og meðal annars skoða sýninguna Nr. 3 Umhverfing sem haldin er á Snæfellsnesi á vegum Akademíu skynjunarinnar en þar sýna yfir 70 myndlistarmenn verk sín. Hún ætlar einnig að heimsækja vini í Skagafirðinum. „Ég er svo lánsöm að eiga góða vini á Íslandi og mér finnst gott að vera hér, þetta er fal­ legt land,“ segir hún. „Ég hef fyrir venju að ferðast á hverju ári. Ann­ ars vegar til landa sem ég hef áður komið til og vil kynnast betur og er Ísland eitt af þeim. Og hins vegar til landa sem ég hef aldrei komið til áður. Í fyrra fór ég til Indlands og næsta ár fer ég til Víetnam sem verður mjög tilfinningaþrungið ferðalag fyrir mig sem Bandaríkja­ mann sem ólst upp á tímum Víet­ namstríðsins.“ Ný tækifæri fyrir íslenska myndlistarmenn Pari Stave, list­ fræðingur og deildarstjóri ný­ listadeildar Metro­ politan Museum í New York, ræddi við um 40 mynd­ listarmenn hér á landi og kynnti sér verk þeirra. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is BÆKUR Boðun Guðmundar Eiríkur Stephensen Útgefandi: Bjartur Blaðsíður: 159 Fy rst valdi Guð Maríu nokkra mey, fátæka ungl­ ingsstúlku, til að bera son sinn undir belti. Hún ól svo Jesú, frelsara mann­ kyns, sem tók á sig syndir okkar og færði okkur sy ndug u m mönnu m tækifæri til að frelsast í gegnum trúna. Nú um 2019 árum síðar hefur Guð séð ástæðu til að endurtaka leik inn. Kannski hafa of fáir haf i tekið þessari stór feng leg u g jöf hans opnum örmum því mennirnir eru svo sannarlega enn syndugar skepnur. En í þetta skiptið verða hlutirnir öðru­ vísi. Það er ekki ung kona sem Guð felur þetta gífurlega ábyrgðarmikla hlutverk. Nei, nú skal það vera mið­ aldra, drykkfelldur píanókennari sem á erfitt með að mynda náið samband við fólkið í kringum sig: Guðmundur. Hugmyndin að sögunni er ein­ staklega skemmtileg og höfundi tekst vel að vinna úr henni. Atburða­ rásin er hröð sem fer sögunni afar vel og verður bókin f ljót­ lesin fyrir vikið. Húmor einkennir frásögnina í gegn­ um alla bókina og bætir heldur í þegar skemmti­ legast a persóna hennar stígur á svið. Erkiengillinn Gabríel er þannig óvenju misheppn­ aður af engli að vera en hann birtist inni í herbergi Guðmundar eina nóttina til að færa honum þau tíðindi að Messías sé á leiðinni og það í gegnum hann. Því miður hefur engillinn misreiknað sig eitthvað því Guð­ mundur er kominn nokkrar vikur á leið og hafði fyrir löngu gert sér grein fyrir eigin þungun. Vegna mis­ takanna þorir Gabríel ekki að fara strax aftur til himna. Guð er vissu­ lega náðugur en stundum tekur það hann smá tíma að láta reiðina renna af sér áður en hann getur fyrirgefið. Gabríel fær því að búa með Guð­ mundi á meðan á meðgöngunni stendur og kynnist í gegnum hann breyskleika hinna syndugu manna. Þrátt fyrir húmorinn og léttleika sögunnar er ekki laust við að maður vorkenni Guðmundi og fleiri aumk­ unarverðum persónum í gegnum lesturinn. Höfundur hittir raunar sjálfur naglann á höfuðið: „Fátt er brjóstumkennanlegra en óléttur miðaldra karlmaður.“ Þessi fyrsta skáldsaga Eiríks Stephensen er einstaklega vel heppnuð. Hún er afar skemmtileg og ekki laus við súrrealisma, sérstak­ lega í síðustu köflunum. Það verður gaman að fá fleiri sögur frá Eiríki í framtíðinni. Óttar Kolbeinsson Proppé NIÐURSTAÐA: Einstaklega vel heppnuð fyrsta skáldsaga. Skemmtileg og fyndin. Skemmtisaga af Guðs náð Eiríkur Stephensen. Honum tekst einkar vel upp í fyrstu skáldsögu sinni. 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R30 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 1 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :0 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 8 6 -0 5 8 4 2 3 8 6 -0 4 4 8 2 3 8 6 -0 3 0 C 2 3 8 6 -0 1 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.