Mosfellingur - 04.07.2019, Blaðsíða 4

Mosfellingur - 04.07.2019, Blaðsíða 4
Í þá gömlu góðu... héðan og þaðan Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is) „Erum orðin leið á að hanga í sjoppunni“ Myndin er frá því í desember árið 1981. Á henni eru unglingar sem voru fremstir í félagsmálum í GAGGÓ MOS á þessum tíma. Hugur þeirra stóð til þess að fá félagsmiðstöð fyrir unglinga í Mosfellssveit. Í framhaldinu var stofnuð Félagsmiðstöðin BÓL eða BÓLIÐ. Bólið hefur verið til húsa í Símstöðvarhúsinu við Brú- arland og Læknishúsinu við Varmárskóla. Nafnið kemur til af því að húsið var upphaflega byggt fyrir héraðslækninn, sem aldrei flutti í húsið en annað hús var byggt á Reykja- lundi fyrir hann. Upphaflega var rekin heimavist þar fyrir nemendur af Kjalarnesi og úr Kjós. Síðan var þar leikskóli, smíðakennsla o.fl. MOSFELLINGUR www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is Næsti Mosfellingur kemur út 27. ágúst Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is Ritstjórn: Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is Prentun: Landsprent. Upplag: 4.500 eintök. Dreifing: Pósturinn. Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf. Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265 Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag. Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti. Mikið hefur verið skrafað um þjónustu heilsugæslunnar okkar í Mosfellsbæ. Það er slæmt að fá ekki þá þjónustu sem maður þarf, þegar maður þarf. Ljóst er að heilsugæslustöðin er löngu sprungin enda fjölgar Mosfellingum hraðar en ég veit ekki hvað. Hér hefur verið mesta íbúafjölg- un nánast allra sveitarfélaga á Íslandi síðast- liðinn áratug. Mosfelling- um hefur fjölgað um 57% á síðustu 10 árum. Til viðmiðunar hefur heilsugæslan verið í Kjarnanum í 20 ár. Læknar hafa ekki fengist til starfa og heilsugæslan gaf út afsökunarbeiðni á dögunum þar sem þjónustan er hörmuð. Nú hefur verið ákveðið að byggja nýja stöð í Krikahverfi og styttist vonandi í sómasamlega þjónustu í umdæminu. Bæjarblaðið Mosfellingur fer nú í sumarfrí og mætir aftur til leiks fyrir bæjarhátíðina Í túninu heima í lok ágúst. Hvet ég Mosfellinga til að taka virkan þátt í hátíðarhöldunum og undirbúa eitthvað stórkostlegt. Þetta er hátíðin okkar. Betri heilsugæsla Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings www.isfugl.is SímStöðvarhúSið LækniShúSið Unglingahópur. Fremst Ingibjörg Guðjónsdóttir, Sigríður Tómasdóttir, Guðmundur Hreinsson, Svava Tómasdóttir, Árni Stefánsson og aftast Dagný Davíðsdóttir, Sigsteinn Grétarsson. - Fréttir úr bæjarlífinu64 take away tilboð TAKTU MEÐ’ÉR HEIM Þrjár pizzur fyrir tvær ef Þú sækir ódýrasta pizzan er frí Blackbox Borgartúni 26 / Blackbox Mosó háholt 13-15 blackboxpizza.is 3 2/ Chickencado sósa, óðals búri, kjúklingur, kirsuberja-tómatar, avókadó, pestó og chili majó Pizzilla hvítlauksolía, ostablanda, Romano, beikon, rauðlaukur, jalapeno, döðlur og chili mayo nýjar pizzur hjá okkur h-angrytilboð Sýndu miðann og þú fæ rð KRYDDBRAUÐ frítt með keyptri pizzu

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.