Mosfellingur - 04.07.2019, Blaðsíða 16
- Fréttir úr bæjarlífinu16
Biggi þjálfari opnar vefsíðuna www.coachbirgir.com • Tindahlaupið fær alþjóðlega vottun
Nýr vefur fyrir íþróttafólk
sem vill ná langt í sinni grein
Valinn besti ungi
listamaðurinn
Óperusöngvarinn Unnsteinn
Árnason hlaut á dögunum verðlaun
á austurrísku tónleikhúsverð-
laununum sem besti ungi lista-
maðurinn. Verðlaunin hlaut hann
fyrir hlutverk sitt sem Mr. Kofner í
óperunni Konsul eftir Menotti. Á
myndinni hér að ofan er Unnsteinn
og Veronika Ómarsdóttir kona hans
en þau eru búsett í Vínarborg.
Þau hjónin Linda Svanbergsdóttir og Birgir
Arnaldur Konráðsson, betur þekktur sem
Biggi Boot Camp, opnuðu á dögunum nýja
vefsíðu þar sem áhersla er á tilbúin æfinga-
prógrömm fyrir íþróttafólk.
Þau hafa búið í Kaupmannahöfn í fjögur
ár þar sem þau hafa kynnt og fylgt eftir Boot
Camp-inu ásamt því að þjálfa, en Birgir
fagnar um þessar mundir 25 ára þjálfara-
afmæli.
„Það var alltaf einn og einn íþróttamað-
ur í þjálfun hjá mér og svo fór að fjölga í
þeim hópi. Það var orðin mikil eftirspurn
eftir prógrömmum á netinu en við höfum
verið að selja þau út um allan heim,“ segir
Birgir.
Eins og staðan er núna er einna mest
áhersla á handboltann þó svo að við sinn-
um vel öllum íþróttagreinum. Meðal þeirra
sem hafa verið í þjálfun hjá Birgi eru Guð-
jón Valur handboltamaður og Rúnar Alex
fótboltamaður.
Persónulegri þjálfun
„Við erum með tilbúin sérprógrömm
fyrir undirbúniningstímabil og keppnis-
tímabil, prógrömm með og án þyngda,
fyrir unglinga og einnig úthaldsíþrótta-
fólk, s.s. hlaupara og hjólara. Þessir stóru
klúbbar eru flestir bara ótrúlega aftarlega
hvað varðar styrktarþjálfun fyrir fólkið sitt,
yfirleitt eitt prógram á alla, óháð stöðum og
áherslum,“ segir Birgir.
Einnig bjóða þau upp á fjarþjálfun fyrir
íþróttafólk sem byggist meira á daglegum
samskiptum þar sem allt er sérsniðið að
þörfum og dagsformi hvers og eins.
„Við stefnum svo á að gera aðra síðu á
íslensku þar sem fókusinn er meiri á al-
menning.“
Undirbúningur fyrir Tindahlaupið
Birgir hefur yfirumsjón með Tindahlaupi
Mosfellsbæjar fram fer laugardaginn 31.
ágúst á bæjarhátíðinni Í túninu heima.
„Þar er allt á sínum stað, við erum alltaf
að gera hlaupið betra og betra. Við vorum
að fá vottun á hlaupaleiðirnar frá alþjóða-
samtökum um utanvegahlaup.
Þá eru leiðunum gefnir punktar eftir
erfiðleikastigi. Sjö tindarnir fengu tveggja
punkta viðurkenningu og 5 og 1 tindur
fengu einn punkt,“ segir Birgir.
„Þessir punktar nýtast t.d. hlaupurum
sem stefna á erfið utanvegahlaup erlendis,
t.d. 100 km í Ölpunum. Þá þarf að vera búið
að safna ákveðið mörgum punktum til að
mega hlaupa.
Þessi vottun er virkilega mikill gæða-
stimpill á Tindahlaupið, en fá hlaup á Ís-
landi teljast til tveggja punkta hlaupa.“
Hægt er að kynna sér nýja vefsíðu
á slóðinni www.coachbirgir.com
þjálfarinn birgir
tindahlaupið
fer fram 31. ágúst
jafnréttisviðurkenning mosfellsbæjar 2019
Óskum eftir tilnefningum
til jafnréttisviðurkenningar
Útnefning lýðræðis- og mannréttindanefndar
verður kynnt á jafnréttisdegi mosfellsbæjar,
þann 19. september næstkomandi.
við hvetjum ykkur til að fara inn á mos.is/jafnretti og senda
tilnefningar ásamt rökstuðningi fyrir 19. ágúst næstkomandi.
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Lýðræðis- og mannréttindanefnd Mosfellsbæjar óskar
eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar
fyrir árið 2019. Tilgangurinn er að veita viðurkenningu
fyrir vel unnin störf að jafnréttismálum í samræmi
við jafnréttisáætlun Mosfellsbæjar.
Til að eiga möguleika á að hljóta jafnréttis-
viðurkenningu Mosfellsbæjar árið 2019, þarf:
1. einstaklingur að hafa skarað framúr
í vinnu að jafnréttismálum.
2. fyrirtæki, stofnun eða félag að hafa:
a) Sérstaka stefnu eða áætlun í jafnréttismálum.
b) Unnið í því að afnema staðalímyndir kynjanna.
c) Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að
framgangi jafnréttis kvenna og karla.
d) Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir
kynbundið- eða kynferðislega áreitni á vinnustað.
e) Veitt starfsmönnum fræðslu um jafnréttismál.