Fréttablaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 27
Við erum stöðugt
að leita að hug-
myndum frá hröðum
heiminum í kringum
okkur þar sem við sækj-
um listasöfn og skoðum
fallegar byggingar.
Ásta Eir
Árnadóttir
astaeir@frettabladid.is
Karina Gustafson hefur starfað hjá COS frá upp-hafi verslunarinnar. Hún
útskrifaðist úr The Royal College of
Art í London, þá 26 ára gömul, og
hóf í kjölfarið störf hjá COS. Hún
er hluti af hönnunarteyminu og
starfar sem listrænn stjórnandi.
Karina svarar hér spurningum
blaðamanns.
Hver er hugmyndafræðin á bak
við COS?
Alveg frá því að COS opnaði
hefur karakter verslunarinnar
verið stöðugur, þar sem boðið er
upp á nútímalega, áþreifanlega,
tímalausa og hagnýta hönnun. Við
höldum fast í okkar hugmynda-
fræðilegu stoðir í stað þess að fylgja
tískustraumum.
Hvaðan kemur innblásturinn í
fatalínurnar?
Við fáum innblástur frá arki-
tektúr, hönnun, list og náttúrunni.
Við erum stöðugt að leita að
hugmyndum frá hröðum heim-
inum í kringum okkur þar sem
við sækjum listasöfn, sýningar
og skoðum fallegar byggingar.
Þegar teymið hefur sankað að sér
innblæstri og hugmyndum þá
förum við yfir það í sameiningu
og mynstur fara að myndast fyrir
komandi línur. Í kjölfarið hefst svo
hönnunarferlið.
Hvert er mikilvægi hönnunar
inni í verslunum COS?
Þegar við hönnum útlit verslana
okkar finnst okkur mikilvægt að
viðskiptavinum líði eins og þeir
séu velkomnir. Við trúum því
að hönnunin sé jafn mikilvæg
og tískan. Þessir tveir þættir eru
gríðarlega samtvinnaðir. Nýja
rýmið í Reykjavík fylgir megin-
hugmyndafræði okkar til hins
ýtrasta, til að mynda með gólfsíðu
gluggunum.
Hver er meiningin á bak við
mottóið „made to last beyond the
season“?
Kúnnahópur okkar er frekar fólk
sem leitar eftir tímalausum klæðn-
aði frekar en að fylgja einhverjum
tískustraumum. Þetta þýðir að við-
skiptavinirnir geta klæðst okkar
flíkum ár eftir ár og þá kannski í
mismunandi útfærslum. Við förum
vandlega í hvert skref hönnunar-
ferlisins, allt frá vali á efni til tækni-
legrar þróunar í vöruhúsinu okkar
í London.
Hver ykkar stærsti kúnnahópur?
Við skoðum ekki viðskipta-
vini eftir aldri eða hvar þeir búa
heldur frekar hugarfari og menn-
ingarlegum viðhorfum. Fólk með
svipuð áhugamál en samt sem áður
persónulegan stíl og mismunandi
viðhorf varðandi tísku.
Hvernig hefur gengið að fara
í samstarf við listasöfn og aðra
hönnuði?
Á síðastliðnum áratug höfum
við fengið tækifæri til að vinna
með skapandi fólki og stofnunum
á spennandi stöðum eins og til
dæmis í Mílanó og New York. Við
lítum á þessi samstarfsverkefni
sem tækifæri til að gefa þeim til
baka sem veita okkur innblástur.
Eru einhverjir litir sem þið kjósið
að nota fram yfir aðra?
Ég held að grunnur hvers fata-
skáps komi frá mildum tónum og
einföldum litapallettum. Ef þú
ert með þess háttar fataskáp, þá
ættirðu að geta klæðst flíkunum
þínum á mismunandi vegu við
mismunandi tilefni. Svo er að sjálf-
sögðu alltaf hægt að bæta við fleiri
litum, en það fer eftir því hvert
tilefnið er.
Tímalaus hönnun hjá COS
Linda Gunnarsdóttir fór til Huldu á Heilsu- og fegrunar-stofu Huldu út af miklum
doða í fótunum. „Heilsan er oft
þannig að þú tekur rosalega
mikið eftir því ef þú missir hana
en þú tekur ekkert mikið eftir því
þegar þú færð hana til baka,“ segir
Linda. En svo var ekki eftir þessa
meðferð. „Ég var með mikla gigt
og ég var orðin rosalega slæm í
mjöðminni, en eftir þessa sjö tíma
hjá Huldu þá áttaði ég mig á því
að ég fann ekkert fyrir mjöðminni
lengur og gat labbað upp stiga án
þess að finna fyrir verkjum.“
Linda byrjaði að finna aðeins
fyrir mjöðminni aftur fyrir
nokkrum mánuðum. „Ég fór í einn
tíma og varð strax skárri.“ Linda
er gríðarlega ánægð með með-
ferðirnar og segir árangurinn vera
ótrúlegan. „Þetta er algjört krafta-
verkatæki.“
Ótrúlegur munur
Steinunn Hallgrímsdóttir fer
fögrum orðum um meðferðina hjá
Huldu. „Ég er mjög slitin og slæm
í skrokknum og ég fann mikinn
mun á mér. Ég fór í 10 skipti og
ég varð öll liprari og leið bara
almennt betur í líkamanum.“
Steinunn hefur fengið mjög
jákvæð viðbrögð eftir meðferðina.
„Ég varð betri í bakinu og mjöðm-
unum og mér leið bara mun betur
eftir þetta.“
Laus við allan stífleika
Þóra Guðnadóttir hefur lengi verið
að glíma við stíf leika í fingrum.
„Ég fór í „vacum“ fyrir hendur og
ég fann að stíf leikinn í fingrunum
snarlagaðist.“ Hún hefur einnig
verið að eiga við bjúg í fótunum.
„Ég fór í stígvélin hjá henni og
bjúgurinn fór strax. Ég fann mik-
inn mun með hverjum tíma,“ segir
Þóra. Hún fór 10 sinnum til hennar
og var árangurinn mjög góður.
„Ég lagaðist alveg í höndunum við
þetta, svo er bara svo þægilegt að
fara til Huldu,“ segir Þóra.
Heilsu- og fegrunarstofa Huldu er í
Borgartúni 3. Sími 557 4575 og
772 4575. hfhulda@gmail.com.
Náðu mögnuðum árangri
Mildir tónar og einfaldar litapallettur einkenna flestar flíkur frá COS.
Karina Gustafson hefur tekið þátt í uppbyggingu COS alveg frá upphafi.
Tískuverslunin
COS var opnuð í
miðbæ Reykja-
víkur fyrr í mán-
uðinum. Áhersla
er lögð á nútíma-
lega hönnun þar
sem horft er til
listarinnar og
náttúrunnar.
Þóra fór í Vacumed-meðferðina
vegna stífleika í fingrum.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Hulda Ósk Eysteinsdóttir á Heilsu- & fegrunarstofu er sérmenntuð í meðferð
Weyergans High Care-tækjanna frá Weyergans í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Eftir örfá skipti í
Weyergans-sog-
æðameðferð
næst nánast
yfirnáttúrulegur
bati sem byggir
á heilsuvegferð
geimfara. Fólk
hefur náð ótrú-
legum árangri í
bata eftir að hafa
farið í meðferð.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R