Fréttablaðið - 27.06.2019, Side 27

Fréttablaðið - 27.06.2019, Side 27
Við erum stöðugt að leita að hug- myndum frá hröðum heiminum í kringum okkur þar sem við sækj- um listasöfn og skoðum fallegar byggingar. Ásta Eir Árnadóttir astaeir@frettabladid.is Karina Gustafson hefur starfað hjá COS frá upp-hafi verslunarinnar. Hún útskrifaðist úr The Royal College of Art í London, þá 26 ára gömul, og hóf í kjölfarið störf hjá COS. Hún er hluti af hönnunarteyminu og starfar sem listrænn stjórnandi. Karina svarar hér spurningum blaðamanns. Hver er hugmyndafræðin á bak við COS? Alveg frá því að COS opnaði hefur karakter verslunarinnar verið stöðugur, þar sem boðið er upp á nútímalega, áþreifanlega, tímalausa og hagnýta hönnun. Við höldum fast í okkar hugmynda- fræðilegu stoðir í stað þess að fylgja tískustraumum. Hvaðan kemur innblásturinn í fatalínurnar? Við fáum innblástur frá arki- tektúr, hönnun, list og náttúrunni. Við erum stöðugt að leita að hugmyndum frá hröðum heim- inum í kringum okkur þar sem við sækjum listasöfn, sýningar og skoðum fallegar byggingar. Þegar teymið hefur sankað að sér innblæstri og hugmyndum þá förum við yfir það í sameiningu og mynstur fara að myndast fyrir komandi línur. Í kjölfarið hefst svo hönnunarferlið. Hvert er mikilvægi hönnunar inni í verslunum COS? Þegar við hönnum útlit verslana okkar finnst okkur mikilvægt að viðskiptavinum líði eins og þeir séu velkomnir. Við trúum því að hönnunin sé jafn mikilvæg og tískan. Þessir tveir þættir eru gríðarlega samtvinnaðir. Nýja rýmið í Reykjavík fylgir megin- hugmyndafræði okkar til hins ýtrasta, til að mynda með gólfsíðu gluggunum. Hver er meiningin á bak við mottóið „made to last beyond the season“? Kúnnahópur okkar er frekar fólk sem leitar eftir tímalausum klæðn- aði frekar en að fylgja einhverjum tískustraumum. Þetta þýðir að við- skiptavinirnir geta klæðst okkar flíkum ár eftir ár og þá kannski í mismunandi útfærslum. Við förum vandlega í hvert skref hönnunar- ferlisins, allt frá vali á efni til tækni- legrar þróunar í vöruhúsinu okkar í London. Hver ykkar stærsti kúnnahópur? Við skoðum ekki viðskipta- vini eftir aldri eða hvar þeir búa heldur frekar hugarfari og menn- ingarlegum viðhorfum. Fólk með svipuð áhugamál en samt sem áður persónulegan stíl og mismunandi viðhorf varðandi tísku. Hvernig hefur gengið að fara í samstarf við listasöfn og aðra hönnuði? Á síðastliðnum áratug höfum við fengið tækifæri til að vinna með skapandi fólki og stofnunum á spennandi stöðum eins og til dæmis í Mílanó og New York. Við lítum á þessi samstarfsverkefni sem tækifæri til að gefa þeim til baka sem veita okkur innblástur. Eru einhverjir litir sem þið kjósið að nota fram yfir aðra? Ég held að grunnur hvers fata- skáps komi frá mildum tónum og einföldum litapallettum. Ef þú ert með þess háttar fataskáp, þá ættirðu að geta klæðst flíkunum þínum á mismunandi vegu við mismunandi tilefni. Svo er að sjálf- sögðu alltaf hægt að bæta við fleiri litum, en það fer eftir því hvert tilefnið er. Tímalaus hönnun hjá COS Linda Gunnarsdóttir fór til Huldu á Heilsu- og fegrunar-stofu Huldu út af miklum doða í fótunum. „Heilsan er oft þannig að þú tekur rosalega mikið eftir því ef þú missir hana en þú tekur ekkert mikið eftir því þegar þú færð hana til baka,“ segir Linda. En svo var ekki eftir þessa meðferð. „Ég var með mikla gigt og ég var orðin rosalega slæm í mjöðminni, en eftir þessa sjö tíma hjá Huldu þá áttaði ég mig á því að ég fann ekkert fyrir mjöðminni lengur og gat labbað upp stiga án þess að finna fyrir verkjum.“ Linda byrjaði að finna aðeins fyrir mjöðminni aftur fyrir nokkrum mánuðum. „Ég fór í einn tíma og varð strax skárri.“ Linda er gríðarlega ánægð með með- ferðirnar og segir árangurinn vera ótrúlegan. „Þetta er algjört krafta- verkatæki.“ Ótrúlegur munur Steinunn Hallgrímsdóttir fer fögrum orðum um meðferðina hjá Huldu. „Ég er mjög slitin og slæm í skrokknum og ég fann mikinn mun á mér. Ég fór í 10 skipti og ég varð öll liprari og leið bara almennt betur í líkamanum.“ Steinunn hefur fengið mjög jákvæð viðbrögð eftir meðferðina. „Ég varð betri í bakinu og mjöðm- unum og mér leið bara mun betur eftir þetta.“ Laus við allan stífleika Þóra Guðnadóttir hefur lengi verið að glíma við stíf leika í fingrum. „Ég fór í „vacum“ fyrir hendur og ég fann að stíf leikinn í fingrunum snarlagaðist.“ Hún hefur einnig verið að eiga við bjúg í fótunum. „Ég fór í stígvélin hjá henni og bjúgurinn fór strax. Ég fann mik- inn mun með hverjum tíma,“ segir Þóra. Hún fór 10 sinnum til hennar og var árangurinn mjög góður. „Ég lagaðist alveg í höndunum við þetta, svo er bara svo þægilegt að fara til Huldu,“ segir Þóra. Heilsu- og fegrunarstofa Huldu er í Borgartúni 3. Sími 557 4575 og 772 4575. hfhulda@gmail.com. Náðu mögnuðum árangri Mildir tónar og einfaldar litapallettur einkenna flestar flíkur frá COS. Karina Gustafson hefur tekið þátt í uppbyggingu COS alveg frá upphafi. Tískuverslunin COS var opnuð í miðbæ Reykja- víkur fyrr í mán- uðinum. Áhersla er lögð á nútíma- lega hönnun þar sem horft er til listarinnar og náttúrunnar. Þóra fór í Vacumed-meðferðina vegna stífleika í fingrum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Hulda Ósk Eysteinsdóttir á Heilsu- & fegrunarstofu er sérmenntuð í meðferð Weyergans High Care-tækjanna frá Weyergans í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Eftir örfá skipti í Weyergans-sog- æðameðferð næst nánast yfirnáttúrulegur bati sem byggir á heilsuvegferð geimfara. Fólk hefur náð ótrú- legum árangri í bata eftir að hafa farið í meðferð. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.