Fréttablaðið - 27.06.2019, Side 23

Fréttablaðið - 27.06.2019, Side 23
Það hefur sárlega vantað heildarstefnu í heilbrigðis- málum á Íslandi í marga áratugi. Stundum æsum við okkur yfir einhverju í nokkra daga en þykjumst þó vita, þrátt fyrir niðurstöður PISA, að við séum „með’etta“ og björgum okkur yfirleitt. Vorið og fyrri partur sumars hafa verið erfiður tími hjá mér með tíðum ferðalögum og fyrirlestrum út um allan heim. Stundum hef ég ekki einu sinni vitað í hvaða landi ég var þegar ég vaknaði á morgnana og oftast fundist eins og eitthvað vantaði í mig umfram skrúfuna sem mér skilst að hafi losnað í æsku minni og týnst á unglingsárunum. Þetta gekk meira að segja svo langt að einn daginn þegar ég var nýkominn heim frá Bandaríkjunum hringdi ég í Týnt og Fundið á f lugvelli í Los Angeles og spurði hvort þeir hefðu rekist á sálina mína sem ég væri hræddur um að hefði orðið eftir hjá þeim. Ég viðurkenni að þarna var ég að leggja aðeins of mikið á opinbera starfsmenn í erlendu ríki og auðvitað skelltu þeir á mig. Ein af leiðing af þessum þvælingi var sú að ég varð illa haldinn af kvíða sem hélt mér vakandi á næturnar og gerði mig enn verri í umgengni en ella. En svo var ég allt í einu kom­ inn á opnunartónleika miðsumars­ tónlistarhátíðar Víkings Heiðars að hlusta á píanótríó númer 2 í e­moll eftir Dmitri Shostakovich og kvíðinn hvarf eins og dögg fyrir sólu. Ég var minntur á tvennt, ann­ ars vegar hvernig góð tónlist getur getur hysjað mann upp úr holum og hrakið burtu kvíða og þunglyndi og hins vegar hvers konar gersemi við Íslendingar eigum í Víkingi Heiðari. Hann býr að þrenns konar hæfi­ leikum sem eru hver fyrir sig svo langt umfram það sem við höfum nokkurn tímann áður átt. Í fyrsta lagi er hann einn af heimsins bestu píanóleikurum og sem slíkur algjör­ lega einstakur fyrir frumleika sakir. Hann gerir allt sem hann flytur að sínu. Það er kannski full langt geng­ ið að segja að nóturnar séu honum fyrst og fremst vísbending en stund­ um held ég að það sé satt. Hann er skapandi snillingur. Í annan stað er ég ekki viss um að það sé nokkur maður í þessum heimi sem er lagn­ ara að tala um tónlist þannig að það sé bæði fræðandi og skemmtilegt. Í þriðja lagi býr hann að ótrúlegu tengslaneti í tónlistarheiminum og notar það til þess að flytja til Íslands tónlistarfólk af slíkum gæðum að það er með ólíkindum. Við verðum að hlúa að Víkingi Heiðari og sjá til þess að hann geti haldið áfram að gleðja okkur með miðsumarstón­ listarhátíðum um eilífð alla. En akk­ úrat þarna á opnunartónleikunum hvarf kvíðinn minn og honum verður ekki boðið í heimsókn aftur. Það er fátt sem veldur meiri kvíða en þegar manni finnst vegið að möguleika hans til þess að stunda atvinnu sína og það er fátt sem býr til f lóknari og óskiljanlegri við­ brögð en mikill kvíði. Mér fannst þetta hvort tveggja sjást í viðtali við tvo bæklunarskurðlækna í Morgun­ blaðinu fyrir tveimur vikum. Báðir vinna þeir í Orkuhúsinu, þar sem teymi lækna hefur sinnt sínu sam­ félagi með af burðum á síðustu tveimur áratugum. Það hefur mætt þörf sem Landspítalinn hafði ekki sinnt meðal annars vegna þess að okkur Íslendingum hefur lengst af fundist það vilji guðanna að við höltrum svolítið ef liðþófi í öðru hnénu rifnar og að íþróttamenn setjist í helgan stein ef krossband í sama lið slitnar. Við höfum líka staðið í þeirri trú að við höfum verið sköpuð með tvær hendur til þess að við gætum greitt okkur með þeirri vinstri þegar slit í hægri öxl gera okkur ókleift að koma þeirri höndinni upp fyrir liðinn meidda. Snillingarnir í Orkuhúsinu hafa sýnt okkur fram á að við þurfum ekki að sætta okkur við þetta og hafa því ekki bara sinnt sjúklingum heldur líka breytt afstöðu okkar til okkar sjálfra. Þeir hafa gefið okkur ástæður til þess að gera kröfur um meiri gæði í því lífi sem við lifum. Það er afrek og fyrir það eigum við sem samfélag að vera þakklát. Ég er hins vegar ekki viss um að læknarn­ ir í Orkuhúsinu geri sér grein fyrir því hvaða áhrif þeir hafa á íslenskt samfélag og séu þess vegna kvíðnari um framtíð sína en þeir hafa ástæðu til. Það hefur sárlega vantað heildar­ stefnu í heilbrigðismálum á Íslandi í marga áratugi. Án slíkrar stefnu er erfitt að búa til aðferðir til þess að meta þörf á þjónustu vegna þess að enginn veit hvar hún yrði innt af hendi eða hversu mikla þjónustu á að veita. Svandís á mikið hrós skilið fyrir að setja saman þá tillögu að heildarstefnu sem hún lagði fyrir Alþingi. Þetta er hennar stefna og ber þess merki. Í henni leggur hún mikla áherslu á að markmiðið sé að hafa sem stærstan hluta heil­ brigðisþjónustunnar rekinn af ríkinu og þar er ég henni sammála, vegna þess að þjónustan verður að vera samhæfð og markast af þörfum samfélagsins frekar en af mark­ miðum rekstraraðila. Það er hins vegar ljóst að innan þess ramma sem heildarstefnan veitir er pláss fyrir alls konar rekstrarform. Ég held að reyndin verði sú að ríkis­ rekstur þjónustunnar verði regla en einkaframtakið geti öðlast rétt til þess að reka hluta hennar og geti haldið honum með því að þjóna samfélaginu vel eins og Orkuhúsið hefur svo sannarlega gert. Ég held að ein af aðalástæðum þess að Orku­ húsið hefur virkað vel sé að þar vinnur nægilega stór hópur lækna til þess mynda samfélag sem getur veitt hverjum einstökum þeirra það aðhald og þann stuðning sem menn þurfa nauðsynlega á að halda við það erfiða starf sem læknisþjón­ usta er. Það er ekki hægt að segja hið sama um margar af stofum sér­ fræðinganna úti í bæ þar sem menn hringla einir og eftirlitslausir og án stuðnings. Það veit aldrei á gott Þegar bæklunarskurðlæknarnir kvarta undan því að tillaga Svan­ dísar að heildarstefnu í heilbrigðis­ málum hafi verið sett saman án þess að læknafélögin hafi verið með í ráðum ber að hafa tvennt í huga. Í fyrsta lagi hafa læknafélögin gjarn­ an hagað sér eins og klassísk stéttar­ félög en ekki fagfélög, með snöggt­ um minni áherslu á samfélagslega ábyrgð en hagsmuni félagsmanna. Ég held að það hljóti að teljast slys, vegna þess að læknar á Íslandi hafa í gegnum tíðina verið öðrum stéttum tryggari sínu samfélagi og dyggari. Hitt er svo að heildarstefnan er mjög víður rammi sem er nær því að vera pólitísk viljayfirlýsing en fagleg tillaga. Það er hins vegar hafið yfir allan vafa að það myndi þjóna hags­ munum íslensks samfélags að sam­ tök lækna tækju ríkan þátt í því að fylla upp í rammann. Tillaga Svandísar að heildar­ skipulagi heilbrigðismála á Íslandi gerir ráð fyrir því að einkareknu stofurnar verði agaðar og þeim fundinn staður í heilbrigðiskerfinu og úthlutað verkefnum í samræmi við hann. Ég á bágt með að trúa því að læknarnir haldi að það sé betra fyrir þjóðina að hafa kerfið stjórn­ laust. Stjórnleysið þjónar einungis þeim óprúttnu sem eru reiðubúnir til þess nýta sér möguleikann á að selja þjónustu sem engin þörf er fyrir en þeir eru fáir og kannski engir. Heilbrigðiskerfið er samvinnu­ verkefni eins og hljómsveit eða kór. Svandís hefur lengi sungið í kór og er vön þeim málamiðlunum sem felast í því að ná fram góðri heild úr fjölda einstaklinga og þrátt fyrir allt er henni eiginlegt að sýna tillit­ semi. Það tekur hana bara stundum svolítinn tíma að kæla skapið sem er henni eins og sumum okkar uppspretta orku. Mér finnst fallegt dæmi um það hvernig hún hugsar þegar hún hætti í kór þegar hún varð ráðherra af því að hún var hrædd um að nærvera yfirvaldsins myndi trufla jafnvægið í kórnum. Verkefnið er að smíða gott heil­ brigðiskerfi og hver sem vill leggja af mörkum til þess á góðan félaga í Svandísi. Samtök lækna verða að byrja á því leiðrétta þann mis­ skilning samfélagsins að þau hafi ekki áhuga á neinu öðru en launum félagsmanna. Ef það tekst má vel vera að þau verði fengin til þess að leiða verkefnið. Kórverk Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagrein- ingar Hvað er að í skólakerfi okkar?“ spyr Styrmir Gunnarsson í grein sem var birt í Morgun­ blaðinu 15. júní síðastliðinn. Þar ræðir hann um skólakerfið á Íslandi, einkum þá veikleika þess sem sagt er að PISA­kannanir hafi leitt í ljós. Segir Styrmir að Andreas Schleicher, yfirmaður menntamála hjá OECD, hafi nýlega talað svo skýrt um þessa bresti í frétt mbl.is að það kalli á frekari umræðu. Ég tel rétt að nýta PISA­niðurstöður eftir föngum en bendi á að Schlecher er ekki óskeik­ ull og PISA­kannanir ekki hafnar yfir gagnrýni. Haft er eftir Schleicher í fréttinni á mbl.is að Víetnamar standi sig mjög vel í PISA­könnunum því þeir viti að skólakerfi þeirra í dag verði efnahagskerfi þeirra á morgun. Með þessum orðum tengir hann mennt­ un fyrst og fremst við peninga og þegar hann segir að menntamálin séu engin geimvísindi lætur hann að því liggja að þau séu ekki ýkja f lókin. Málið verður hins vegar margfalt flóknara ef við lítum svo á að menntun varði allt undir sólinni, náttúru jafnt sem mannlíf, og snú­ ist ekki aðeins um hagvöxt heldur einnig um heill og hamingju ólíkra einstaklinga og hópa í fjölbreyti­ legum samfélögum. Styrmir Gunnarsson spyr í grein sinni hvers vegna íslenskt samfélag sé ekki í uppnámi vegna hins slæma mats frá alþjóðlegri stofnun. Ekki veit ég það með vissu en skýringin kann að einhverju leyti að vera sú að við Íslendingar teljum menntamál ekki „grjóthörð“ mál, sem við þurf­ um að fylgjast grannt með og taka afstöðu til, heldur mál í mýkri kant­ inum. Stundum æsum við okkur yfir einhverju í nokkra daga en þykjumst þó vita, þrátt fyrir niður­ stöður PISA, að við séum „með’etta“ og björgum okkur yfirleitt. Og ekki getum við smitast af áhuga fjölmiðla­ og stjórnmálafólks á þessum málaflokki. Í fjölmiðlum er enginn hörgull á fréttum og öðru efni um verslun og viðskipti en því fer fjarri að miðlar geri menntamál­ um jafn hátt undir höfði. Í miðlum má nefnilega skekkja veruleikann, og gera mikilvæg mál léttvæg, með því að fjalla lítið um þau eða gera það á yfirborðslegan máta. Hvað stjórnmálin áhrærir verður það saga til næsta bæjar þegar ekki tekst að mynda ríkisstjórn vegna ágreinings flokka um einstaklingsmiðað nám eða málþóf á Alþingi snýst um les­ skilning íslenskra ungmenna. Skoðanaskipti um menntun á Íslandi lifna ekki við, og uppnámið verður ekkert, fyrr en hún verður viðvarandi umræðu­ og viðfangs­ efni í skólum, fjölmiðlum og öðrum kimum almannarýmisins. Umræða um PISA­kannanir verður heldur ekki nógu gjöful fyrr en við, fræða­ fólk á vettvangi menntunar, höfum farið yfir niðurstöðurnar, samheng­ ið og aðferðirnar með gagnrýnari hætti en við höfum gert, og miðlað niðurstöðum okkar til almennings. Af hverju erum við ekki í uppnámi út af PISA? Stefán Jökulsson lektor við HÍ 2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R22 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.