Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Qupperneq 16
16 26. apríl 2019
U
ng íslensk kona sem starfar
sem lögfræðingur hér á
landi segist hafa orðið vör
við að sumir skjólstæðingar
séu að leita að hörðum lögmanni
og efist um að kona, sérstaklega
ung kona, geti verið hörð. Önnur
segir að sem kona þurfi hún að
leggja meira á sig en karlkyns
kollegar hennar til að hafa rödd.
Enn ein nefnir sem dæmi að hún
hafi fengið að heyra athugasemdir
á borð við: „Vinur minn sagði að
það væri langbest að vera með
karlkyns lögmann, þeir eru svo
miklir hákarlar“.
Konurnar þrjár voru meðal
viðmælenda Birnu Gísladóttur í
tengslum við lokaritgerð hennar
til MS-gráðu í viðskiptafræði við
Háskóla Íslands. Viðfangsefni
ritgerðarinnar er konur í
lögmennsku á Íslandi og upplifun
þeirra af því að sitja við samninga-
borðið.
„Það sem kom mér helst á óvart
er að það sé enn til staðar aðstöðu-
munur kynjanna, að konur virðast
oft og tíðum þurfa að sanna sig
frekar en karlmenn til þess að
öðlast rödd og þær sæta harðari
gagnrýni, jafnvel óvæginni,“ segir
Birna í samtali við DV. Í tengslum
við rannsóknina ræddi Birna við
níu íslenskar lögfræði menntaðar
konur og tekur hún fram að um
sé að ræða persónulega upplifun
kvennanna og því sé ekki hægt að
alhæfa slíkt um lögmannastéttina.
Birna segir að svo virðist sem
konur þurfi oft og tíðum að leggja
meira á sig en karlmenn til þess
að öðlast traust, trúverðugleika og
framgang.
„Ég stóð í þeirri meiningu að
við værum komin lengra varðandi
jöfn tækifæri kynjanna og viðhorf
samfélagsins, en gamal grónar
hugmyndir um kynin og einhver
stemning sem við höfum ekki
náð að losna við, virðast orsaka
þennan veruleika sem konur búa
við. Þrátt fyrir að miklar breytingar
hafi vissulega náð fram að ganga
er viðskiptalífið enn mjög karllægt
sem aftur viðheldur þessum
aðstöðumun kynjanna að mínu
mati.“
Flestar kvennanna sem Birna
ræddi við sögðu konur oft dæmdar
í harðara ljósi og margar tóku
dæmi um að ákveðin kona væri
talin „frekja“ eða að ekki væri hægt
að vinna með henni ef hún sýndi
festu og ákveðni.
„Kill them with kindness“
„Þetta er eitthvað sem ég rek mig
stundum á, sérstaklega hjá eldri
lögmönnum. Að ef það eru fleiri
við borðið þá er horft framan í
karlinn sem er hinum megin við
borðið en ekki konuna sem situr
hinum megin við borðið,“ segir
einn af viðmælendum Birnu.
Sama kona segir að í tengslum við
Metoo-byltinguna hafi hún leitt
hugann meira að aðstöðumun
kynjanna og orðið ljóst að hún hafi
verið að „aðlaga sig að þeim leik-
reglum sem hafa verið í boði fyrir
stelpur“. Þá talar hún um að konur
„nýti sér kannski þá samninga-
tækni að vera meira næs og lýsir
aðferðinni sem „kill them with
kindness“.
Ein kvennanna segist hafa
upplifað að ekki sé hlustað á
hana eða hún hunsuð en þá sýni
hún festu, minni á sig og biðji
viðkomandi að láta þetta ekki
koma fyrir aftur.
„Konur hafa átt erfitt upp-
dráttar í að láta hlusta á sig, þær
þurfa svolítið að búa til virðingu
og sanna sig, sem karlar fá kannski
fyrir fram gefið.“
Strákarnir fengu „fínu störfin“
Einn af viðmælendunum lýsir
því hvernig mismunun kynjanna
hefst strax í laganáminu.
„Strákar soguðu sig að
prófessorum í lagadeild,
aðstoðuðu þá og svo fram vegis.
En engin stelpa gerði það, því
þá hefði hún fengið á sig
þann stimpil að hún væri
að reyna við viðkomandi
prófessor. Þar af leiðandi
fengu strákarnir fínu
með mælin og fínu
störfin, „þannig að það
tekur rosalega langan
tíma að vinda ofan af
þessu.“
Önnur lögfræðimennt-
uð kona sem rætt var við
nefndi sem dæmi að hún hefði
margoft lent í því að vera ekki
svarað í tölvupóstum, heldur karl-
inum, ef um er að ræða hóppóst.
Sagðist hún hafa verið svo lengi í
faginu að hún væri hreinlega hætt
að nenna að spá í þetta. Sagðist
hún telja það almennt eiga við
konur í lögmannastétt.
Þá kemur fram að margar
kvennanna tali um að konur hafi
almennt minni sveigjanleika og
mæti minni skilningi, að þeim sé
refsað frekar fyrir mistök á meðan
karlar mæti meira umburðarlyndi
hvað það varðar.
„Ef þú ert kona þá þarftu bara
einu sinni að klúðra einhverju og
þá ertu bara búin að vera.“
Þá nefna sumar kvennanna að
þeirra
upp lifun sé
sú að konur mæti oft betur undir-
búnar til samninga viðræðna.
„Þetta á ekkert eingöngu við
um samningaborðið, heldur bara
almennt. Við leyfum konum að
gera færri mistök áður en við
tökum þær af lífi. Og almennt
gerum við þá kröfu að konur séu
samviskusamar og hafi unnið
allt vel, komi undirbúnar og
körlum leyfist almennt frekar
að, svona kannski, kasta aðeins
til höndunum. Að því leyti til er
skrýtið að maður velti þessu yfir
á samningaborðið, að þú gerir í
rauninni meiri væntingar til þess
að konan sé undirbúin heldur en
karlinn,“ segir ein kvennanna.
Fá ekki að vera með í „karla-
klúbbnum“
Þá tala flestar konurnar um að
það halli á konur í tengslum
við tengslanet og tækifæri, að
tengslanetið sé oft sterkara hjá
körlum. Félagar eða vinir af golf-
vellinum, úr íþróttafélögum
eða bara æskuvinir sem raðast í
stjórnunarstöður hjá fyrir tækjum
og leita í félagana. Ein þeirra
bendir á að margar viðskipta-
ákvarðanir séu til dæmis teknar
í fótboltaferðum sem konur fá
aldrei að fara í.
„Sem konu er þér ekki boðið í
golfferðina eða veiðiferðina, það
er bara karlaklúbbur. Og ekki einu
sinni spurt hvort viðkomandi
kona spili golf eða veiði, bara gert
ráð fyrir því að hún geri það ekki.“
Önnur lögfræðimenntuð kona
telur að helsta hindrun kvenna í
lögmennsku sé ímyndin af lög-
mönnum: að lögmenn séu bara
jakkafataklæddir menn.
Flestar kvennanna telja að
framgangur kvenna í stéttinni hafi
verið frekar hægur og torveldur
og konur þurfi að hafa meira fyr-
ir því að komast áfram. Ein tal-
ar um að það sé „megn fnykur á
köflum“ á hversu karllæg stéttin
er. Önnur kona segir karla oft fá
fleiri tækifæri, fái betri mál, betri
tækifæri og frekar sénsa á allt
og frekari möguleika á stöðu-
hækkunum.
„Konur þurfa oft að leggja
töluvert meira á sig og fá kannski
ekki jafn mikið til baka. Það er
bara staðreynd.“
Þá kemur fram að það virðist
vera mikil barátta kvenna í lög-
mennsku við að samræma
vinnu og fjölskyldulíf. Ein
kvennanna sem rætt var við
segir að lögmannastéttin sé „ein
versta stétt hvað varðar töku
fæðingar orlofs og fjarveru vegna
fjölskyldu“.
„Þú átt rétt til að taka fæðingar-
orlof en þú veist að þú nýtur samt
engra réttinda sem fulltrúi á
lögmannsstofu. Þegar þú kemur
til baka úr fæðingarorlofi þarftu
aftur að byrja upp á nýtt og hafa
mikið fyrir því. Ótrúlega lýjandi.“
Mega ekki sofna á verðinum
Í niðurstöðum rannsóknarinnar
bendir Birna á að áhugavert væri
að gera sambærilega rannsókn á
körlum í lögmennsku til að kanna
hvert viðhorf þeirra og reynsla er í
tengslum við samningagerð.
„Eru karlar að mæta sömu
áskorunum og nálgast þeir
samningaviðræður með sama
hætti eða eru aðrir hlutir sem þeir
leggja áherslu á? Að sama skapi
væri áhugavert að kanna hver
þeirra upplifun er á menningu
lögmannastéttarinnar og starfs-
umhverfi. Hvaða áskoranir eru í
þeirra vegi varðandi tækifæri og
annað?“
Þá segir Birna að verkefnið
hafi opnað augu hennar á þeim
raunveruleika sem við búum við
í dag hvað varðar jafnréttis baráttu
kynjanna á Íslandi. Hún hafi talið í
upphafi að samfélagið væri komið
lengra hvað varðar viðhorf og
tækifæri kynjanna.
„Þótt viðhorf samfélagsins
sé gríðarlega breytt til kynjanna
í nútímanum erum við enn að
glíma við kvenfyrirlitningu, eins og
raun ber vitni ef Klaustursmálið er
skoðað, sem kalla má mengandi
eða skaðlega karlmennsku. Þá
má einnig nefna áramóta skaupið
2018 þar sem aðstöðumunur
kynjanna lék stórt hlutverk, sem
endurspeglar þau mál sem eru í
brennidepli í þjóðfélaginu,“ segir
Birna og bætir við:
„Við megum ekki sofna á
verðinum, við verðum að halda
áfram að byggja upp samfélag þar
sem ríkir jafnvægi á milli kynjanna
á öllum sviðum.“ n
FRÉTTIR - NEYTENDUR
3 SKREF
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
• Skráningartöflur
• Eignaskiptayfirlýsingar
• Eftirfylgni
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
ÞARABAKKA 3
S. 578 6800
Íslenskar konur í lögmennsku lýsa
mismunun, fordómum og fyrirlitningu
n Konur í lögmennsku sæta oft óvægari og harðari gagnrýni en karlar
n Fá ekki að vera með í „karlaklúbbnum“
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Birna Gísladóttir.