Mosfellingur - 04.07.2019, Blaðsíða 20

Mosfellingur - 04.07.2019, Blaðsíða 20
 - Bókasafnsfréttir20 byg g i n ga f é l ag i ð Nú eru aðeins nokkrir dagar eftir af sýningunni Teppi á veggnum eftir Röndu Mulford textíllistakonu. Við hvetjum fólk til að láta þessa vinsælu sýningu ekki fram hjá sér fara, enda ekki á hverjum degi sem hægt er að líta augum jafn glæsilega bútasaumslist. Næsta sýning í Listasal Mosfellsbæjar er „Óþreyju barn, kom innst í lundinn“ sem er samsýning Hörpu Dísar Hákonardóttur og Hjördísar Grétu Guðmunds- dóttur um skáldkonuna Huldu. Opnun verður föstudaginn 12. júlí kl. 16−18. Síðasti sýningardagur er 9. ágúst. Bókasafn Mosfellsbæjar bauð fimmta árið í röð til ritsmiðju fyrir 10−12 ára börn. Smiðjan var haldin 12.−14. júní í safninu og leiðbeinandi var Davíð H. Stefánsson rithöfundur. Níu krakkar tóku þátt að þessu sinni og var ýmsum hugmyndum hent á loft til að örva sköpunargáfuna. Að smiðju lokinni var foreldrum boðið til útskriftar þar sem börnin lásu úr verkum sínum og fengu afhent viður- kenningarskjöl. Þetta var skemmtileg stund þar sem rithöfundar framtíðarinnar fengu að láta ljós sitt skína við góðar undirtekt- ir. Börn og foreldrar voru mjög ánægð með þetta framtak Bókasafnsins og Davíð var klappað lof í lófa. Við þökkum börnunum kærlega fyrir þátttökuna, sjáumst aftur að ári. Bókasafn Mosfellsbæjar Ritsmiðja 2019 - fyrir 10−12 ára Listasalur Mosfellsbæjar sýning til heiðurs Huldu skáldkonu Opið alla daga kl. 11-21 Þú finnur okkur við Miðbæjartorgið í Mosó Nýtt bílalúga Það er ekki of seint að skrá sig í Sumarlesturinn en hann stendur til 5. september 2019. Öll börn geta verið með og skráð í pésann bækur sem þau lesa eða hlusta á. Fyrsta fimmtudag hvers mánaðar hittumst við í barnadeildinni, skröfum um bækur og leysum þrautir. Þrír þátttakendur geta átt von á glaðningi. Hittumst í Bókasafninu! Bókasafn Mosfellsbæjar Náðu þér í bókapésa RitsnillingaR ásamt leiðbeinanda sínum HaRpa dís og HjöRdís gRéta

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.