Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 10
10 26. apríl 2019FRÉTTIR
Var látin skrifa fárveik undir
starfslokasamning
Ríkey Garðarsdóttir starfaði sem
aðalbókari hjá IHS á árunum 2007
til 2013.
„Jón Ingvar Pálsson, forstjóri
IHS, og ég vorum góðir samstarfs-
félagar og vinir áður en hann varð
forstjóri og mér þótti alltaf vænt
um hann. Ég veit að ég var góður
starfsmaður, fær í mínu starfi og
afar samviskusöm. Ég var einnig
trúnaðarmaður starfsfólks í mörg
ár og í skemmtinefnd IHS. Í gegn-
um árin komu nokkrir að máli
við mig sem trúnaðarmann varð-
andi óánægju á vinnustað en því
miður var aldrei hægt að vinna úr
þeim málum þar sem viðkomandi
einstaklingar létu mig lofa að segja
ekki forstjóranum frá þessu. Vildu
greinilega bara létta á sér. Mér
fannst það bara ekki nóg og ég leit-
aði ráða hjá starfsmannafélaginu.
Þar var mér tjáð að það væri ekkert
hægt að gera ef forstjórinn mætti
ekki vita hver væri að kvarta. Þetta
var vítahringur,“ segir Ríkey.
Ríkey veiktist illa síðasta starfs-
árið sitt hjá stofnuninni. Var hún
nokkuð frá vinnu vegna veikinda.
Í september árið 2013 var Ríkey
kölluð til forstjórans fárveik til að
skrifa undir starfslokasamning:
„Það varð mér mikið áfall þegar
forstjórinn hringdi í mig heim í
september 2013 þar sem ég var
mjög veik og bað mig að koma
hitta sig daginn eftir og skrifa und-
ir starfslokasamning. Þegar ég
kom á staðinn hafði skrifstofustjóri
orð á því hvað ég væri veikluleg og
greinilega með bullandi hita og
ætti að vera heima. Ég hafði verið
mikið veik og gengið á milli lækna
til að reyna að finna út hvað am-
aði að mér, en enginn gat fundið út
úr því. Verkir, vanlíðan og hiti voru
að gera út af við mig og ástandið
fór bara versnandi. Ég greindi Jóni
Ingvari og næstu yfirmönnum
mínum ávallt frá stöðu mála. Ég
var hætt að geta sofið vegna verkja
og það var alveg sama til hvaða
læknis ég fór, enginn gat fundið út
hvað var að.
Ég spurði Jón hvort við gætum
ekki beðið með þessa uppsögn.
Það væri greinilega eitthvað mikið
að mér og mér fyndist ósann-
gjarnt að láta mig fara á þennan
hátt. Hann sagði að skrifstofustjóri
og aðstoðarskrifstofustjóri hefðu
sett honum stólinn fyrir dyrnar og
sagt honum að láta mig fara, þetta
gæti ekki gengið svona lengur, ég
væri svo mikið frá að það væri ekki
hægt að bjóða samstarfsmönnum
mínum upp á þetta.“
Ekki var nóg með að að Ríkey
væri rekin og það væri að hennar
mati mjög ósanngjörn ákvörðun,
heldur voru starfslokin niðurlægj-
andi, miðað við þessa lýsingu:
„Það var einnig rosalega sárt
þegar hann bað einn samstarfs-
mann minn þarna, sem einnig var
góður vinur minn og hans reyndar
líka, að standa yfir mér á meðan ég
tæmdi skrifstofuna mína, og skrifa
kveðjuorð til samstarfsfélaga í
gegnum tölvupóst. Mér fannst það
einkennileg framkoma eftir öll þau
ár sem ég hafði verið þarna og mér
leið mjög illa yfir því að vera ekki
treyst fyrir því að ganga frá minni
skrifstofu ein. Það síðasta sem Jón
Ingvar sagði við mig var: „Ekki
verða ókunnug, Ríkey mín, komdu
og líttu á okkur hvenær sem þú
vilt.“ Ég hef ekki stigið fæti þarna
inn eftir þennan dag og mun sjálf-
sagt aldrei gera það.
Rétt um tveimur vikum síð-
ar var ég flutt nær dauða en lífi á
sjúkrahús og í aðgerð. Þar kom
skýring á mínum miklu veikindum
og verkjum en fyrir aðgerðina tjáði
einn samstarfsmanna mér að það
væri talað um hjá IHS af yfirmönn-
um að ég væri ekkert veik, væri
bara að ná mér í veikindadaga. Ég
hef alla mína ævi unnið hörðum
höndum og hafði aldrei verið sagt
upp áður, þannig að þetta varð
mér gríðarlegt áfall og svo bættist
við að ég hafði ekki mátt né heilsu
til að berjast á móti. Það tók mig
afar langan tíma að vinna úr þessu
áfalli og þurfti ég hjálp fagaðila til
þess.“
Ríkey segist glöð í dag yfir að
vera fyrir skilin að skiptum við
IHS og segir margt óheilbrigt við
starfsandann og stjórnunarstílinn
innan stofnunarinnar:
„Það var endalaust baktal í flest-
um herbergjum, hvort tveggja um
starfsfólk og meðlagsgreiðendur.
Óþolandi og andstyggileg um-
mæli um meðlagsgreiðendur voru
oft látin falla. Flestir voru tiplandi
á tánum í kringum forstjórann, all-
ir vildu hafa hann góðan.“
Um Braga Axelsson, sem núna
er forstöðumaður IHS á Ísafirði,
segir Ríkey:
„Mér fannst Bragi frá upphafi
vera ruddi og hrokagikkur. Hann
ætlaði að sanna tilvist sína hjá
IHS með frekju og yfirgangi við
meðlagsgreiðendur og hala inn
peninga fyrir stofnunina. Stjórna
starfsfólki sínu eins og honum
er einum lagið. Hann virðist ekki
vita að góð samskipti eru forsenda
vellíðunar á vinnustað. Hann
kann ekki að koma fram við aðra
af kurteisi og vinsemd. Það þyrfti
að kenna honum að tillitssemi er
dyggð. Og það er nokkuð ljóst að
fleiri þarna mættu taka það til sín.“
Hellti sér yfir starfsfólk vegna
lélegrar útkomu í starfs
ánægjukönnun
Ríkey greinir frá sérstæðum við-
brögðum stofnunarinnar við lakri
útkomu í viðhorfskönnun starfs-
manna. Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar sendi starfsfólki
spurningalista í tengslum við val
á stofnun/fyrirtæki ársins innan
borgarkerfisins. Leitað var eftir
viðhorfi félagsmanna til vinnu
sinnar og yfirmanna, líðan þeirra í
starfi, starfsumhverfi, tækjabúnaði
og hvernig samskiptum væri hátt-
að á vinnustaðnum. Ríkey segir:
„Það er skemmst frá því að segja
að IHS kolféll í þessari könnun og
var nálægt 50. sæti. Forstjórinn
varð fokillur og á næsta starfs-
mannafundi hraunaði hann yfir
okkur öll. Sagði að ef við værum
svona óánægð þá gætum við bara
farið og það væri kannski bara
best að hann hætti að berjast fyrir
því að IHS fengi að starfa áfram í
óbreyttri mynd en ekki undir TR
eins og áætlað var. Hann var mjög
reiður og sagði að hann hefði ekki
áhuga á að gefa okkur brauð, ost
og álegg á starfsmannafundum,
við ættum það ekki skilið. Ég var
næstum því búin að skella upp úr
þarna. Hverjum er ekki sama um
ost eða brauð?“
Þess má geta að annar starfs-
maður frá þessum tíma sem sat
umræddan fund hefur staðfest
þessa frásögn Ríkeyjar við DV.
IHS fékk allt aðra niðurstöðu í
sams konar könnun ári síðar, að
sögn Ríkeyjar:
„Ári seinna var aftur sama
könnun. Þrátt fyrir engar
breytingar hjá fyrirtækinu á þessu
ári sem liðið var þá varð samt
heldur betur breyting í þessari
könnun. Ég fékk símtal frá starfs-
mannafélaginu og mér var tjáð að
ég og forstjórinn ættum að mæta á
Nordica Hótel þar sem það væru
nokkuð góð tíðindi fyrir okkur
og að forstjórinn yrði afar glaður.
Við mættum, auk Braga og eins
annars starfsmanns. Við vorum
hástökkvarar ársins, lentum í 7.
sæti. Í tilefni þess var boðið upp á
köku með morgunkaffinu.“
Sú spurning vaknar hvort
starfsánægja hafi aukist í fyrir-
tækinu á tímanum sem þarna
leið á milli kannana eða hvort
hörð viðbrögð við niðurstöðu fyrri
könnunar hafi haft áhrif á hvernig
starfsfólkið svaraði spurningalist-
anum næst. Ríkey er ekki í nein-
um vafa um þetta eins og að fram-
an greinir.
Tjá sig ekki um mál einstakra
starfsmanna
DV hefur áður greint frá því að
Innheimtustofnun hafi hafnað
ásökunum með öllu. Í svarinu sem
DV hefur áður birt segir meðal
annars:
„Stofnunin getur almennt ekki
tjáð sig um mál einstakra starfs-
manna.“
Og enn fremur:
„Hvað starfsmannaveltu varð-
ar, að á um níu ára tímabili, frá
2010 er núverandi forstöðumað-
ur á Ísafirði hóf störf hjá stofnun-
inni, hafa alls 4 starfsmenn látið
af störfum á umræddri starfsstöð,
einn 2013, annar 2014, þriðji 2015
og svo síðasti 2018. Alls starfa 8
manns á starfsstöð stofnunarinn-
ar á Ísafirði í fullum störfum, auk
afleysinga- og sumarstarfsfólks.“ n
GRÆNA TUNNAN AUÐVELDAR FLOKKUNINA
Pappír, pappa, plast og minni málmhluti
má setja beint í tunnuna - Muna að skola
Pantaðu grænu tunnuna í síma
577-5757 eða www.igf.is/panta
Hugsum áður en við hendum!
577 5757
Bragi Axelsson, forstöðumaður IHS á Ísafirði