Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 39
SPORT 3926. apríl 2019
MATSÖLUSTAÐUR
SKEMMTISTAÐUR
RÁÐSTEFNUR
ÁRSHÁTÍÐIR
VEISLUR
RÁIN ER ALHLIÐA VEITINGAHÚS
Í REYKJANESBÆJARhjarta
Spá DV fyrir Pepsi Max-deild karla
6. KA
Það er metnaður í starfinu á Akureyri, en það
getur reynst erfitt að brjóta sér leið inn í Evrópu-
sæti. Óli Stefán Flóventsson er við stjórnvölinn
og treysta stuðningsmenn KA á að hann verði með
skipulag sitt og gleði í farteskinu, Óli er öflugur þjálf-
ari en það eru spurningarmerki á lofti um hvort KA
sé nógu sterkt lið til að stíga næsta skref. Haukur Heiðar
Hauksson er kominn heim en liðið hefur misst Guðmann
Þórisson, sem telst stór biti. Guðjón Pétur Lýðsson stökk
svo frá borði rétt fyrir mót og það getur haft áhrif.
8. ÍA
Skagamenn hafa verið frábærir í vetur en
það er annað að gera hlutina í höllunum
eða úti á grasi, þegar allt er undir. Skaga-
menn eru nýliðar í deildinni og þetta er
fyrsta stóra prófið fyrir Jóhannes Karl Guð-
jónsson í þjálfun. Að margra mati er hann
okkar efnilegasti þjálfari en hann þarf að sanna
það á stóra sviðinu. Skagamenn hafa verið með veskið á lofti í vet-
ur og krækt sér í stóra bita, þrátt fyrir að vera nýliðar. Viktor Jónsson
og Tryggvi Hrafn Haraldsson eiga að bera upp sóknarleikinn og þeir
gætu reynst mörgum liðum skeinuhættir.
9. Víkingur
Arnar Bergmann Gunnlaugsson er við
stýrið og hann á erfitt verk fyrir höndum
því hann þarf að smíða svo gott sem nýtt
lið. Arnar þarf að treysta á að Sölvi Geir
Ottesen haldi heilsu, en hann hefur lítið æft
í vetur. Sölvi var afar mikilvægur fyrir Víking í
fyrra en varnarleikur liðsins hrundi þegar hann
var meiddur. Arnar hefur sótt marga unga stráka.
10. ÍBV
Pedro Hipólito er kominn til starfa í Eyjum.
Hann gerði ekki merkilega hluti með Fram,
en það hefur reyndar enginn gert síðustu ár.
Fram hefur verið sökkvandi skip í íslenskum fót-
bolta. Það er mjög erfitt að meta styrkleika ÍBV en
liðið er veikara á pappír en á síðustu leiktíð, stemn-
ingarleysi virðist svífa yfir vötnum hjá félaginu.
11. Grindavík
Suður með sjó er óvissa, en þar hafa stór
nöfn, sem borið hafa leik liðsins uppi síð-
ustu ár, horfið á braut. Srdjan Tufegdzic
tók við stýrinu og hann fær erfitt verkefni,
með talsverðan fjölda erlendra leikmanna
í bland við kjarna sem hefur lengi verið til
staðar. Túfa, eins og þjálfarinn er kallaður,
þarf að treysta á að Gunnar Þorsteinsson og
Alexander Veigar Þórarinsson verði í stuði og haldi
uppi stemningu og leikgleði í Grindavík.
12. HK
Nýliðar HK virðast dæmdir til að
falla, enginn hefur trú á liðinu
nema kannski leikmenn og þjálf-
ari liðsins. HK er með marga leik-
menn sem hafa mikið að sanna í
efstu deild og liðið sótti sér reynslu
úr Pepsi Max-deildinni með því að
fá Ásgeir Börk Ásgeirsson og Arn-
þór Ara Atlason til liðs við sig. Brynjar
Björn Gunnarsson er að hefja sitt annað
ár sem aðalþjálfari og hann nýtur mikils trausts
í efri byggðum Kópavogs. Liðið er það eina sem spilar innandyra og
gæti Kórinn reynst sterkasta vopn HK.
7. Fylkir
Fylkir mætir til leiks með betra lið en í
fyrra, Geoffrey Castillion er mættur á láni
frá FH og takist Fylki að koma hollenska
framherjanum í form verður hann mik-
ill styrkur fyrir liðið. Sam Hewson kom frá
Grindavík en hefur glímt við meiðsli, þar er á
ferðinni einn öflugasti miðjumaður deildar-
innar. Helgi Valur Daníelsson er svo í frábæru
formi og hefur æft af krafti í vetur. Stærsti
styrkur Fylkis er hins vegar sú staðreynd að
Ólafur Ingi Skúlason verður með allt tímabil-
ið og á góðum degi er hann besti leikmaður
deildarinnar. Fylkir gæti, ef allt gengur upp,
komist ofar í töflunni.
Ólafur Ingi í Fylki er einn besti leikmaður deildarinnar.