Fréttablaðið - 09.08.2019, Page 10

Fréttablaðið - 09.08.2019, Page 10
Ég hefði auðveld- lega getað valið 30-35 manna hóp sem er jákvætt, það segir að það séu margir leikmenn sem hafa staðið sig vel. Jón Þór Hauksson FÓTBOLTI Aston Villa staðfesti í gær að félagið hefði komist að sam­ komulagi við landsliðsmanninn Birki Bjarnason um að rifta samn­ ingi hans. Birkir mun því ekki leika með liðinu í ensku úrvalsdeildinni þar sem tímabilið hefst í kvöld.  Birkir kom lítið við sögu undir lok tímabilsins í fyrra þegar Aston Villa komst aftur upp í úrvalsdeild­ ina eftir þriggja ára fjarveru og var ljóst að tækifærin yrðu af skornum skammti í vetur eftir að Villa samdi við tólf leikmenn í sumar. Íslensk i landsliðsmaður inn samdi við Aston Villa í janúar árið 2017 og lék því í tvö og hálft ár með félaginu. Alls lék Birkir 53 leiki fyrir Aston Villa í öllum keppnum og skoraði í þeim sex mörk. Óvíst er hvert næsta skref Birkis verður en hann hefur áður leikið með Basel í Sviss, Pescara og Samp­ doria á Ítalíu, Standard Liége í Belgíu og BodØ/Glimt og Viking í Noregi. – kpt Birkir laus allra mála hjá Villa Birkir lék alls 53 leiki fyrir Aston Villa. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Merkilegt nokk þá ríkir spenna í Newcastle fyrir komandi tímabili. Það er langt síðan það hefur gerst. Þegar Steve Bruce var kynntur sem stjóri fór allt í bál og brand meðal stuðningsmanna enn einu sinni. Nú ríkir bjartsýni en sjö leikmenn komu til félagsins meðal annars, Andy Carroll, uppá­ haldsleikmaður margra stuðnings­ manna. Félagið eyddi um 60 millj­ ónum punda í nýja leikmenn og skyndilega fór sólin að skína á ný á Tyneside eftir heldur dimma tíma. – bbh Spenna á Tyneside Alan Shearer að fagna. Goðsögn í Newcastle. 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT FÓTBOLTI  Ed Woodward er ekki sá vinsælasti í Manchester eftir gær­ daginn. Þá varð eitt vinsælasta myllumerki Twitter #Woodward­ Out en stuðningsmenn Manchest­ er United gjörsamlega gengu af göf lunum á tímabili á samskipta­ miðlinum þegar ljóst var að það var enginn að koma á lokadegi félaga­ skiptagluggans. Ed Woodward, framkvæmda­ stjóri Manchester United, sem sér um leikmannaskipti félagsins er að verða að einhvers konar athlægi í fótboltaheiminum en fátt sem hann gerir endar vel fyrir Manc­ hester United. Vissulega var stoppað í götin sem voru á vörn Manchester United með tveimur risakaupum á Harry Maguire og Aaron Wan­Bissaka en stuðningsmenn Manchester United vildu meira. Þeir misstu Ander Herr era og sóknarmann­ inn Romelo Lukaku og fengu lítið í staðinn þrátt fyrir orðróm um annað. Woodward hefur nú verið við stjórnvölinn hjá einu stærsta félagi heims í hartnær sex ár eftir að hann tók við stjórnartaumunum af David Gill árið 2013. Woodward var áður í bankageiranum og starf­ aði fyrir PricewaterhouseCoopers og JP Morgan. Hann hjálpaði til við að Glazer­fjölskyldan eignaðist Man chester United en það voru fyrstu kynni hans af fótbolta. Hann er sagður hugsa meira um árangur utan vallar en innan en engum dylst að Manchester United þénar vel á samningum sem Woodward gerir. Ótrúlegir samn­ ingar við Adidas og Chevrolet sýna það. Hann veitir sjaldan viðtöl og síðasta stóra viðtalið við hann var fyrir fjórum árum. Margir leikmenn voru orðaðir við Manchester United í þessum glugga líkt og áður en Woodward kom tómhentur til baka. Síðan hann tók við stjórn félagsins hefur það færst f jær Englands­ meistaratitlinum og er á sínum fjórða stjóra síðan Alex Ferguson kvaddi. Honum var lýst af mörgum sem sérfræðingi í klúðri. Allavega innan vallar. Snilld hans utan hans í markaðsmálum er óumdeild. – bbh Enn beinist athyglin að Woodward Ed Woodward og Jose Mourinho. Merkilegt nokk vildi Woodward ekki borga 60 milljónir fyrir Harry Maguire í fyrra að beiðni Mourinhos. FÓTBOLTI Jón Þór Hauksson, þjálf­ ari íslenska kvennalandsliðsins, tilkynnti í gær hvaða 23 leikmenn hann hefði valið í leiki Íslands gegn Ungverjalandi og Slóvakíu í undan­ keppni EM 2021. Þetta verða fyrstu leikir Íslands í undankeppninni og fara þeir báðir fram á Laugardals­ velli og á sama tíma fyrstu móts­ leikir Íslands undir stjórn Jóns Þórs og Ians Jeffs. Þá eru þetta fyrstu leikir liðsins á heimavelli eftir að Jón Þór og Ian tóku við liðinu af Frey Alexanderssyni síðasta haust. Ísland hefur leik gegn Ungverja­ landi fimmtudaginn 29. ágúst og verður það í sjötta sinn sem liðin mætast. Til þessa hefur Ísland unnið alla fimm leikina, skorað sautján mörk og aðeins fengið á sig tvö, annað þeirra þegar liðin mætt­ ust síðast árið 2013 og Ísland vann 4­1 sigur. Fjórum dögum síðar tekur Ísland á móti Slóvakíu og er það þriðja viðureign liðanna, til þessa hefur Ísland unnið báða leikina og skorað sex mörk gegn aðeins einu. Íslenska kvennalandsliðið er að reyna að komast inn í lokakeppni Evrópumótsins fjórða skiptið í röð. „Það er alltaf pressa á okkur að vinna heimaleikina, við ætlum okkur í lokakeppnina og það segir sig sjálft að við þurfum að vera dug­ leg að byrja riðilinn vel og gera vel á heimavelli í þessari undankeppni.“ Tvær breytingar eru á lands­ liðshópnum á milli leikja, Svava Rós Guðmundsdóttir, framherji Kristianstad, kemur aftur inn í hópinn, eftir að hafa misst af síðasta verkefni vegna meiðsla, á kostnað Söndru Maríu Jessen, leikmanns Bayer Leverkusen. Þá kemur Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður Fylkis, inn í hópinn í stað Guðbjargar Gunnarsdóttur sem er ólétt og gefur því ekki kost á sér. Cecilía sem fagnaði sextán ára afmæli sínu á dögunum hefur verið í U17 ára liði Íslands undanfarin ár en er nú í fyrsta sinn kölluð inn í landsliðið. „Ég hef ekki unnið með Ceci­ líu en er mjög spenntur fyrir því, ég hef hitt og rætt við fólkið í kringum hana í aðdraganda þess að við völdum hana í hópinn. Hún er auðvitað ung og óreynd á þessu stigi en er með tvo reynslumikla markmenn með sér sem eiga eftir að hjálpa henni gríðarlega mikið. Í Guðbjörgu erum við að missa bæði frábæran markmann og frábæran einstakling innan hópsins sem er erfitt á þessum tímapunkti en við gleðjumst fyrst og fremst fyrir hennar hönd,“ sagði Jón Þór sem sagðist aðspurður vera búinn að ákveða hver stæði í markinu gegn Ungverjalandi. „Við erum búnir að taka ákvörð­ un. Markmannsstaðan er gríðar­ lega mikilvæg í fótbolta og þegar við tökum við liðinu er Guðbjörg nýbúin í stórri aðgerð vegna meiðsla sem höfðu verið að plaga hana í svolítinn tíma. Það var ekki alveg ljóst hvernig hún kæmi aftur úr þessari aðgerð eftir þessi meiðsli og við fórum strax að skoða það hvaða möguleikar væru í stöðunni og að undirbúa það ef hún kæmi ekki aftur sem hún gerði svo vel og stóð sig frábærlega með okkur gegn Finnum í sumar.“ Alls hefur íslenska kvennalands­ liðið leikið átta leiki undir stjórn nýja þjálfarateymisins sem hefur nýtt tímann í að skoða vel hvaða leikmenn yrðu fyrir valinu. „Við höfum nýtt æfingaleikina vel á þessu ári til að undirbúa þetta verkefni, það hafa margir leikmenn fengið  tækifæri og náð að skoða leikmenn í hinum ýmsu stöðum. Hópurinn er núna tilbúinn, við höfum allan tímann verið að undir­ búa fyrir þessa undankeppni og það er  komin mikil eftirvænting innan hópsins og hjá þjálfarateym­ inu,“ sagði Jón Þór og hélt áfram: „ Á milli allra leikja höfum við breytt aðeins til  en á sama tíma höfum við haldið í ákveðinn kjarna, það er góð blanda af ungum og eldri leikmönnum í hópnum. Auk þess  er fullt af leikmönnum utan hóps sem hafa staðið sig frá­ bærlega í verkefnum með okkur. Samkeppnin er mikil sem er jákvætt fyrir þjálfara. Ég hefði auð­ veldlega getað valið 30­35 manna hóp sem er jákvætt, það segir að það séu margir leikmenn sem hafa staðið sig vel.“ Cloé Lacassé, framherji ÍBV sem fékk íslenskt vegabréf á dögunum, er ekki komin með alþjóðlega leik­ heimild og gat því ekki tekið þátt en þetta staðfesti Jón Þór í gær. Hann segist vera spenntur fyrir því að vinna með Cloé sem þekkir vel til Ians Jeffs, aðstoðarþjálfara Jóns Þórs. „Hún kom ekki til greina í þetta verkefni en við þekkjum það vel hvað hún getur fært okkur eftir samstarf hennar og Ians í Eyjum þannig að við vitum að hverju við göngum. Hvenær sem það verður að hún komi til greina þá munum við skoða það.“ kristinnpall@frettabladid.is Förum bjartsýn inn í leikina Tilkynnt var í gær hvaða 23 leikmenn Jón Þór Hauksson hefur valið fyrir fyrstu undankeppni sína sem þjálfari kvennalandsliðsins. Sextán ára markvörður, Cecilía Rán Rúnarsdóttir er í hópnum í fyrsta sinn. Jón Þór var bjartsýnn þegar landsliðshópurinn fyrir næsta verkefni var tilkynntur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 0 9 -0 8 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 8 F -4 8 C 0 2 3 8 F -4 7 8 4 2 3 8 F -4 6 4 8 2 3 8 F -4 5 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.