Fréttablaðið - 27.06.2019, Síða 6
Aðgerðaáætlunin felur í
sér skattahækkanir á sæta
gosdrykki og sælgæti, ekki
kökur, kex eða sykraðar
mjólkurvörur.
SSANGYONG REXTON HLX.
Nýskráður: 2018 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 39.000 km.
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
Verð: 3.990.000 kr.Verð: 5.590.000 kr.
AUDI Q5 QATTRO
Nýskráður: 2013 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 106.000 km.
VW GOLF TRENDLINE
Nýskráður: 2012 / Bensín
Sjálfskiptur / Ekinn: 99.000 km.
Verð: 1.290.000 kr.
SSANGYONG TIVOLI DLX
Nýskráður: 2016 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 29.000 km.
Verð: 2.490.000 kr.
Rað.nr. 150472Rað.nr. 150448Rað.nr. 150327Rað.nr. 445687
Gott úrval notaðra bíla benni.is
Kíktu á bílaplanið okkar á Krókhálsi 9
Verð: 2.390.000 kr.
CHEVROLET CAPTIVA
Nýskráður: 2015 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 163.000 km.
Rað.nr. 1504714X
4
4X
4
4X
4
4X
4
STJÓRNMÁL „Þessi mismunun á
vörutegundum er mjög sérstök. Á
meðan eitt fyrirtæki uppi á Höfða
sem framleiðir gosdrykki er skatt
lagt í botn þá er annað fyrirtæki
í 100 metra fjarlægð, stór aðili í
sykurinnf lutningi, sem sleppur
alveg við þetta, það er Mjólkur
samsalan,“ segir Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, formaður Við
reisnar.
Rík is stjórn in ákvað á fundi sín
um í síðustu viku að skipa starfs
hóp sem falið verður að inn leiða
aðgerðaáætl un Embætt is land
lækn is til þess að draga úr syk ur
neyslu lands manna. Aðgerðaáætl
unin var gerð að beiðni Svandísar
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra.
Þar er lagt til að hækka verð á gosi
og sælgæti um 20 prósent. Á móti á
að lækka álögur á hollari matvæli.
Ekki á að leggja sykurskatt á kökur,
kex, ís eða sykraðar mjólkurvörur.
Þorgerður Katrín sér frekar fyrir
sér betri merkingar og upplýsingar,
sem þekkist víðar, en skattlagn
ingu. „Við í Viðreisn viljum miklu
frekar nálgast þetta út frá merking
um og upplýsingum sem stuðli að
aukinni neytendavitund. Þannig að
þegar neytendur fá sér súkkulaði
köku þá standi það skýrum stöfum
hvað hún inniheldur margar hita
einingar.“
Hún segir vitundarvakningu í
heiminum í dag sem hafi leitt til
minnkandi sykurneyslu. „Frjáls
Telur sykurskatt í þágu sérhagsmuna
Ef það er hægt
að treysta
einhverju hjá þessari
ríkisstjórn þá er það
að slá skjaldborg
um sérhagsmuni
Mjólkursamsöl-
unnar.
Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, formaður
Viðreisnar Ef aðgerðaáætlun Embættis landlæknis verður að veruleika mun verð á sælgæti og
gosdrykkjum hækka um 20 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ræði fylgir ekki ósómi. Það á að
nálgast þetta með upplýsingum.
Þess vegna hefur áfengisneysla
ungmenna farið niður á við síðustu
árin, ekki með svona illa útfærðum
sköttum,“ segir Þorgerður Katrín.
„Það á að halda áfram sömu vit
leysunni og vinstri stjórnin var
með á sínum tíma, að gera upp á
milli vörutegunda. Síðasta útfærsla
var léleg og vond, síðan sá skattur
var afnuminn hefur sykurneysla
minnkað.“
Telur hún að eitthvað annað og
meira liggi að baki hugmyndunum
um að skattleggja gosdrykki og sæl
gæti en ekki sykurbættar mjólkur
vörur en aðeins vilji til að draga
úr sykurneyslu. „Uppleggið vekur
furðu. Ef það er hægt að treysta ein
hverju hjá þessari ríkisstjórn þá er
það að slá skjaldborg um sérhags
muni Mjólkursamsölunnar.“
Sunna Gunnars Marteinsdóttir,
verkefnastjóri í upplýsinga og
fræðslumálum hjá MS, hafnar því
að MS sé stórtækt þegar kemur að
sykri. „Mjólkursamsalan hefur
markvisst unnið að því að minnka
sykur í sínum vörum frá árinu 2003
og í dag eru um 85% af öllum okkar
vörum án viðbætts sykurs,“ segir
Sunna. „MS kaupir árlega um 12%
af heildarsykurinnf lutningi í sína
framleiðslu en stærstu aðilarnir í
kaupum á sykri eru um 10 sinnum
stærri en MS.“
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,
sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis
og einn höfunda aðgerðaáætlunar
innar, sagði í samtali við Frétta
blaðið í gær að fólk sem hefur minni
tekjur og minni menntun lifi óheil
brigðara lífi og lifi skemur. Rann
sóknir sýni að skattlagning breyti
hegðun og það sé markmiðið.
„Við sjáum það í okkar tölum
að fólk sem hefur minni tekjur og
minni menntun lifir óheilbrigðara
lífi og lifir skemur. Rannsóknir
sýna að skattlagning breytir hegð
un og það er það sem við viljum,“
sagði Dóra.
Þorgerður Katrín er ekki sann
færð. „Ég er ekki sannfærð um að
þessi útfærsla á skattlagningu geti
breytt hegðun. Upplýsum neytand
ann í staðinn fyrir að skattleggja
hann.“ arib@frettabladid.is
Aðgerðaáætlun til að
minnka sykurneyslu
sem starfshópur ráð-
herra kemur til með
að skoða gerir ráð fyrir
skatti á gosdrykki og
sælgæti. Formaður Við-
reisnar segir sérstakt að
mismuna milli vöru-
tegunda og það megi
treysta ríkisstjórninni
að styðja MS.
2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð