Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Síða 12
12 26. apríl 2019FRÉTTIR
E
mbætti héraðssaksóknara
rannsakar um þessar mund
ir mál 25 ára konu sem lést
fyrr í mánuðinum eftir af
skipti lögreglu. Foreldrar stúlk
unnar hafa gagnrýnt vinnubrögð
lögreglumanna vegna atviksins
og telja að röngum aðferðum hafi
verið beitt.
Undanfarna áratugi hafa fjöl
mörg mál komið upp þar sem
lögreglan er gagnrýnd fyrir harð
ræði og röng vinnubrögð. Ekki
þarf að leita lengra aftur í tímann
en til upphafs þessa mánaðar til
að finna dæmi um slíkt, en þá var
lögreglumaður hjá Lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu sakfelldur
fyrir líkamsmeiðingu af gáleysi, en
sýknaður af ákæru fyrir brot í opin
beru starfi. Lögreglumaðurinn
kom að handtöku ölvaðs manns
fyrir utan Hamborgarabúlluna í
Kópavogi fyrir tveimur árum þar
sem hinn handtekni, brotaþolinn í
málinu, tvífótbrotnaði. Samkvæmt
skýrslu réttarmeinafræðings er
líklegast að áverkar mannsins hafi
komið til þegar bílhurð var skellt
á fætur hans, en vitni að atvikinu
sögðu mikið offors hafa einkennt
handtökuna.
Myndband vakti umtal og reiði
Í júlí 2013 var lögreglumaður á
höfuðborgarsvæðinu leystur und
an vinnuskyldu vegna harkalegrar
handtöku á Laugavegi, sem hann
stóð að ásamt tveimur öðrum lög
reglumönnum. Fórnarlambið
var 29 ára kona sem starfaði sem
rekstrarstjóri. Myndband sem
náðist af handtökunni fór hratt um
netheima og vakti hörð viðbrögð í
samfélaginu.
Í upphafi myndbandsins sést
konan standa fyrir framan lög
reglubíl á Laugaveginum og svo
virðist sem hún neiti að víkja af
göt unni til að greiða götu hans.
Hún gengur svo að bílnum og á í
orða skiptum við lögreglumann
inn sem situr undir stýri. Lög
reglumaðurinn stuggar við kon
unni með bílhurðinni, stekkur
stuttu seinna út úr bílnum, grípur
um handlegg konunnar og hend
ir henni aftur á bak með þeim af
leiðingum að hún skellur harka
lega á bekk. Lögreglumaðurinn
sést því næst draga konuna eftir
jörðinni stuttan spöl. Hann snýr
síðan upp á handlegginn á henni
og þrýstir hné á
háls hennar þar sem
hún liggur á jörðinni.
Tveir aðrir lögreglumenn aðstoða
hann síðan við að koma konunni
inn í bíl.
Í frétt DV á sínum tíma kom
fram að samkvæmt heimildum
blaðsins hafi ástæða ofsafenginna
viðbragða lögreglumanns ins verið
sú að konan hrækti á hann í miðj
um orðaskiptum.
Í samtali við mbl.is varði Snorri
Magnússon, formaður Lands
sambands lögreglumanna, hand
tökuna og sagði að þarna hefði
verið beitt svokallaðri norskri
handtökuaðferð. Málið rataði fyrir
Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem
tekist var á um hvort aðferðir lög
reglumannsins við handtökuna
hefðu verið réttmætar.
Fyrir dómnum sagði lögreglu
maðurinn að handtakan hefði
verið „fumlaus“ og „nauðsyn leg til
að koma í veg fyr ir frek ara of beldi.“
Í desember 2013 var lögreglumað
urinn dæmdur til að greiða 300
þúsund krónur í sekt vegna máls
ins. Rúmlega ári síðar þyngdi
Hæstiréttur refsinguna og dæmdi
lögreglumanninn í 30 daga skil
orðsbundið fangelsi auk þess sem
honum var gert að greiða konunni
430 þúsund krónur í miskabætur.
Var það mat Hæstaréttar að lög
reglumaðurinn hefði farið offari
við handtökuna. Ekki hefði verið
þörf á að setja konuna í handjárn
með þeirri aðferð sem gert var, né
að setja hana í lögreglubifreiðina
með þeim hætti sem gert var.
Fórnarlambið missti
meðvitund
Undanfarna áratugi hafa nokkur
mál sem varða harðræði lögreglu
ratað fyrir dómstóla og endað
með sakfellingu.
Árið 1990 var Steinn Jakob Óla
son lögreglumaður ákærður, og
síðar sakfelldur, fyrir að brot í opin
beru starfi og líkamsmeiðingar.
Fórnarlambið í handtökunni, Sig
urður Kaldal, var á leið til heimilis
síns aðfaranótt 27. desember 1990.
Hann var stöðvaður af lögreglu á
horni Bergþórugötu og Frakka
stígs þar sem lögreglan hafði af
skipti af hópi manna. Var Sigurður
beðinn um að fara aðra leið heim
til sín en hann þráaðist við og vildi
halda sínu striki.
Steinn Jakob var ákærður og
sakfelldur fyrir að hafa tekið Sig
urð kverkataki svo að Sigurður
missti meðvitund. Steinn Jakob
dró Sigurð því næst meðvitundar
lausan til baka í átt að lögreglu
bíl. Þegar hann átti skammt ófar
ið að lögreglubílnum sleppti hann
takinu á Sigurði, þannig að andlit
hans skall í götuna með þeim af
leiðingum að hann bólgnaði og
skrámaðist í andliti auk þess sem
sjö tennur í efri og neðri gómi
brotnuðu.
Í úrskurði Sakadóms Reykja
víkur frá 8. maí 1991 kemur fram
að „þrátt fyrir að Sigurður Kaldal
hafi ekki sinnt boðum lögreglu
sýndi hann í engu af sér háttsemi
sem kallaði á svo harkaleg við
brögð ákærða enda hafi ákærða
verið í lófa lagið að leysa málin á
annan veg, til dæmis með því að
kalla á aðstoð félaga sinna sem
voru margir á vettvangi.“ Steinn
Jakob hlaut þriggja mánaða skil
orðsbundinn fangelsisdóm vegna
málsins.
„Átti fullt í fangi með að hemja
óðan mann“
Árið 2009 var lögreglumaðurinn
Garðar Helgi Magnússon ákærður
fyrir brot í opinberu starfi og lík
amsárás sem átti sér stað að
morgni sunnudagsins 18. janúar
það ár.
Garðar Helgi var sakaður um
að hafa farið offari við framkvæmd
lögreglustarfans og ekki gætt lög
mætra aðferða þegar hann fyrir
skipaði öðrum lögreglumanni að
aka með 22 ára gamlan handtek
inn mann frá Austurstræti út á
Granda í Reykjavík þar sem mað
urinn var skilinn eftir.
Þá var Garðar ákærður fyrir að
hafa þrýst hné sínu á háls manns
ins, þar sem hann lá handjárnað
ur á maganum á gólfi lögreglubif
reiðarinnar. Hinn handtekni hlaut
í kjölfarið marbletti aftan á hálsi.
Garðar var hins vegar sýknaður
af þessum lið ákærunnar þar sem
Hæstiréttur taldi að hann hefði átt
„fullt í fangi með að hemja óðan
mann sem braust um og sparkaði
frá sér.“
Garðar neitaði sök í málinu
en fyrir dómi sagði hann að ungi
maðurinn sem handtekinn var
hefði verið með ólæti og hefði
honum því verið ekið út á Granda í
því skyni að „róa hann niður.“
Í frétt DV í nóvember 2009 kom
fram að Garðar væri enn við störf
sem lögreglumaður hjá Ríkislög
reglustjóra þrátt fyrir að málið væri
fyrir dómstólum. Héraðs dómur
Reykjavíkur kvað upp sýknudóm
en þeim dómi var síðan hnekkt í
Hæstarétti í nóvember 2010. Var
Garðar Helgi þá fundinn sekur
og dæmdur í tveggja ára skilorðs
bundið fangelsi.
Blóðpollur á gólfinu
„Skaftamálið“ svokallaða vakti
mikla athygli snemma á
Kaffihlaðborð ýmsar útfærslur, Pinnamatur,
smurt brauð, tertur, o.fl. fyrir erfidrykkjuna
Afgreitt á einnota fötum
tilbúið á borðið
Erfidrykkja
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
HARÐRÆÐI LÖGREGLUNNAR
n Fjölmörg dæmi um ofbeldi og offors lögreglu undanfarna áratugi
n Þónokkur mál hafa endað með sakfellingu
„Ég skil
ekki svona
framkomu hjá
lögreglunni
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Handtakan á
Laugavegi náðist
á myndband sem í
kjölfarið fór hratt um
neitheima. Hér má
sjá skjáskot úr mynd-
bandinu. Ljósmynd/
Tímarit.is
Skafti Jónsson ræddi við DV á
sínum tíma. Ljósmynd/Tímarit.is
LJÓS-
MYND/
TÍMARIT.IS