Fréttablaðið - 27.06.2019, Side 39

Fréttablaðið - 27.06.2019, Side 39
FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn Gísli Eyjólfsson mun snúa aftur til Breiðabliks og leika með liðinu eftir rúmlega hálfs árs dvöl á láni hjá sænska B-deildarliðinu Mjällby. Viðræður milli félaganna og Gísla hafa staðið yfir í nokkra daga og nú hefur ákvörðun verið tekin með framhaldið. Það er blikar.is sem greinir frá þessu. Breiðablik er eins og staðan er núna í harðri baráttu við KR um toppsætið í Pepsi Max-deildinni en KR trónir á toppnum með 23 stig en Breiðablik er einu sæti neðar með 22 stig. Liðin mætast einmitt í næstu umferð deildarinnar mánudaginn 1. júlí en Gísli verður löglegur með Breiðabliki í þeim leik. Næsti leikur Breiðabliks er gegn Fylki í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld en Gísli verður ekki kominn með leikheimild í þeim leik. – hó Breiðablik að fá góðan liðsstyrk  FÓTBOLTI Greint var frá því í gær að Crystal Palace og Manchester United hefðu komist að samkomu- lagi um kaupverðið á hægri bak- verðinum Aaron Wan-Bissaka. Wan-Bissaka mun gangast undir læknisskoðun á næstu dögum og skrifa undir samning á Old Trafford eftir að hann kemur heim frá Evr- ópumóti U21 ára þar sem England féll úr leik í riðlakeppninni. Manchester United greiðir fimm- tíu milljónir punda fyrir bakvörð- inn og mun hann fá tæp hundrað þúsund pund á viku í laun. Með því verður Wan-Bissaka fjórði dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins á eftir Paul Pogba, Romelu Lukaku, og Angel Di Maria og annar l e i k m a ð u r i n n s e m k e m u r til félagsins í sumar á eftir Daniel James frá Swansea City. – kpt Palace tók tilboði United í Wan-Bissaka MMA Staðfest var í gær að Gunnar Nelson myndi mæta hinum brasil- íska Thiago Alves í  UFC-bardaga í Kaupmannahöfn þann 28. sept- ember næstkomandi. Verður þetta fyrsti bardagi Gunnars í hálft ár eða síðan hann tapaði samkvæmt dóm- araúrskurði gegn Leon Edwards í London í mars síðastliðnum. Bar- dagi Gunnars og Thiago fer fram í Royal Arena-höllinni og er fyrsti bardagi kvöldsins sem er staðfestur á fyrsta bardagakvöldi UFC í höfuð- borg Danmerkur. Þetta er fyrsti bardagi Gunnars síðan í mars og þarf Gunnar á sigri að halda. Eftir að hafa verið ósigr- aður í fyrstu fjórtán bardögunum hefur Gunnar tapað fjórum af síð- ustu átta bardögum í búrinu. Hinn 35 ára gamli Alves hefur unnið 23 bardaga af 37 á ferlinum og komst nálægt því að fá veltivigtar- beltið árið 2009 þegar hann tapaði titilbardaganum gegn Georges St-Pierre. Undanfarin ár hafa ekki reynst Alves vel, eftir að hafa unnið sautj- án af fyrstu 22 bardögum ferilsins hefur hann tapað níu af síðustu fimmtán bardögum. Alves verður fimmti brasilíski bardagakappinn sem Gunnar mætir á ferlinum. Til þessa hefur Gunnar unnið þrjá bardaga og tapað einum. – kpt Fimmti Brasilíumaðurinn sem Gunnar mætir í búrinu Gunnar á von á góðum stuðningi í Kaupmannahöfn. NORDICPHOTOS/GETTY 75% Af fjórum bardögum Gunn- ars gegn Brasilíumönnum til þessa hefur Gunnar unnið þrjá. Stærsti bitinn laus allra mála Besti körfuboltamaður heims, Kevin Durant, ákvað að hafna samningi Warriors í gær og er því frjálst að ræða við önnur lið. Þrátt fyrir alvarleg meiðsli munu öll lið deildarinnar áhugasöm um að fá Durant. GS Warriors Durant fengi nægan tíma til að ná sér af meiðsl- unum og myndi halda áfram á kunnuglegum slóðum hjá liði Warriors sem mun áfram berjast um meistaratitla í nýrri keppnishöll sem verður opnuð í haust. Brooklyn Nets Skyndilega fóru að heyrast raddir um áhuga Durants á að semja við Nets á sama tíma og Kyrie Irving. Nets getur boðið bæði Irving og Durant veglega samninga og myndað nýtt ofurlið í Austurdeildinni. NY Knicks Durant og New York Knicks hafa lengið daðrað við hugmyndina um að Durant eigi að leiða lið Knicks inn í nýtt gullaldartímabil. Stærsti markaður Bandaríkjanna og að leika í einni frægustu höll heims, Madison Squere Garden, gæti dregið Durant í átt að liði Knicks. LA Clippers Samein- ast Kawhi Leonard og Durant um að ganga til liðs við Clippers og koma liðinu úr skugga Lakers? Clippers-liðið hefur staðið í skugga stóra bróðurins frá því að liðið kom til Los Angeles frá San Diego og gæti það heillað Durant að færa liðinu fyrsta meistaratitilinn. LA Lakers Vill Durant ganga til liðs við Anth- ony Davis og Lebron James og mynda nýtt ógnarsterkt þríeyki? Með Durant innan- borðs yrði Lakers-liðið geysi- sterkt og hann líklegur til að vinna meistaratitla næstu árin hjá félagi sem þrífst á því að vinna titla. NBA Körfuboltamaðurinn Kevin Durant tilkynnti forráðamönnum Golden State Warriors það í gær að hann hygðist ekki nýta sér ákvæði í samningi sínum um eins árs fram- lengingu og er honum því frjálst að ræða við önnur lið í sumar. Durant er einn besti körfuboltamaður heims og er ljóst að hörð barátta er fram undan um að tryggja sér þjónustu hans þrátt fyrir að hann hafi slitið hásin á dögunum og óvíst hvort hann komi við sögu á næsta tímabili. Ákvörðun Durants um að semja við Golden State árið 2016 var afar umdeild en hann yfirgefur San Francisco með tvo meistarahringa í farteskinu og reynslunni ríkari. Nú ætlast hann til þess að fá greitt eftir að hafa veitt forráðamönnum Gold- en State afslátt undanfarin ár til að aðstoða við að byggja upp liðið og að hann verði í forgrunni liðs sem ætlar sér meistaratitil. Durant er eitt hættulegasta sókn- arvopn sem deildin hefur séð með stærð sinni og hæfileikum og lið sem nær að semja við hann verður strax talið líklegt til þess að landa meistaratitlum næstu árin en hver er næsti áfangastaður hans? Hann hefur sjálfur ekki útilokað að semja á ný við Golden State en það eru fleiri lið sem ætla sér að semja við þennan magnaða leikmann til að blanda sér í baráttuna um meistaratitilinn. – kpt 25 Durant er með 25 stig að meðaltali í þeim 849 leikj- um sem hann hefur leikið í NBA-deildinni. 2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.