Fréttablaðið - 09.08.2019, Qupperneq 14
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Okkar ástkæri
Sigurvin Bjarnason
flugstjóri
lést af slysförum þann 27. júlí.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
15. ágúst kl. 15. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Flugbjörgunarsveitina Hellu.
Svanhildur Jónsdóttir
Ólöf S. Sigurðardóttir
Bjarni Kristmundsson
Jón Þór Sigurvinsson Guðrún Þorgeirsdóttir
Berglind Ólöf Sigurvinsdóttir Jón Ómar Gunnarsson
Kristín Björg Sigurvinsdóttir Ívar Elí Sveinsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Stefaníu Ragnheiðar
Pálsdóttur
Hrauntungu 6, Kópavogi,
fjöllistakonu.
Sverrir Arnar Lúthersson
Jón Arnar Sverrisson Erla Sigurðardóttir
Sigurður Valur Sverrisson
Ragnar Sverrisson Oddný Guðnadóttir
Auður Freyja Sverrisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát
og útför okkar elskaða
Einars Boga Sigurðssonar
Suður-Reykjum 3,
Mosfellsbæ.
Kristján Ingi Jónsson
Ágúst Rafn Einarsson Rakel Guðmundsdóttir
Matthías Einarsson Clare Patricia Dilworth
Erna Einarsdóttir
Sigurður Ágúst Finnbogason Guðríður Einarsdóttir
barnabörn og aðrir aðstandendur.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð, hlýhug og vináttu við andlát
og útför eiginkonu minnar, móður,
ömmu og langömmu,
Þóru Valgerðar Antonsdóttur
Friðþjófur Sigurðsson, Ólafur Þór Ólafsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðmundur Kristinsson
stálsmíðameistari og
slökkviliðsstjóri,
lést á St. Franciskusspítala í
Stykkishólmi 6. ágúst síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju
miðvikudaginn 14. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, þeim sem
vilja minnast hans er bent á tækjasjóð slökkviliðs
Stykkishólms, reiknnr. 0309-26-800, kt. 6202697009.
Birna Sævarsdóttir
Guðmundur Sævar
Gunnar Björn
Kristinn Einar
Linda Bergmann
tengdabörn og afabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir,
dóttir og tengdadóttir,
Ingiríður Blöndal
Rjúpufelli 22,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala hinn
26. júlí sl. Útför fer fram frá Fella- og
Hólakirkju þann 13. ágúst nk. kl. 15. Við viljum færa
innilegar þakkir til allra sem hlúðu að henni í erfiðum
veikindum. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim,
sem vildu minnast hennar, er bent á Ljónshjarta.
Hjálmar Diego Haðarson
Soffía Erla, Jónas Bergmann, Hjálmar Arnar
Sigríður og Jónas Blöndal
Soffía Auður Diego og Höður Guðlaugsson
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma, systir og vinur,
Ellý Sæunn Reimarsdóttir
er látin.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Við þökkum auðsýnda samúð.
Inga Kristín Vilbergsdóttir Arnþór Örlygsson
Íris Alma Vilbergsdóttir
Linda Rós Vilbergsdóttir
Reimar Árni Guðmundsson Sunneva Lynd Birgisdóttir
Júlía Fanney, Ísabella Alexandra, Sóley Hvítfeld,
Ellý Sæunn, Anna Lilja
Örlygur Vilberg, Berglind Ylfa
Halldór Reimarsson, Hlynur Reimarsson,
Sigurbjörn Reimarsson og fjölskyldur
Vilberg Pálmarsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Ragnar S. Halldórsson
verkfræðingur og
fyrrverandi forstjóri,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 7. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Margrét K. Sigurðardóttir
Kristín Vala Ragnarsdóttir
Halldór Páll Ragnarsson Jóhanna H. Jónsdóttir
Sigurður R. Ragnarsson Þórdís Kjartansdóttir
Margrét Dóra Ragnarsdóttir Hjálmar Gíslason
og barnabörn.
Tuttugu ár eru síðan Vogafjós opnaði fyrst dyr sínar fyrir gestum og gangandi. Veitingastaðurinn er rómaður, kýrnar skemmtilegar fyrir krakkana og útsýnið
af pallinum engu líkt. Það er vissulega
gaman að koma og skoða eina fegurstu
sveit landsins og gott að smakka á því
sem Vogafjós hefur upp á að bjóða.
Ólöf Hallgrímsdóttir, einn eigenda
Vogafjóss, segir að þetta verkefni hafi
aðeins undið upp á sig á jákvæðan máta.
„Þetta var hugsað sem frekar rólegt og
eitthvað kósí til að byrja með. Ein
hvers konar hliðarverkefni en auðvitað
reyndi maður að vanda sig og gera vel
það sem maður var að gera,“ segir hún.
Á afmælishelgi Vogafjóss var slegið
upp veislu. Fyrst komu Hera og Bjössi
Thor gítarleikari og tóku lagið um leið
og nýbygging Vogafjóss var tekin í notk
un. Á laugardeginum var opið hús þar
sem múgur og margmenni mætti til að
gleðjast með og hljómsveitin Hver tók
síðan lagið um kvöldið. Boðið var upp
á alls konar kræsingar úr eldhúsinu og
kokteilar og annað f læddi frá barnum.
Vogabú hefur verið í eigu sömu fjöl
skyldu í yfir hundrað ár. Kýr og kindur
voru uppistaðan til að byrja með, ásamt
nokkrum hænum, tveimur hestum og
hundi. Árið 1999 var nýtt fjós byggt og
eru nú um 40 nautgripir í fjósinu. Kaffi
húsið Vogafjós var svo byggt innan við
fjósið. Þar fást ljúffengar heimagerðar
veitingar en einnig er hægt að sjá kýrnar
mjólkaðar og jafnvel bragða á glænýrri
mjólk beint af spena. Mjólkað er tvisvar
á dag, klukkan 7.30 á morgnana og 17.30.
„Við höfum gert þetta hægt og bít
andi. Erum búin að byggja við þrisvar
og stækka á þessum 20 árum. En það
hefur alltaf verið tekið í skrefum og
ekkert óðagot,“ segir hún.
Ólöf segir að hún horfi björtum
augum á næstu 20 ár. Þau fyrri hafi
verið það skemmtileg að það sé ekki
nein ástæða til annars. „Ég held að við
værum ekki í þessu ennþá ef okkur
fyndist þetta ekki ennþá spennandi og
skemmtilegt. Þetta er auðvitað gríðar
lega mikil vinna og það þarf að leggja
mikið á sig.
Það eru engin sumarfrí í ferða
þjónustunni. En þetta er eitthvað sem
maður velur sér og fer í þennan gír. Ég
lít ekkert endilega á þetta eins og ég sé
alltaf í vinnu, þetta er það fjölbreytt þó
auðvitað sé það misskemmtilegt sem
maður er að fást við, en oftast er það nú
eitthvað skemmtilegt sem maður er að
fást við.“ benediktboas@frettabladid.is
Vogafjós orðið tvítugt
Vogafjós í Mývatnssveit er 20 ára og hefur þeim tímamótum verið fagnað með ýmsum
hætti. Meðal annars var nýbygging tekin í notkun og stefnt er að frekari endurbótum.
Efri röð f.v.: Einar og Hallgrímur Leifssynir, Skarphéðinn Reynir og Arnþrúður Anna Jónsbörn. Neðri röð f.v.: Gunnhildur Stefáns-
dóttir, Leifur Hallgrímsson, Jón Reynir Sigurjónsson og Ólöf Hallgrímsdóttir. Fyrirsætan á borðinu heitir Kveikur. MYND/BB
9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
9
-0
8
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
8
F
-4
3
D
0
2
3
8
F
-4
2
9
4
2
3
8
F
-4
1
5
8
2
3
8
F
-4
0
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K