Fréttablaðið - 27.06.2019, Side 8

Fréttablaðið - 27.06.2019, Side 8
Skraufþurrt Indversk kona fyllir á fötu í borginni Chennai. Miklir þurrkar hafa gert það að verkum að þessi sjötta fjölmennasta borg Indlands er að verða vatns- laus og eru þurrkarnir samkvæmt AFP þeir verstu í manna minnum. Íbúar geta notað um helming þess vatns sem venjulega er þörf. NORDICPHOTOS/AFP DANMÖRK Mette Frederiksen mætti í Amalíenborgarhöll í Kaupmanna- höfn í gær og fór á fund drottningar. Þar með varð hún forsætisráðherra Danmerkur en á þriðjudag var til- kynnt að Jafnaðarmannaflokkurinn myndi sitja í minnihlutastjórn með stuðningi Sósíalíska þjóðarflokksins, Einingarlistans og Radikale Venstre. Hin nýja danska stjórn hefur birt átján blaðsíðna stjórnarsáttmála þar sem loftslagsmálin vega einna þyngst. Til dæmis er því heitið að útblástur gróðurhúsalofttegunda dragist saman um sjötíu prósent til ársins 2030. Þá hyggst Frederiksen- stjórnin einnig ætla að hætta að skera niður í menntamálum, að því er kom fram í frétt DR, danska ríkis- útvarpsins. DR hafði eftir Britt Bager, einum talsmanna Venstre, stærsta flokks hægriblokkarinnar, að þar á bæ ríkti óánægja með ýmislegt. Til að mynda það að afturkalla skyldi ýmsar skattalækkanir. Hins vegar væri samstarfsgrundvöllur í umhverfis- málunum. – þea Fór á fund drottningar Frederiksen er önnur konan til þess að gegna embætti forsætisráðherra Danmerkur. BANDARÍKIN Útlit er fyrir að tolla- stríði Bandaríkjanna og Kína ljúki brátt. Donald Trump Bandaríkja- forseti og Xi Jinping, forseti Kína, munu funda saman á G20-fundin- um sem fer fram í Japan um helgina og gæti sá fundur skipt sköpum. Steven Mnuchin, fjármálaráð- herra Bandaríkjanna, sagðist bjart- sýnn í viðtali við CNBC í gær. „Við erum komin svona níutíu prósent áleiðis og ég held það sé vel hægt að klára þetta.“ Ráðherrann er vongóður um að fundurinn lukkist vel. „Við von- umst eftir þeim skilaboðum að Kína vilji koma aftur að borðinu af því að ég held það væri til bóta fyrir bæði kínverskt og bandarískt hag- kerfi að koma á jafnvægi í verslun og þannig halda áfram að byggja upp gott samband,“ sagði Mnuchin enn fremur. Ekki liggur fyrir hvað stendur eftir í viðræðum. Það er að segja hver þessi tíu prósent eru. Við- ræðum var slitið í maí. Að því er kom fram í South China Morning Post sakaði Trump-stjórnin Kín- verja um að hætta við að samþykkja lykil atriði á borð við aðgang banda- rískra fyrirtækja að kínverskum markaði og verndun bandarískra hugverka. Kínverjar saka Banda- ríkin aftur á móti um að breyta kröfum sínum í sífellu. Wilbur Ross viðskiptamálaráð- herra hefur áður sagt að í mesta lagi leiði fundur Xi og Trumps um helgina til þess að viðræður hefjist á ný. Tekur sum sé ekki jafndjúpt í árinni og Mnuchin. Liu He, varaforsætisráðherra Kína og samningamaður Kínverja, ræddi við Mnuchin í síma á mánu- dag. Þar sammæltust þeir um að hefja viðræður á ný. Trump og Xi áttu sams konar símtal í síðustu viku þar sem þeir sögðu báðir mikilvægt að halda áfram að ræða saman. Gao Feng, upplýsingafulltrúi viðskiptaráðuneytis Kína, varaði við áframhaldandi tollastríði fyrir helgi. „Það vinnur enginn tolla stríð. Ef Bandaríkjamenn eru staðráðnir í að ráðast í einhliða aðgerðir gegn Kína mun það hafa alvarleg áhrif á þeirra eigin hagkerfi og hagsæld þjóðarinnar,“ hafði CCTV eftir Gao. thorgnyr@frettabladid.is Bandaríkjamenn bjartsýnir á lausn deilunnar við Kína Fjármálaráðherra Bandaríkjanna segir viðræðurnar við Kínverja vera komnar níutíu prósent áleiðis. Forsetar ríkjanna tveggja munu hittast í Japan um helgina. Viðræðum var slitið í maí og bentu ríkin tvö hvort á annað. Kínverskir neytendur forðast bandarískar vörur í auknum mæli vegna deilunnar. Kínverskir neytendur sniðganga Bandaríkin Ríflega helmingur kínverskra neytenda forðast nú að kaupa bandarískar vörur vegna við­ skiptadeilunnar. Þetta eru niðurstöður könnunar breska ráðgjafarfyrir­ tækisins Brunswick sem Reuters greindi frá í gær. Alls sögðust 56 prósent þeirra þúsund Kínverja sem tóku þátt forðast að kaupa bandarískar vörur. 68 prósent sögðu skoðun sína á Bandaríkjunum orðna nei­ kvæðari nú en áður en til tolla­ stríðsins kom. „Þetta er mikil ógn við banda­ rísk fyrirtæki þar sem þrír af hverjum fjórum kínverskum neytendum sögðust oft kaupa vörur bandarískra fyrirtækja,“ sagði í tilkynningu frá ráðgjafar­ fyrirtækinu. Þeir Mnuchin, Trump og Pence hafa staðið saman gegn Kínverjum í tollastríðinu. NORDICPHOTOS/AFP Mette Frederiksen. NORDICPHOTOS/GETTY EÞÍÓPÍA Tugir létust í átökum í Amhara-héraði Eþíópíu um síðustu helgi er uppreisnarmenn reyndu að steypa héraðsstjórninni af stóli. Þetta hafði Reuters eftir upplýs- ingafulltrúa héraðsstjórnarinnar í gær. Samkvæmt upplýsingafulltrú- anum, Asemahagh Aseres, réðust uppreisnarmenn á höfuðstöðvar lögreglu, skrifstofur ráðandi flokks og skrifstofur héraðsforseta. Þrír embættismenn voru drepnir, þar á meðal Ambachew Mekonnen héraðsforseti. Þá var starfsmanna- stjóri eþíópíska hersins, Seare Mekonnen hershöfðingi, myrtur í höfuðborginni. Að sögn Asemahagh er uppreisn- arsveitin nýstofnuð. „Þetta er hluti af lögreglunni. Þau eru ekki sjálf- stæð. Stærstur hluti okkar manna hefur ekki gengið til liðs við þau og varði okkur gegn árásum,“ sagði hann. Samkvæmt greiningu Reuters setur það aukinn þrýsting á Abiy Ahmed forsætisráðherra að upp- reisnarmennirnir hafi komið úr röðum héraðslögreglu. Ahmed hefur að undanförnu reynt að vinda ofan af bönnum á aðra stjórnmála- f lokka og leyst uppreisnarmenn, blaðamenn og pólitíska fanga úr haldi. Hann er sagður hafa skapað sér ýmsa óvini er hann hristi upp í yfirstjórn hers og leyniþjónustu. – þea Tugir fórust í átökunum Mekonnen hershöfðingja minnst. NORDICPHOTOS/AFP 2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.