Fréttablaðið - 15.08.2019, Qupperneq 30
FÓTBOLTI Ný skýrsla frá Starlizard
Integrity Services, í samstarfi við
Stats perform og TXOdds, sýnir
örlitla fækkun á grunsamlegum
veðmálum tengdum fótbolta. Tveir
leikir, f lokkaðir í A-f lokk, koma
þó í fyrsta sinn fyrir í skýrslunni
vegna gruns um spillingu. Aldr-
ei áður hefur leikur í þeim f lokki
komið fyrir í skýrslu af þessu
tagi. Í A-f lokki teljast leikir á HM
og aðrir stórleikir. Alls voru 377
leikir merktir sem grunsamlegir í
skýrslunni en þeir voru 397 fyrir
árið 2017. Mun f leiri leikir voru þó
skoðaðir í fyrra.
Alls voru skoðaðir yfir 62 þúsund
leikir í 115 löndum sem þýðir að í
aðeins 0,61 prósenti leikja sem voru
skoðaðir var grunur um að leyndist
óhreint mjöl í pokahorninu. Leik-
irnir ná frá karla- og kvennaf lokki
og niður í unglingaf lokk.
Flestir leikir voru skoðaðir í Evr-
ópu eða 35.469 og voru 227 merktir
sérstaklega vegna gruns um spill-
ingu.
Af þeim 377 leikjum sem merktir
voru vegna gruns um spillingu
voru 58 í yngri f lokkum. Skýrslan
nafngreinir ekki deild eða leiki
en tekur fram að í einni unglinga-
deild í Evrópu hafi verið gríðarlega
mikið veðjað á úrslit.
47 landsleikir voru merktir, þar
af fimm af tíu landsleikjum hjá
einu landsliði á árinu. Grunsemdir
um spillingu eru sem fyrr mestar í
Asíu samkvæmt skýrslunni.
Í könnun sem Leikmannasam-
tökin létu gera meðal leikmanna
í efstu deild hér heima, og 191
leikmaður tók þátt í, kom fram að
rætt hefði verið við átta leikmenn
á þessu ári um að úrslitum hefði
verið hagrætt, eða fjögur prósent.
Sama prósentutala var í könnun
ársins 2016. – bb
Orkan sem hefur
farið í þetta hjá
öllum er mikil og vonandi
getum við nú beint henni
annað og orðið betri í
íþróttinni.
FÓTBOLTI Leikur FH og KR í und-
anúrslitum Mjólkurbikarsins hófst
klukkan 18 en í Kaplakrika eru
engin flóðljós og því þurfti að hafa
snör handtök eftir vinnu í gær til að
ná á leikinn. Valdimar Svavarsson,
formaður knattspyrnudeildar FH,
segir að það sé ekki á döfinni að
koma upp f lóðljósum, annað sé í
forgangi.
Í f undargerð innkauparáðs
Reykjavíkur frá því í júlí kemur
fram að Þróttur og Leiknir séu að
endurnýja vallarlýsingu á sínum
völlum og er kostnaðaráætlun 65
milljónir króna. Eftir verslunar-
mannahelgi er yfirleitt spilað á
völlum sem ekki hafa f lóðlýsingu
mun fyrr að deginum, þótt leik-
dagarnir séu yfirleitt um helgar en
það er ekki algilt. Á mánudag mæta
Víkingar í heimsókn í Frostaskjól
og hefst leikurinn klukkan 18 en
þar eru engin f lóðljós á meðan
viðureign Breiðabliks og Vals hefst
klukkan 19.15 undir skærum flóð-
ljósum.
„Flóðljós hafa ekkert verið sér-
staklega sett á dagskrá. Við erum
með grasvöll og ætlum að vera með
grasvöll um ókomna tíð. Þá er yfir-
leitt leiktímum stillt upp eftir birtu
og þetta hefur ekki verið uppi á
borðum hér í Kaplakrika. Þetta
hangir saman við velli sem eru í
notkun allt árið eins og gervigras-
vellir eru almennt og ef mig mis-
minnir ekki þá eru ekki margir
grasvellir með f lóðlýsingu fyrir
utan þjóðarleikvanginn, Laugar-
dalsvöll,“ segir hann.
Aðstaðan var löngu sprungin
Aðstaða til knattspyrnuiðkunar í
Kaplakrika hefur verið á milli tann-
anna á fólki þar sem ýmislegt hefur
verið látið f lakka. Á 90 ára afmæl-
isári félagsins er þó horft björtum
augum til framtíðar og segir Valdi-
mar að spennandi hlutir séu að ger-
ast. „Við tökum Skessuna í notkun
von bráðar og þar verður góð lýsing
og góð aðstaða. Við getum vonandi
tekið næstu skref þegar Skessan
verður opnuð og haldið áfram að
bæta okkur.
Þá verðum við komin með þrjú
yfirbyggð hús með mismunandi
kosti hvert hús. Þá getum við veitt
meiri þjónustu. Við erum búin að
skrifa undir samninga við 10 unga
FH-inga og við erum að byggja upp
hópinn og styrkja grunninn fyrir
framtíðina. Þetta eru strákar frá
15-19 ára og við erum að setja meiri
kraft í þann hóp. Við erum með
afreksstefnu sem sinnir þessum
betri og efnilegri strákum og stelp-
um því við viljum byggja á okkar
uppalda fólki. En vegna aðstöðu-
leysis höfum við ekki getað gert eins
mikið og við hefðum viljað og þetta
er hluti af því að bæta úr því.“
Í skýrslu frá 2017 um aðstöðu til
knattspyrnuiðkunar í Hafnarfirði
sem Geir Bjarnason skrifaði kemur
fram að hægt hefði verið að létta
á þörfinni fyrir aukið rými með
aðgerðum sem enginn vildi fara í.
Að takmarka fjölda iðkenda, tak-
marka rými, hækka gjöld og fækka
æfingum. Í skýrslunni kom fram að
að jafnaði séu um 400 börn í hverj-
um árgangi í grunnskólum bæjar-
ins og sem dæmi voru um 280 börn
skráð í 5. f lokk karla og kvenna hjá
Haukum og FH. Valdimar segir að
aðstaðan í Kaplakrika hafi verið
löngu sprungin. „Hún var það. Ef
maður lýsir þessum síðustu tveimur
til þremur árum þá var þetta þannig
að við vorum að æfa í okkar húsum
en vegna fjölda komum við okkar
æfingum ekki fyrir þannig að við
höfum æft á ÍR-velli í Breiðholti,
Álftanesi, Ásvöllum og þetta hefur
komið mörgum í erfiða stöðu, sér-
staklega á síðustu tveimur árum.
Orkan sem hefur farið í þetta hjá
öllum er mikil og vonandi getum
við nú beint henni annað og orðið
betri í íþróttinni og umgjörð og
öðru sem viðkemur fótboltanum.“
Horfir til betri vegar
K nattspy rnudeildin telur um
þúsund manns og segir Valdimar
að Hafnarfjarðarbær hafi nýverið
hækkað niðurgreiðslu til foreldra
vegna íþróttaiðkunar sem hann
fagni. Það sé þó önnur hlið á pen-
ingnum. „Bæjaryfirvöld hafa ekki
alltaf áttað sig á því að með því
að fjölga iðkendum og hvetja til
íþróttaiðkunar þarf að veita þjón-
ustu og ef félögin hafa ekki aðstöðu
eða umgjörð til þess þá er erfitt að
stunda íþróttina. En þetta horfir allt
til betri vegar og bærinn er að gera
fína hluti eins og við.“
Hann segir að framtíðin sé björt í
Kaplakrika og á þessu afmælisári sé
gott að kíkja í kristalskúluna. „Ég er
bjartsýnn á framtíðina og þó maður
geti alltaf pirrað sig yfir að vinna
ekki alla fótboltaleiki þá erum við
að standa okkur almennt mjög vel
hvert sem litið er. Við erum félag
sem þorir og við ætlum að leggja
áherslu á góða þjónustu við okkar
iðkendur og með komu Skessunnar
erum við komin með aðstöðu sem
fáir ef einhverjir geta keppt við.“
benediktboas@frettabladid.is
Tökum næsta skref með Skessunni
Aðstaða til knattspyrnuiðkunar í Kaplakrika mun gjörbyltast þegar Skessan verður tekin í notkun eftir rúman mánuð. Síðustu tvö
ár hafa verið erfið fyrir iðkendur að sögn Valdimars Svavarssonar, formanns knattspyrnudeildarinnar. Flóðljós ekki á leiðinni.
Valdimar Svavarsson í Kaplakrika á sínum heimavelli skömmu fyrir leikinn gegn KR. Hann gerir ráð fyrir að Skessan verði komin í notkun í september og
það muni breyta miklu fyrir knattspyrnuaðstöðu í Hafnarfirði. Þrjú yfirbyggð hús verða þá í Kaplakrika, misstór. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
47 landsleikir voru merktir grunaðir um spillingu, þar af fimm af 10 lands-
leikjum hjá einu liðinu. Myndin tengist ekki fréttinni beint. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Alþjóðlega fótboltaspillingin nær til átta leikmanna á Íslandi
Grunsamlegir leikir
2018
Afríka 5
Asía 69
Evrópa 227
Landsleikir 47
Norður-Ameríka 4
Ástralía 1
Suður-Ameríka 24
Alls 377
1 5 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
5
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
6
-B
1
F
C
2
3
9
6
-B
0
C
0
2
3
9
6
-A
F
8
4
2
3
9
6
-A
E
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K