Mosfellingur - 04.07.2019, Blaðsíða 32

Mosfellingur - 04.07.2019, Blaðsíða 32
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Henning Örn fæddist í Stokkhólmi 18. mars 2019. Hann var 18 merkur. Foreldrar eru Hrefna Jónsdóttir og Örn Ingi Bjarkason. Í eldhúsinu Steina- eyjan Hér tIl að velta þungum Sem léttum SteInum. góðan daginn, við í Steinaeyjunni tökum á okkur fyrir hönd fólksins að ræða málefni sem fara fram hér í bæ og miðla þekkingu okkar og reynslu af málefnum samfélagsins. við erum tveir strákar með brennandi áhuga á menningu mosfellsbæjar og hag fólksin s í bænum. við félagarnir höfum rekist á smá vandamál í bænum, en vandamálið hljómar svona: það eru ekki nógu margir veltanlegir steinar sem hægt er að velta yfir tebolla með vinum. við í Steinaeyjunni leggjum til að Halli bæjó hífi upp um sig buxurnar og fari að rífa sig í gang og komi með einhverj a steina upp á yfirborðið. Hann er ekki að fá milljónir á mánuði fyrir að sitja á rassgatinu og spila kapal í golfskálanum , en Halli bæjó er okkar maður. við höfum fulla trú á hans hæfileikum og hann hefur sýnt í gegnum tíðina hvers megnugur hann er. Hann er voldugasti bæjarstjóri mögulega allra tíma í Íslandssögunni o g hugsar um hag fólksins fyrst og fremst. SteInar Sem þarF nauðSynlega að velta: • Hvað er Úrsúla búin að vera gera seinustu misseri? • Hversu langan tíma tekur að klára þetta fótboltahús? • Hvað er á döfinni hjá Steinda Jr? • Hversu margir borga í raun og veru fyrir aðgang að eldingu sem stunda rækt þar? • mun afturelding ná að halda sér uppi í Inkasso? • er Blackbox peninganna virði? • er Halli bæjó „worth it“? • Hvenær í andskotanum kemur hollur veitingastaður í mosó? • er Fortnite dauður? • er umræðuvettvangur mosfellsbæjar bara grúbba fyrir fólk til að nöldra um hluti? • er svona mikilvægt að taka myndir af krökkum saman á vespu? • Halli bæjó vs Hjalti Úrsus í 100 m sprett? þetta er svona smá innsýn í það hversu þungum steinum við munum velta næs tu misseri. allar fyrirspurnir og kvartanir berist á póstfangið steinaeyjan@gmail. com. það eina sem við viljum er að fólk sameinist í okkar fallega bæ. Sigríður Guðmundsdóttir skorar á Leif Guðjónsson að deila með okkur næstu uppskrift Sigríður Guðmundsdóttir deilir hér með okkur uppskrift af jarðarberjatertu að dönskum hætti. Innihald: • 2 svampbotnar (ég hef keypt tilbúna frá Myllunni 2 í pakka) • 1 lítri rjómi • 1 askja fersk jarðarber • 500 gr rabbarbari (má hafa verið frosinn) • 1 stór dós jarðarber Aðferð: Rabbarbarinn er skorinn í bita og settur í pott ásamt jarðarberjum úr dósinni, ekki setja safann af jarðarberjunum í pottinn. Soðið við vægann hita þar til þetta er orðinn grautur (ekki sulta), það má setja smá safa úr dósinni út í. Grauturinn þarf síðan að kólna alveg. Svampbotnarnir er klofnir í tvennt þannig að úr verða 4 botnar. Þeyta rjómann létt - varast að hafa hann of þykkan. Þá er að setja tertuna saman: botn – grautur – rjómi endurtekið með alla botnana. Efst eru svo sett fersk jarðarber ofan á rjómann. Tertan er best nýlega sett saman. Verði ykkur að góðu. Jarðarberjaterta að dönskum hætti steinakveðja steinaeyjan hjá SigrÍði - Heyrst hefur...32 heyrSt hefur... ...að Bó Hall og Baggalútur séu meðal þeirra sem ætla koma fram Í túninu heima í lok ágúst. ...að Ragnheiður Ríkharðs hafi orðið sjötug á dögunum. ...að verið sé að fara að endurnýja fræðsluskiltin við hinar ýmsu gönguleiðir í Mosó. ...að söngkonan Íris Hólm sé að undirbúa tónleika þar sem hún mun syngja lög Beyoncé. ...að Simmi Vill og Óli Valur séu að undirbúa opnun pizzustaðar að bandarískri fyrirmynd í gamla Arionbankahúsinu ásamt Hlölla. ...að komin sé skólabjalla á Helgafells- skóla sem ómi um hverfið. ...að bæjaryfirvöld hafi áhyggjur af rafrettuþróuninni í Mosfellsbæ. ...að verið sé að reisa 7.000 fermetra gróðrastöð í Mosfellsdal á vegum Lambhaga og eigendur hafi áhyggjur af fljúgandi golfkúlum frá nágrönnum sínum í Bakkakoti. ...að Jökull í Kaleo hafi mætt með sitt eigið rauðvín í brúðkaupið til Gylfa Sig á Ítalíu. ...að áheitasöfnunin í WOW Cyclothon hafi verið til styrktar Reykjadal og hafi safnast yfir sjö milljónir. ...að lögreglan hafi stoppað kannabis- ræktun í Blikahöfða á dögunum. ...að búið sé að setja upp sjálfs- afgreiðslukassa í Krónunni. ...að Guðbjörn og Ingibjörg séu að fara gifta sig í sumar. ...að Jogvan sé á hækjum. ...að túristar og aðrir gestir séu ekki ánægðir með að finna ekki upplýsingamiðstöð í Mosó. ...að slátturtraktornum af Varmárvelli hafi verið stolið. ...að meistaramót Golfklúbbsins standi nú sem hæst. ...að Ingvar læknir sé hættur á Heilsugæslunni í Mosó. ...að sérsveitin hafi verið kölluð til í Leirutanganum á dögunum þar sem saklaus maður var leiddur út í járnum. ...að Gunnsa og Bibbi séu að verða afi og amma ...að Ásta Margrét hafi farið holu í höggi á Bakkakotsvelli. ...að Simmi Vill sé orðinn talsmaður FESK, félags í eigu svína-, eggja- og kjúklingabænda. ...að Lára og Brynjar eigi von á jólabarni. ...að Heilsugæslan muni flytja í nýtt og glæsilegt húsnæði neðst í Krikahverfinu í lok næsta árs. Þar muni einnig verða apótek og önnur heilsutengd þjónusta. ...að Grímur Gunnarsson tónlistar- maður sé að flytja í Mosfellsbæ með fjölskyldu sinni. mosfellingur@mosfellingur.is Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Jóhann Dagur Sigurjónsson fæddist 2. nóvember 2018. Foreldrar eru Sigurjón Jóhannsson og Sigurbjörg Jóhannsdóttir. Fjölskyldan býr í tröllateigi 19. Boltinn í Beinni birkir og eyþór

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.