Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 23
Golfblaðið 26. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG, tekur vel á móti nýjum félögum og býður
upp á heilsársþjónustu hjá. GKG hefur
yfir að ráða 18 holu keppnisvelli sem
og níu holu velli sem hentar kylfing-
um á öllu getustigi. Einnig er þar
æfingasvæði fyrir lengri og styttri
högg og, ekki síst, fullkomin inniæf-
ingaaðstaða bæði í Íþróttamiðstöð-
inni og í Kórnum. Veturinn hefur verið
mildur og er búist við að vellirnir komi
vel undan vetri, því verður hægt að
hefja leik fyrr en oft áður. Veðurfarið
þegar líður nær vori ræður þó öllu um
það.
Öflugt félagsstarf
Skemmtilegt félagsstarf tryggir
góða stemningu meðal félags-
manna og í GKG er starfrækt mikið
og gott félagsstarf. Kvennanefnd
GKG stendur fyrir viðburðum allt árið
sem og öldunganefndin sem stendur
einnig fyrir æfingum og viðburð-
um. Í GKG er öflugt mótahald sem
kröftugur hópur mótanefndar sér um.
Starf dyggra sjálfboðaliða er ómet-
anlegt í GKG.
Metnaðarfullt barna- og unglinga-
starf
Í GKG er rekið heilsársuppbyggingar-
og afreksstarf og hvergi í heiminum
eru fleiri börn og unglingar sem
stunda golf hjá sama golfklúbbnum!
Af 2.000 félögum eru um 600 börn
og unglingar. „Af öllum golfklúbbum
á landinu telur GKG flest ungmenni
yngri en 16 ára. Það er mjög ánægju-
legt að hafa úr svo miklum efnivið að
moða til framtíðar,“ segir Úlfar Jóns-
son íþróttastjóri.
Fyrir byrjendur 6–12 ára henta
sumarnámskeiðin vinsælu mjög vel.
Fyrir þau sem vilja taka næsta skref
og jafnvel æfa allt árið er boðið upp á
æfingar utandyra á sumrin og innan-
húss í Íþróttamiðstöðinni og í Kórnum.
Fyrir félagsmenn 8–21 árs eru í
boði æfingar rúmlega 10 mánuði á
ári. Vetraræfingar hefjast í byrjun
nóvember ár hvert og sumaræfingum
lýkur um miðjan september. Vikulegu
golfleikjanámskeiðin á sumrin hafa
verið gríðarlega vinsæl undanfarin ár
og reynst vel sem fyrsta skrefið í að
kynnast golfinu.
Afrekskylfingar
GKG á fjölmarga kylfinga í fremstu
röð með Birgi Leif Hafþórsson í farar-
broddi. Afrekskylfingar GKG landa
Íslandsmeistaratitlum af miklum
móð og sá grunnur sem lagður er í
heilsársþjálfun ungra kylfinga gefur
fyrirheit um bjarta framtíð á afreks-
sviðinu.
Æfingaaðstaða með því besta sem
gerist á landinu
„Æfingasvæðið okkar er stórt og við
erum mjög stolt af inniaðstöðunni
sem gerir okkur kleift að stunda
íþróttina allt árið um kring. Þar er
hægt að pútta, vippa, æfa og spila
golf í fullkomnum Trackman-golf-
hermum. Öll aðstaða til golfiðkunar
á svæði klúbbsins er með því sem
besta sem gerist á landinu. Við
leggjum áherslu á að vera í farar-
broddi í aðbúnaði og atlæti, jafnt
gagnvart afreksfólki og þeim sem
skemmra eru á veg komin. Við höfum
líka lagt áherslu á að fjölga stúlkum
sem leika golf og hefur það skilað
góðum árangri,“ segir Úlfar og hvetur
áhugasama til þess að fylgjast með
GKG á Facebook.
Trackman-golfhermar
Golf er svo sannarlega heilsárs-
íþrótt í GKG, en með fullkomnum
golf hermum geta kylfingar leikið á
mörgum af frægustu völlum heims.
Upplifun þeirra sem spila er nánast
eins og að vera úti á golfvellinum í 20
stiga hita og logni. Allt umhverfið er til
fyrirmyndar og eru golfhermar GKG
því góður valkostur fyrir alla, hvort
sem ætlunin er að æfa, spila nokkrar
holur eða setja upp mót.
Hvernig byrja ég í golfi?
Hefur þig langað að byrja í golfi en
veist ekki hvernig þú átt að bera þig
að? Best er að skrá sig á námskeið og
læra grunnatriðin. Með því að gerast
félagsmaður GKG færðu aðgang að
nýliðanámskeiði sem stendur yfir einu
sinni í viku, frá miðjum maí til lok júlí.
Fjölbreytt styttri og lengri námskeið
fyrir kylfinga af öllum getustigum,
sem og einkakennsla, eru í boði hjá
PGA-kennurum GKG. Þessi námskeið
eru opin öllum, fyrir félagsmenn eða
þá sem eru utan félagsins. Nánari
upplýsingar er að finna á heimasíðu
GKG, en einnig er hægt að hafa sam-
band við Úlfar, ulfar@gkg.is.
Fleiri námskeið
Að sögn Úlfars Jónssonar bjóða
kennarar klúbbsins upp á fjölbreytta
þjónustu eins og t.d. einkatíma, hóp-
tíma og hjónatíma. Ýmiss konar nám-
skeiðahald fer fram allt árið en oftast
er um að ræða kvöld- og helgar-
námskeið, auk æfingahópa sem hægt
er að taka þátt í.
Veitingastaðurinn Mulligan
Boðið er upp á ljúffengan hádegismat
á sanngjörnu verði alla virka daga og
hefðbundna rétti af matseðli. Einnig
sýnum við boltann í beinni og að
sjálfsögðu frá stærstu mótaröðunum,
PGA og LPGA.
Svæði félagsins er annars vegar
í landi Garðabæjar og hins vegar í
landi Kópavogs – eins og nafnið ber
með sér. Vallarstæðið er í Vetrarmýri
í landi Vífilsstaða í Garðabæ og í
Leirdal ofan við Salahverfi í Kópavogi.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.gkg.is og Facebook: GKG
Pantanir í golfherma: 565-7373
Aðalnúmer: 570-7373
GKG –
„Sumar allt árið“