Fréttablaðið - 09.08.2019, Side 2
Veður
Norðlæg átt 5-13 m/s. Lengst
af rigning eða súld á Norður- og
Austurlandi, hiti 5 til 10 stig. Yfir-
leitt léttskýjað sunnan heiða með
hita 12 til 17 stig yfir daginn.
SJÁ SÍÐU 16
www.artasan.is
Fæst í næsta
apóteki og helstu
stórmörkuðum
Mundir þú eftir að
bursta og skola í
morgun?
Tannlæknar mæla með GUM tannvörum
GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51
Baráttufólk prýðir strætisvagn
SKIPULAGSMÁL Tillaga Batterísins –
arkitekta að 5.500 fermetra nýbygg-
ingu Kársnesskóla við Skólagerði
hefur verið samþykkt í bæjarráði
Kópavogs.
Húsnæði Kársnesskóla var rifið
í fyrrahaust vegna raka- og myglu-
vandamála. Meginbyggingin nýja
á að verða tveggja og þriggja hæða.
Í skólabyggingunni verður sam-
rekinn leik- og grunnskóli ásamt
frístund. „Það eru gríðarlega spenn-
andi tímar fram undan,“ segir Björg
Baldursdóttir, skólastjóri Kársnes-
skóla, við Fréttablaðið þegar niður-
rifið var að hefjast í fyrra. – gar
Kárssnesskóli
endurbyggður
Skólinn rifinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SKIPULAGSMÁL „Það er svo gjörsam-
lega út í hött að Minjastofnun geti
stoppað mig af þannig að ég geti
ekki einu sinni losað mig við lóð-
ina,“ segir Hjörleifur Hallgrímsson,
eigandi Aðalstrætis 12b á Akureyri.
Eins og kom fram í Fréttablað-
inu í apríl í fyrra hefur Hjörleifur
viljað byggja íbúðarhús á lóð sinni
á Aðalstræti sem hann keypti fyrir
sjö árum. Sjálfur bjó hann í æsku
í húsi sem þar stóð og hafði áður
hýst Hótel Akureyri. Haustið 2017
var hann tilbúinn að hefja jarðvegs-
framkvæmdir og búið að mæla út
fyrir húsi þegar hann fékk tölvupóst
frá skipulagsstjóra bæjarins um að
fyrst þyrfti að ganga úr skugga um
hvort fornleifar leyndust þar. Var
þetta að kröfu Minjastofnunar og
átti Hjörleifur að kosta uppgröft á
lóðinni.
„En mér kemur þetta fjárann
ekkert við og ég borga ekki fyrir
neinn uppgröft. Ég get gefið þeim
leyfi til að grafa en
ég fer ekki að borga
nærri milljón enda
er ég ellilífeyrisþegi
og hef ekkert efni á
því,“ segir Hjörleifur.
Að sögn Hjörleifs
er hann nú í sjálf-
heldu. „Ég er orðinn
það gamall að héðan
af fer ég ekki að
byggja sjálfur og það
kaupir enginn lóðina
af mér með þessari
kvöð á henni,“ segir
hann.
Hjörleifur, sem nú
er 82 ára, kveðst hafa
leitað til mennta- og menningar-
málaráðuneytisins, til að fá lausn
á málinu. Hann fékk Jón Hjaltason
sagnfræðing, sem skrifað hefur um
sögu Akureyrar, til að senda ráðu-
neytinu greinargerð. Hún er frá því
í lok apríl í vor. Jón rekur byggingar-
söguna á lóðinni í
bréfi sínu.
„Má ég hundur
heita ef þarna finn-
ast fornleifar,“ segir
Jón. Mjó strand-
l e n g j a n n e ð a n
Naustahöfða haf i
ekki freistað nokk-
urs manns í bænda-
samfélagi fyrri tíma.
„Niðurstaðan er því
sú að ég er 99,9 pró-
sent (mig langar til
að segja 100 pró-
sent en finnst það
heldur digurbarka-
legt) viss um að á
lóðinni við Aðalstræti 12b finnast
engar fornleifar, sama hversu ítar-
lega væri þar leitað og grafið.“
Hjörleifur kveðst hafa hitt Lilju
Alfreðsdóttur menningarmálaráð-
herra þegar hún kom í vor til Akur-
eyrar til að opna sýningu þar. Það
hafi verið eftir að hann sendi ráð-
herranum bréf ásamt greinargerð
Jóns Hjaltasonar. „Þá lofaði hún mér
því að taka þetta fyrir um leið og
þingið væri búið. Ég hef ekki heyrt
í henni enn þá þótt ég sé margoft
búinn að reyna að ná í hana. Mér
þykir verst að Lilja svarar mér ekk-
ert núna.“ gar@frettabladid.is
Öldungur í sjálfheldu
vill efndir frá ráðherra
Hjörleifur Hallgrímsson á Akureyri segist sitja uppi með verðlausa lóð vegna
kröfu um fornleifauppgröft. Sagnfræðingur er 99,9 prósent viss um að engar
fornleifar séu á lóðinni. Hjörleifur segir menningarmálaráðherra hunsa sig.
Hjörleifur Hallgrímsson vill byggja íbúðarhús á lóðinni á Aðalstræti 12b,
staðan er enn óbreytt frá því 13. apríl í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Veður
Í dag verður austlæg átt á landinu og
víða munu sjást tveggja stafa hita-
tölur. Rigna mun suðaustanlands
eftir hádegi, en að öðru leyti verður
þurrt að mestu. sjá síðu 20
Furðuverur á Fanfest
Tölvuleikjahátíðin Eve Fanfest hófst
í gær. Um er að ræða ráðstefnu tölvu
leikjaframleiðandans CCP. Ráðstefn
an laðar að sér á annað þúsund ferða
-
manna sem lifa, spila og hrærast í he
imi íslenska tölvuleiksins Eve Onlin
e þar sem fólk ferðast um á geimskip
um og stundum brýst út allsherjar
geimstríð. Þessar tvær eru aðdáendu
r leiksins og voru komnar í Hörpu ti
l að taka þátt í viðburðaríkri dagskr
á ráðstefnunnar. Fréttablaðið/sigtrygg
ur ari
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grill
budin.is - Sími 554 0400
Grillbúðin
Frá Þýskalandi
Nr. 12952 - Án gashellu - Svart
79.900
Opið virka daga 11-18
Laugardaga 11-16
• Afl 10,5 KW
• 3 brennarar
• Brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveikja í öllum tökkum
• Tvöfalt einangrað lok
• Stór posulínshúðuð efri grind
• Hitamælir
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Grillflötur 65 x 44 cm
Niðurfellanleg
hliðarborð
Vönduð yfirbreiðsla að
verðmæti kr. 6.990 fylgir
l i
skipulagsmál „Það er svo galið allt
saman í kring um þetta og ég, sem
er kominn á gamals aldur, er orðinn
hundþreyttur á þessu veseni,“ segir
Hjörleifur Hallgríms sem stendur
í ströngu við að fá að byggja á lóð
sinni í innbæ Akureyrar.
Hjörleifur keypti fyrir sex árum
lóðina Aðalstræti 12b. „Ég keypti
þessa lóð því þarna eru æskustöðv-
ar mínar og mig langar kannski að
flytja þarna inn,“ segir hann. Á lóð-
inni stóð Hótel Akureyri. Eftir að
hótelrekstrinum var hætt bjó Hjör-
leifur þar með foreldrum sínum eins
og fleiri. Húsið brann til kaldra kola
á sjötta áratug síðustu aldar.
„Ég má byggja hús sem er 117 fer-
metrar á tveimur hæðum með risi
og hálfum kjallara en hef staðið í
stríði við skipulagsdeild Akureyrar
öll þess ár um að fá að vera með
fjórar litlar íbúðir,“ segir Hjörleifur
sem kveðst hafa kært synjunina um
leyfi fyrir íbúðunum fjórum.
„En ég ætlaði samt að byrja að
grafa í haust og láta bara slag standa
en þá var mér sagt að Minjastofnun
stoppi það af á þeim forsendum að
það sé talið að það séu fornminjar
undir í lóðinni,“ segir Hjörleifur.
Ofan í tafirnar eigi hann að borga
fornleifarannsóknina úr eigin vasa.
Rúnar Leifsson, minjavörður
Norðurlands eystra, segir í bréfi
til Hallgríms að könnunarskurður
sumarið 2015 hafi leitt í ljós vegg
undir brunarústum Hótels Akur-
eyrar. Veggurinn sé hugsanlega
úr eldri byggingu. Á lóðinni hafi
meðal annars verið hluti Konungs-
verslunarhúsanna gömlu. „Til að
skera úr um eðli og dreifingu forn-
leifa sem leynast undir sverði á lóð
Aðalstrætis 12b þarf að kanna nánar
svæðið frekar með skurðum.“
„Mér er sagt að gröfturinn myndi
kosta tæpa milljón. Ég á að leggja
út fyrir þessu en ég er ellilífeyris-
þegi með tæpar 250 þúsund krónur
á mánuði og hef engin efni á því,“
segir Hjörleifur sem bað um sundur-
liðaða kostnaðaráætlun. Samkvæmt
henni á að greiða laun, dagpeninga,
akstur, gistingu og fæði fornleifa-
fræðinga sem ætla að vinna í sam-
tals 32 stundir á lóðinni. Síðan bæt-
ast við sextán stundir í úrvinnslu.
Í bréfi minjavarðar er vitnað til
laga um menningarminjar frá árinu
2012: „Framkvæmdaaðili greiðir
kostnað við rannsóknir á fornleifum
sem Minjastofnun Íslands ákveður
að séu nauðsynlegar.“ Og alls óvíst
er að Hjörleifur sleppi með þær 927
þúsund krónur sem áætlað er að
könnunaruppgröfturinn kosti.
„Ákvörðun um hvort ráðast þurfi
í frekari mótvægisaðgerðir mun
byggja á niðurstöðum þessarar
könnunar,“ segir í bréfi minjavarð-
arins. „Eftir atvikum er mögulegt að
krafa verði gerð um heildaruppgröft
minja sem kunna að koma í ljós.“
Hjörleifur segist alveg stopp.
„Þetta eru þvílík ólög. Það hlýtur
að skipta máli hvort um er að ræða
stöndug fyrirtæki eða ellilífeyris-
þega.“ gar@frettabladid.is
Ellilífeyrisþega gert að
kosta fornleifauppgröft
Hjörleifur Hallgríms á að greiða laun
, akstur, dagpeninga, gistingu og fæð
i forn-
leifafræðinga sem kanna hvort minj
ar leynist á byggingarlóð hans á Aku
reyri.
Hjörleifur segist telja það ólög sem l
eggi slíkan kostnað á herðar ellilífey
risþega.
Hjörleifur Hallgríms bjó í æsku á að
alstræti 12b og vill fá að byggja þar
hús en
kveðst vera orðinn hundþreyttur á
ljónum í veginum. Fréttablaðið/auð
unn
Ég keypti þessa lóð
því þarna eru
æskustöðvar mínar.
Hjörleifur Hallgríms,
eigandi Aðalstrætis 12b
jaFNRÉTTismál Stúdentaráð HÍ
hefur breytt titlum og heitum í
lögum ráðsins með það fyrir augum
að draga úr kynjaðri orðræðu. Laga-
breytingin var samþykkt einróma
á síðasta fundi Stúdentaráðs sem
haldinn var í vikunni.
Í tilkynningu frá Stúdentaráði
segir að með „kynjaðri orðræðu“
sé átt við titla og heiti sem vísa
óþarflega í eitt kyn umfram önnur.
Breytingin sé gerð til þess að ráðið
geti betur sinnt hlutverki sínu sem
hagsmunaafl allra stúdenta. Í til-
kynningunni segir enn fremur að
titlabreytingin sé smátt en mikil-
vægt skref. Embættistitlar hafi
áhrif á reynsluheim nemenda, bæði
innan og utan ráðsins.
Ráðið vonast til þess að með
breytingunni fylgi vitundarvakn-
ing o að stofnanir og fyrirtæki
sem nota kynjað tungumál upp-
færi það til að tryggja þátttöku og
aðgengi allra. „Þau sem sitja í for-
svari hafa vald til að leysa af hólmi
kynjaða orðræðu innan stofnana
og fyrirtækja,“ segir Elísabet Brynj-
arsdóttir, forseti Stúdentaráðs, um
málið.
Elísabet viðurkennir að í fyrstu
hafi hún hugsað til orðanna „Konur
eru líka menn“. Málið sé hins vegar
ekki svo einfalt. Hún segir að orð
í tungumálinu séu gildishlaðin og
vísi þannig meira í annað kynið,
tungumálið sé frjótt og því sé engin
ástæða fyrir því að nota titla sem
eru kynjaðir. „Þessi breyting felur
ekki í sér skerðingu til neins, aðeins
að fleiri geta speglað sig í starfsheit-
um sínum,“ bendir Elísabet á. – gþs
Stúdentaráð
gerir titla sína
ókynjaða
Elísabet brynj-
arsdóttir, forseti
stúdentaráðs.
ViðskipTi Toll-
ar á ýmsum
matvörum frá
ríkjum Evr-
ópusambands-
ins lækka 1. maí
næstkomandi, þegar
tollasamningur Íslands
og ESB sem gerður var haustið 2015,
tekur gildi. Tollar á hina ýmsu vöru-
flokka falla niður, svo sem á pítsur,
fyllt pasta, ýmsar súkkulaðivörur
og kex. Oftast er um magntolla að
ræða, fasta krónutölu sem leggst
ofan á hvert kíló viðkomandi vöru.
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjóri Félags atvinnurekenda, segir
að verð á viðkomandi vörum ætti
að lækka eftir tollabreytinguna,
lækkunin verði þó í einhverjum til-
vikum ekki mikil. Hann bendir á að
það taki tíma fyrir verðlækkanir að
koma fram. – gþs
Tollar á pítsur
falla niður
1 3 . a p R í l 2 0 1 8 F Ö s T u D
a g u R
2
F R É T T i R ∙ F R É T T a B l a ð i
ð
Má ég hundur heita
ef þarna finnast
fornleifar.
Jón Hjaltason
sagnfræðingur
Fleiri myndir af Hinsegin dögum eru á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
Ugla Stefanía Jónsdóttir, Anna Kristjánsdóttir, Hörður Torfason og Margrét
Pála Ólafsdóttir eru meðal þeirra sem prýða vagn Strætó bs. í tilefni af 20 ára
afmæli Hinsegin daga. Hinsegin dagar voru settir í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
MENNING Alþjóðlegu mannúðar-
samtökin Læknar án landamæra,
MSF, munu taka þátt í tónleika-
haldi breska tónlistarmannsins
Eds Sheeran á Laugardalsvelli á
morgun og sunnudag. Samtökin
munu kynna störf sín með sýningu
sem sett verður upp á tónleika-
svæðinu. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá MSF.
„Ég bauð MSF með í tónleika-
ferðalagið til að sýna ykkur þá
neyðaraðstoð sem þeir veita víðs
vegar um heim, oft á hættulegustu
og afskekktustu stöðum sem til
eru. Ég bið um að þú takir þér tíma
til að ræða við MSF og hjálpir þeim
við að bjarga mannslífum með
því að styðja starf þeirra,“ segir
Sheeran.
Sheeran kom til landsins í fyrri-
nótt og samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins mun hann dvelja
dá góða stund á Ís landi og njóta ís-
lenskrar náttúru.
Mikil eftirvænting ríkir fyrir
tónleikana. Ís leifur Þór halls son
hjá Senu Live segir söluna á seinni
tón leika Sheerans hafa tekið kipp
á undan förnum dögum.
„Ég veit auð vitað ekki hvort það
verður upp selt en ef það verða
20-25 þúsund manns á seinni tón-
leikunum erum við að tala um
50-55 þúsund manns í heildina en
það eru 15 prósent af þjóðinni og
það bara hlýtur að vera heims met,“
segir Ís leifur. – ab, oæg
MSF fylgja
Ed Sheeran
Sheeran á tónleikum í Ungverja-
landi í fyrradag. NORDICPHOTOS/GETTY
9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
8
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
8
F
-3
9
F
0
2
3
8
F
-3
8
B
4
2
3
8
F
-3
7
7
8
2
3
8
F
-3
6
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K