Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐA
Sandkorn
26. apríl 2019
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Einar Þór Sigurðsson
Fréttastjóri: Kristinn Haukur Guðnason Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Mannfyrirlitning í garð meðlagsgreiðenda
DV
heldur nú áfram um-
fjöllun sinni um inn-
anbúðarmál Inn-
heimtustofnunar
sveitarfélaga. Fleiri hafa stigið fram
og tekið í sama streng og konurnar
fjórar sem sögðust hafa verið beitt-
ar einelti og ógnarstjórnun innan
stofnunarinnar, eins og DV greindi
ítarlega frá þann 12. apríl.
Á báðum starfsstöðvum stofn-
unarinnar, í Reykjavík og á Ísafirði,
virðist ríkja eitruð menning. And-
rúmsloftið svo þrúgandi að starfs-
fólk hrökklast þaðan út og situr eft-
ir með sárar minningar. Bæði vegna
sjálfs sín og fyrrverandi vinnufélaga.
Ein af birtingarmyndum þess
andrúmslofts sem skapast hefur er
sú mannfyrirlitning sem meðlags-
greiðendum er sýnd, en meginhlut-
verk stofnunarinnar er einmitt að
innheimta meðlagsgreiðslur. Þetta
hefur fyrrverandi starfsfólk vitn-
að um og einnig birtir DV nú skjá-
skot af því þegar forstjórinn sjálfur,
Jón Ingvar Pálsson, og fleiri hæðast
að meðlagsgreiðanda í samfélags-
miðlahóp.
Skilnaðir eru algengir á Ís-
landi. Hlutfallið er 34 prósent. Auk
þess koma mörg börn undir eftir
skyndikynni eða stutt sambönd.
Þó að sameiginleg forsjá barna sé
meginreglan á Íslandi þá skipta
meðlagsgreiðendur þúsund-
um. Rúmlega 10.000 karlar greiða
meðlag og rúmlega 700 konur.
Tæplega helmingur greiðir með
fleiri en einu barni.
Flest þekkjum við einhvern sem
greiðir meðlag eða hefur gert það,
oftast karlmenn. Þeir eru ekkert
verri fyrir vikið og langflestir með
umgengnisrétt við börn sín. Þeir
vilja börnunum sínum það besta
rétt eins og aðrir feður.
Það er auðvelt að sjá fyrir sér
þær aðstæður þar sem meðlags-
greiðslur fara úr skorðum. Skilnað-
ur verður í efnalítilli, þriggja barna
fjölskyldu. Fjölskyldufaðirinn flyt-
ur af heimilinu og þarf að finna sér
nýtt húsnæði, sem býður kannski
ekki upp á að börnin dvelji hjá
honum. Vitaskuld vill hann greiða
með börnunum sínum en getur
það kannski ekki nema að hluta til
fyrst um sinn, á meðan hann er að
koma undir sig fótunum að nýju.
Í þessu skáldaða tilviki þarf
meðlagsgreiðandinn á skilningi frá
hinu opinbera að halda og andlit
hins opinbera er Innheimtustofn-
un sveitarfélaga. Það sem hann
þarf ekki á að halda er ósveigjan-
legt starfsfólk sem mætir honum
með fullri hörku og hlær að hon-
um þegar hann er farinn út um
dyrnar. En það virðist vera tilfellið
fyrir svo marga í raunveruleikan-
um.
Innheimta meðlagsgreiðslna er
þjóðhagslega mikilvæg. Rétt skal
vera rétt og jafnt skal yfir alla ganga.
Það er algerleg óumdeilt. En innan
Innheimtustofnunar sveitarfélaga
þarf augljóslega manneskjulegra
og sveigjanlegra viðhorf. Og síð-
an djúpa naflaskoðun hvað varð-
ar starfsmannamál og samskipti á
vinnustaðnum. Á því bera stjórn-
endurnir ábyrgð og, ef svo ber
undir, skipuð stjórn stofnunarinn-
ar og samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðuneytið sjálft. Einhver inn-
an kerfisins þarf að taka af skarið
og spyrja nauðsynlegra spurninga
innan veggja þessarar stofnunar.
Annars breytist ekki neitt. n
Jón að reyna að
sprengja stjórnina?
Jón Gunnarsson fer nú fremstur í
flokki þeirra þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins sem gagnrýna
Svandísi Svavarsdóttur vegna
áherslu á að fjármagn renni
fyrst og fremst til opinberrar
heilbrigðisþjónustu. Á með-
an fari fjármagn til sjálfstætt
starfandi fyrirtækja dvínandi.
Jón hefur verið andlit þessarar
baráttu, bæði á ritvellinum og í
viðtölum.
Þessi deila stjórnarflokkanna
kemur upp á versta tíma, í
orkupakkastorminum miðjum
þar sem ríkisstjórnin er með
bæði stjórnarandstöðuna og
marga af eigin kjósendum og
grasrótarfólki á móti sér.
Jón var ekki sáttur við stjórnar-
myndunina þegar ljóst var að
hann myndi missa ráðherra-
stól. Hefur hann þegar sýnt
upphlaupstakta í vegtollamál-
inu og nú heggur hann áfram í
samstarfsflokkana.
Bjarni í langneðsta sæti
Í vikunni brydd-
aði Friðjón Frið-
jónsson, fram-
kvæmdastjóri
KOM, upp á því
að Bjarni Bene-
diktsson hefði
komist í þriðja
sæti yfir þá sem hefðu setið
lengst á formannsstóli Sjálf-
stæðisflokksins. Ætti hann þrjú
ár í Davíð Oddsson en sautján
ár í Ólaf Thors.
Bjarni er hins vegar sá formað-
ur sem hefur setið hlutfallslega
langskemmst sem forsætisráð-
herra, aðeins 323 daga af 3.680,
eða 8,8 prósent hlutfallslega.
Næstneðstur er Þorsteinn Páls-
son með 16,7 prósent.
Davíð Oddsson trónir á toppn-
um með 91,6 prósent. Þá koma
Bjarni Benediktsson eldri með
80 prósent, Geir H. Haarde
með 76,3, Geir Hallgrímsson
með 39,8, Ólafur Thors með
35,8, Jóhann Hafstein með 31
og Jón Þorláksson 24,2 prósent.
Leiðari
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Spurning vikunnar Eru fermingarveislur skemmtilegar?
„Nei, ekki hjá fjarskyldum ættingjum. En
hjá náskyldum getur verið gaman.“
Ólafur Jónsson
„Þær eru ágætar.“
Sigurjón Viðar Gunn-
laugsson
„Já, mér finnst
þær skemmtilegar.“
Guðrún Harðardóttir
„Þær eru drepleiðinlegar.
Fyrirgefið mér, ættingjar.“
Þórunn Helga Þórðardóttir
Myndin Ærslabelgurinn vinsæll Börn fagna komu
sumars í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
M
Y
N
D
H
A
N
N
A
/D
V