Mosfellingur - 04.07.2019, Blaðsíða 14

Mosfellingur - 04.07.2019, Blaðsíða 14
Golf- oG leikja- námskeið Gm Golfklúbbur Mosfellsbæjar mun bjóða upp á golf- og leikjanámskeið fyrir börn á aldrinum 6–13 ára í sumar. Námskeiðin eru með nýju sniði en þau eru byggð upp á skemmtilegum leikjum bæði á golfvellinum og í nánasta umhverfi hans. Golfið verður aldrei langt undan en einnig verður farið í sund og fjöruferðir og ýmislegt fleira skemmtilegt! Skráning á námskeiðin hefst 23. apríl á golfmos.felog.is, nánari upplýsingar um námskeiðin dg@golfmos.is Reiðskóli HestamenntaR Reiðnámskeiðin eru fyrir börn og unglinga frá 6–14 ára. Námskeiðin hefjast þann 11. júní og standa til 22. ágúst. Stubbanámskeið verður fyrir 4–6 ára börn, Námskeiðin hefjast vikuna 22.–26. júlí kl. 9–12. Skráning og allar nánari upplýsingar eru á www.hestamennt.is Hægt er að hafa samband með tölvupóst á hestamennt@ hestamennt.is eða í síma 865-2809, Fredrica. knattspyRnuskóli aftuReldinGaR Skóli á vegum knattspyrnudeildar Aftureldingar þar sem meginmarkmiðið er að börn á aldrinum 7–15 ára læri undirstöðuatriði í fótbolta á leikrænan og skemmtilegan hátt. Lögð er áhersla á grunntækni í knattspyrnu og að allir fái verkefni við sitt hæfi. Skólinn er kjörinn vettvangur fyrir nýja iðkendur til að kynnast grunnatriðum íþróttar- innar en er jafnframt ætlaður börnum sem æfa fótbolta og vilja skemmtilega viðbót við hefðbundnar æfingar. Skráning fer fram á afturelding.felog.is og nánari upplýsingar bjarki@afturelding.is fótboltaakademía fyRiR 5. oG 4. flokk Knattspyrnudeild Aftureldingar kynnir námskeið fyrir leikmenn 5. flokks og 4. flokks karla og kvenna. Boðið verður upp á fótboltaakademíu í júní og ágúst fyrir þessa flokka. Markmiðið er að bæta við æfingum fyrir þennan aldur til að auka tæknilega færni, sendingar og móttökur. Á sama tíma verður boðið upp á metnaðarfulla akademíu fyrir markmenn þar sem farið verður yfir tækni- lega færni, staðsetningar, fótavinnu og fleira. Skráning fer fram á afturelding.felog.is og nánari upplýsingar bjarki@ afturelding.is sumaRlestuR baRna Markmiðið með Sumarlestrinum er að hvetja börn til þess að lesa í sumarleyfinu. Þannig öðlast þau meiri lesskilning og orðaforða ásamt því að fá að njóta ævintýraheima bók- anna. Hægt er að skrá sig frá og með 25. maí í afgreiðslu Bókasafnsins. Hittingur þátttakenda verður í safninu fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl. 14.00. Sumarlestrinum lýkur í september. Ritsmiðja fyRiR 10 - 12 áRa böRn Ritsmiðja verður starfrækt í bókasafninu miðvikudag, fimmtudag og föstudag 12.–14. júní kl. 13.00–15.30 alla dagana. Leiðbeinandi er Davíð H. Stefánsson rithöfundur. Lögð verður áhersla á orðaleiki, brandara og frásagnir. Ekki er skilyrði að þátttakendur séu vanir að skrifa sögur – bara að þeir séu tilbúnir að leika sér með tungumálið og smjatta á orðunum! Boðið verður upp á hressingu. Námskeiðið er ókeypis. Hægt er að skrá sig í afgreiðslu safnsins. Athugið að takmarkaður fjöldi kemst að. ÆvintýRanámskeið mosveRja Skátafélagið Mosverjar stendur fyrir námskeiðum sem tilvalin eru fyrir hressa krakka sem vilja fara í alvöru ævintýri í sumar. Dagskráin er fjölbreytt og spennandi og byggist upp á skemmtilegri útiveru. Dæmi um viðfangsefni: Hjólaferðir, fjöruferð, sundferð, baka brauð við eld, ratleikur með verkefnum og alls konar skemmtilegt. Frekari upplýsingar á sumar@mosverjar.is. Skráning fer fram á https://skatar.felog.is. bÆjaRleikHúsið – leikGleði 2019 Leikfélag Mosfellssveitar stendur fyrir hinum sívinsælu leik- og tónlistarnámskeiðum í júní og júlí í sumar. Í boði verða námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6–8 ára, 9–12 ára og 13–16 ára. Á námskeiðunum vinna nemendur með sjálfstraust, framkomu og framsögn, sigrast á feimni og kynnast hinum ýmsu þáttum sem snúast að leikhússtarfi. Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráning eru á heimasíðu Leikgleði, www.leikgledi.is köRfubolta- leikjanámskeið Skemmtilegt leikjanámskeið þar sem markmiðið er að hafa körfubolta í hönd, fara í leiki en fyrst og fremst að hafa gaman. Sumaræfingar Á sumaræfingum verður lögð áhersla á einstaklings- miðaðar séræfingar eins og sóknarhreyfingar, dripl, skot og sendingar sem miða að því að bæta og styrkja viðkomandi iðkanda í íþróttinni þannig að hann mæti vel undirbúin fyrir veturinn. Frekari upplýsingar um námskeið afturelding.is sumaRsmiðjuR fyRiR 10-12 áRa Allir krakkar mega mæta hvort sem smiðjan er í Lágóbóli eða Varmábóli. Þriðjudagar eru í Lágóbóli frá kl. 10–14:30 Fimmtudagar eru í Varmábóli frá kl. 10-14:30 Skráning skal senda á bolid@mos.is og tilgreinið nafn barns, skóla, nafn foreldra og símanúmer. Skráning þarf að berast fyrir kl. 16:00 deginum áður. fRjálsíþRóttanám- skeið aftuReldinGaR Leikjanámskeið með áherslu á frjálsar íþróttir á Varmárvelli í Mosfellsbæ. Tilvalið fyrir krakka sem vilja kynnast frjálsíþróttum, fara í leiki og hafa gaman. Skráning fer fram í Nora. Nánari upplýsingar veita Hanna Björk hannabjork@afturelding.is, Unnur afiafi@simnet.is,Toggi toggi@vov.is og í síma: 566-7089 sumaRnámskeið fyRiR böRn oG unGlinGa NáNari upplýsiNgar um NámskeiðiN á mos.is

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.