Fréttablaðið - 27.06.2019, Page 19
Eitt af skemmtilegri örnefnum á Íslandi er Hornatær á sunnanverðum Vestfjörðum. Þetta eru fjórir fjallstindar sem raða sér upp á hálendinu milli Vatnsfjarðar og Trostansfjarðar inn af Arnarfirði. Skörð í fjallgarðinum gera að verkum að hann lík-
ist tám sem sjást víða að, m.a. frá Snæfellsnesi. Nyrst
er Ýsufell (703 m), síðan kemur Breiðafell sem er hæst
(747 m), því næst Klakkur (699 m) sem er tilkomu-
mestur og brattastur og loks Ármannsfell (706 m).
Talið er að Hornatær og nágranni þeirra aðeins
norðar, Lómafell, hafi verið sker sem stungust upp
úr ísaldarjöklinum sem hvarf fyrir 10.000 árum
síðan. Best sjást Hornatær úr Arnarfirði, sérstak-
lega frá Bíldudal. Þaðan minna þær óneitanlega á
kórónu, enda oft nefndar Kóróna Vestfjarða. Tærnar
og Lómatindur tengjast norska víkingnum Flóka Vil-
gerðarsyni sem er betur þekktur sem Hrafna-Flóki.
Hann sigldi til Íslands frá Noregi, sennilega í kringum
870, með hrafna sína þrjá. Þá notaði hann til að finna
eyjuna í norðri sem sænskur kollega hans, Garðar
Svavarsson, hafði heimsótt nokkrum árum áður
og kallaði Garðarshólma. Hrafna-Flóki nam land í
Vatnsfirði sem reyndist fullur af fiski. Stundaði hann
því veiðar af kappi með föruneyti sínu og skeytti lítt
um heyskap fyrir veturinn. Drapst því kvikfé hans
yfir háveturinn en þegar voraði gekk Flóki á fjall
eitt mikið sem sennilega var ein Hornatánna eða
Lómatindur. Segir í Landnámu: „Vár var heldr kalt. Þá
gekk Flóki upp á fjall eitt hátt ok sá norðr yfir fjöllin
fjörð fullan af hafísum, því kölluðu þeir landit Ísland,
sem það hefur síðan heitir.“ Hann hélt síðan með
föruneyti sínu aftur til Noregs og bar sig illa en nafnið
Ísland festist við landið sem hafði reynst honum svo
illa.
Það er gaman að ganga á Hornatær þótt stundum
sé gönguleiðin ójöfn og grýtt. Auðvelt er að ná einni
tá á hálfum degi en ef gengið er á allar fjórar veitir
ekki af heilum degi. Auðveldast er að hefja gönguna
frá akveginum í Helluskarði milli Vatnsfjarðar og
Trostansfjarðar en fleiri leiðir eru í boði, t.d. af vegi
norðvestur af Breiðafelli. Klakkur er tilkomumestur
með ókleifum kletti efst en hinar tærnar þrjár eru
auðveldari uppgöngu. Einnig er hægt að ganga niður
í skörðin og gægjast út eftir Arnarfirði eða suður
í Breiðafjörð. Í góðu veðri sést af Tánum suður á
Snæfellsnes þar sem Ljósufjöll, Helgrindur og Snæ-
fellsjökull eru í aðalhlutverkum. Hafís er hins vegar
sjaldséður og spurning hvort Hrafna-Flóki
hafi ekki verið að ýkja til að finna sér ástæðu
til að kveðja Klakann.
Tærnar sem
hann Hrafna-
Flóki kvaddi
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Hornatær í fjarska með hluta Ketildala og Arnarfjörð í forgrunni. MYND/TG
Hornatær séðar
frá Bíldudal.
MYND/TG
Útsýni ofan skýja af Ýsufelli yfir á Breiðafell. MYND/TG
2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð