Mosfellingur - 04.07.2019, Blaðsíða 10
- Fréttir úr bæjarlífinu10
Þú sækir pizzu og stóran skammt
af brauðstöngum og færð
aðra pizzu sömu stærðar að auki.
DOMINOS.IS | DOMINO’S APP | 58 12345
GLÆSILEGAR NÝJAR FULLBÚNAR ÍBÚÐIR VIÐ GERPLUSTRÆTI 17-23
Um er að ræða tvö 4. hæða 11 íbúða lyftuhús sem standa efst í Helgafellslandi, beint fyrir ofan skólann og er glæsilegt
útsýni til suðurs og vesturs. Íbúðirnar eru tveggja til fimm herbergja, gengið inn frá stigahúsi.
Daði Hafþórsson
löggiltur fasteignasali
dadi@eignamidlun.is
Sími 824 9096
Hilmar Þór Hafsteinsson
löggiltur fasteignasali
hilmar@eignamidlun.is
Sími 824 9098
Íbúðum skilað fullbúnum með öllum gólfefnum.
Öllum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu.
Birt stærð íbúða er 81-158 fm.
Gerplustræti 17-23, 270 Mosfellsbær
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
BÓKIÐ SKOÐUN
GLÆSILEGAR NÝJAR FULLBÚNAR ÍBÚÐIR VIÐ GERPLUSTRÆTI 17-23
Um er að ræða tvö 4. hæða 11 íbúða lyftuhús sem standa efst í Helgafellslandi, beint fyrir ofan skólann og er glæsilegt
útsýni til suðurs og vesturs. Íbúðirnar eru tveggja til fimm herbergja, gengið inn frá stigahúsi.
Daði Hafþórsson
löggiltur fasteignasali
d di@eignamidlun.is
Sími 824 9096
Hilmar Þór Hafsteinsson
löggiltur fasteignasali
hil ar@eign midlun.is
Sími 824 9098
Íbúðum skilað fullbúnum með öllum gólfefnum.
Öllum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu.
Birt stærð íbúða er 81-158 fm.
Gerplustræti 17-23, 270 Mosfellsbær
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
BÓKIÐ SKOÐUN
Læknaskortur hefur komið niður á þjónustu Heilsugæslunnar • Samningur undirritaður um nýja stöð í Sunnukrika
„Viljum geta sinnt öllum íbúunum“
Heilsugæsla Mosfellsumdæmis og Sunnubær ehf. hafa
skrifað undir samning um nýja heilsugæslustöð í Mos-
fellsbæ.
Hún mun rísa í Sunnukrika neðst í Krikahverfi og munu
framkvæmdir hefjast á næstu dögum. Gert er ráð fyrir að
húsnæðið verði tilbúið í lok ársins 2020. Þar verður einnig
gert ráð fyrir apóteki og annarri heilsutengdri starfsemi.
„Það eru bjartari dagar í vændum með betri mönnun og
betra aðgengi að þjónustu,“ segir Svanhildur Þengilsdóttir
svæðisstjóri Heilsugæslu Mosfellsumdæmis.
Húsnæðið í Kjarna löngu sprungið
Heilsugæslan hefur verið starfrækt í Kjarnanum í um 20
ár, frá því íbúafjöldi var um 5.000, þar til nú þegar bæjarbú-
ar eru að verða 12.000 talsins. Það er því ljóst að húsnæðið
sem nú þjónar umdæminu er löngu sprungið.
„Það er ekki hægt að líkja saman aðstöðunni núna og
þeirri sem verður á nýja staðnum. Stöðin verður öll nú-
tímalegri og allt önnur vinnuaðstaða fyrir starfsfólk og
aðkoma fyrir skjólstæðinga.
Þetta verður flottasta heilsugæsl-
an á höfuðborgarsvæðinu og það er
mikil tilhlökkun í okkar herbúðum,“
segir Svanhildur.
Gert er ráð fyrir að lágmarki 10
læknum og vonast er til þess að
stöðin verði eftirsóttur vinnustaður
og sveitarfélaginu til sóma. „Við vilj-
um auðvitað geta sinnt öllum íbúum
sveitarfélagsins,“ segir Svanhildur
en á nýju stöðinni verður gert ráð
fyrir að hægt verði að sinna 12−15
þúsund manns.
Erfiðlega hefur gengið að sinna íbúum
Í tilkynningu frá Heilsugæslunni á dögunum var beðist
velvirðingar á því hve erfiðlega hefur gengið að sinna íbú-
um. Óvænt veikindi starfsmanna og breytingar á mönnun
hafa valdið læknaskorti.
„Undanfarnir mánuðir hafi verið erfiðir hjá okkur og við
höfum því miður ekki getað sinnt
öllu því fólki sem leitar til okkar.
Við höfum verið að glíma við
heimilislæknaskort.
Orðræðan sem fór af stað m.a.
á samfélagsmiðlum fannst mér
bæjarbúum ekki til sóma. Ýmsum
rangfærslum var haldið fram sem
ekki voru svaraverðar. Þeir sem hér
vinna hafa alltaf lagt sig 150% fram
við að mæta öllum þörfum þeirra
sem hingað hafa leitað og þykir okk-
ur því umræðan auðvitað leiðinleg
og oftar en ekki ósanngjörn
Staðan í dag er orðin betri og við höfum fengið til okkar
lækna til starfa, bæði nýja og frá öðrum stöðum.“
Sjá fram á öflugri Heilsugæslu Mosfellsumdæmis
Á heilsugæslu Mosfellsumdæmis eru skráðir 10.000
manns. Svanhildur segist ekki hafa orðið vör við flótta af
stöðinni í Mosfellsbæ en þjónustan sé vissulega viðkvæm.
„Við gerum allt sem við getum til að þjóna okkar fólki sem
best og þykir miður að við höfum ekki náð að gera eins vel
og við hefðum viljað.“
Jafnframt þakkar hún fyrir biðlund og traust sem íbúar
hafa sýnt heilsugæslunni og sér fram á öflugri heilsugæslu.
„Við höfum ekki náð að halda uppi tveggja tíma síðdegis-
vakt með tveimur læknum eins og áður og auðvitað finnur
fólk fyrir því og bregður jafnvel við að þurfa frá að hverfa.
Við höfum þá vísað á síðdegisvakt í Grafarvogi og morg-
un- og síðdegismóttöku í Árbæ. Eftir kl. 17 er síðan hægt
að leita á Læknavaktina í Austurveri.
Við stefnum að því að endurvekja tveggja tíma síðdegis-
vakt hjá okkur enda viljum við hafa fólkið hjá okkur og ekki
þurfa að vísa því í burtu.
Í dag erum við afskaplega ánægð með að það sé að birta
til og við höfum eitthvað til að hlakka til.“
Eins og fyrr segir munu framkvæmdir hefjast á næstu
dögum. Formður skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Ásgeir
Sveinsson, segir bæjaryfirvöld leggja á það mikla áherslu
að jarðvinnu verði lokið áður en skólastarf í Krikaskóla
hefst í haust.
heilsugæslan í kjarna
tölvugerð mynd af nýrri heilsugæslu,
í hærri byggingunni verða íbúðir