Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Síða 28
Golfblaðið 26. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ Akureyri er að mörgu leyti unaðsreitur kylfinga enda er þar hægt að stunda þessa vinsælu íþrótt í ægifögru umhverfi við afar góðar aðstæður. Undanfarin ár hefur átt sér stað mikil og farsæl uppbygging á svæðinu. Hið einstæða golfmót Arctic Open er síðan þekkt meðal kylfinga víða um heim, enda engu líkt að leika golf undir miðnættið á bjartasta tíma ársins, nærri heimskautsbaug. Golfklúbbur Akureyrar, GA, rekur 18 holu golfvöll að Jaðri ásamt sex holu velli á sama stað sem tekinn var í notkun árið 2017. Einnig rekur GA Lundsvöll, sem er 9 holu völlur rétt innan við Vaglaskóg. Enn fremur hefur GA frábæra inniaðstöðu, Golfhöllina, sem er æfingasvæði fyrir kylfinga á neðri hæð Íþrótta hallarinnar á Akureyri. Meðlimir í klúbbnum eru um 750 talsins og fá þeir aðgang að allri þessari aðstöðu sem sífellt er verið að endurbæta. „Hér hefur orðið mikil uppbygging síðustu tíu árin í samstarfi við Akur­ eyrarbæ ásamt gríðarlegri sjálfboða­ vinnu. Við hjá GA erum mjög lánsöm hversu mikið og óeigingjarnt starf hefur verið unnið af hálfu sjálfboða­ liða á öllum sviðum, ekki einungis við uppbyggingu svæðisins heldur einnig því sem lýtur að rekstri GA. Endur­ bætur hafa verið gerðar á flötum og teigum á Jaðri og lokahnykkurinn í þessu ferli var nýtt æfingasvæði sem tekið var í notkun árið 2016. Núna veitum við kylfingum einhverja þá bestu aðstöðu sem völ er á,“ segir Steindór Kristinn Ragnarsson, framkvæmdastjóri GA. Eins og nærri má geta eru margir kylfingar á Akureyri en golfvöllurinn að Jaðri er líka mjög vinsæll meðal ferðamanna. „Hér er vaxandi ferðamennska og undanfarin ár hefur töluverður fjöldi ferðamanna komið hingað úr skemmti ferðaskipum. En meirihluti ferðamanna sem nýta sér golfvöllinn að Jaðri er samt Íslendingar,“ segir Steindór. Golf í miðnætursól Hið magnaða golfmót Arctic Open verður haldið dagana 19.–22. júní. Kylfingar sem tekið hafa þátt í mótinu segja það vera draumkennda upplifun að spila golf í blóðrauðu sólarlagi um miðnæturbil svo nærri heimskautsbaugi. Stemningin í kringum mótið er engu lík og þátt­ takendur eiga ógleymanlegar stundir í góðra vina hópi. Nánari upplýsingar um Arctic Open er að finna á vefsíðunni arcticopen.is. Nánari upplýsingar um GA og golfaðstöðu á Akureyri er að finna á vefsíðunni gagolf.is eða í síma 462- 2974. GOLFKLÚBBUR AKUREYRAR OG ARCTIC OPEN: Það er dýrðlegt að spila golf á Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.