Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Side 41
TÍMAVÉLIN 4126. apríl 2019 U ndir lok 19. aldar voru feðgin í Eyjafirði dregin fyrir rétt, sökuð um blóð- skömm eftir að barn kom undir. Bæði höfðu verið yfirheyrð og í grófum dráttum voru þau sammála um að faðirinn hefði nauðgað dótturinni. Bæði vitnuðu þau einnig um að hún hefði barist gegn ódæðinu. Í augum ákæru- valdsins voru þau hins vegar bæði sek um glæp. Nauðgað við smölun Þann 20. maí árið 1892 fæddi hin nítján ára gamla Þórunn Guð- mundsdóttir meybarn. Þórunn var ógift vinnustúlka á Saurbæ í Eyjafirði þar sem hin þekkta kirkja stendur enn í dag. Lýsti hún föður sinn, Andrés Guðmund Jóhannes- son, sem föður stúlkunnar. Hann var 47 ára vinnumaður á Úlfá, sem var bær skammt frá Saurbæ. Í yfirheyrslu stendur: „Í rannsókn þeirri, er hafin var út af þessu, hefur hin ákærða stöð- ugt borið það, að barn þetta sé svo undir komið, að faðir hennar hafi kvöld eitt í 17. viku sumars fyrir ári tekið hana með valdi úti við stekkj- arhólana í Árgerði, þar sem hún var að reka fé saman, og haft sam- ræði við hana nauðuga, og hefði hún þó veitt honum alla þá mót- stöðu, sem hún gat.“ Einnig kemur fram í vitnisburði Þórunnar að þetta hafi verið í eina skiptið sem Andrés hafði samræði við hana. Enn fremur að hún hafi aldrei verið við karlmann kennd „eða haft óorð á sér í þá átt.“ Ekki ein heldur þrjár nauðganir Andrés gekkst við að vera faðir stúlkunnar og einnig við að hafa nauðgað dóttur sinni. Hann sagði hins vegar í skýrslutöku að sam- ræðið hefði átt sér stað í þrígang, og aldrei með hennar vilja. Fyrsta skiptið var eins og Þór- unn vitnaði um, en fyrr um sumar- ið. Þórunn hafi verið úti við stekk- inn í Árgerði og hann nauðgað henni þar. Tíu vikum síðar, eða 17. viku sumars, hafi hann nauðgað henni í baðstofunni í Árgerði þar sem þau bjuggu á þeim tíma ásamt eigin- konu Andrésar og tveimur öðrum börnum hans. Þar segir: „Hann (Andrés) og ákærða (Þórunn) dóttir hans sváfu tilfæt- is í sama rúmi ásamt 2 börnum ákærða öðrum, og fór ákærði um nóttina yfir í rúmendann til ákærðu og hafði samræði við hana, reynd- ar ekki með hennar fúsa vilja, en án nokkurrar verulegrar mótspyrnu frá hennar hálfu, sem ekki þurfti annað en að hljóða til að vekja fólk, sem svaf í baðstofunni.“ Andrés viðurkenndi einnig þriðju nauðgunina. Átti hún sér stað um haustið frammi í búri á Árgerði. Sagði Andrés að hún hafi þá veitt honum alla þá mótspyrnu sem hún gat. Í gegnum allt dómskerfið Andrés var ákærður fyrir blóð- skömm og nauðgun og Þórunn sömuleiðis ákærð fyrir sifjaspell. Stóðu þau bæði við sína sögu fyrir dómi og lágu þær því til grundvall- ar úrskurði. Óumdeilt var að Andr- és hefði nauðgað dóttur sinni, þó að hann hefði sagt skiptin fleiri en hún. Óumdeilt var einnig að hann væri faðir stúlkunnar. Var Andrés dæmdur til tíu ára fangelsis og til að greiða allan kostnað af málinu. Þórunn var sýknuð af ákærunni. Málinu var áfrýjað til Landsyfirréttar og síðan Hæstaréttar og refsing Andrésar loks milduð um eitt ár. Lítið er vitað um Andrés eftir þetta en hann lifði tugthúsvistina af. Árið 1901 var hann orðinn vinnu- maður á bænum Þórustöðum, austan við Eyjafjarðará. Ekki er vit- að hvenær hann lést. Ævi Þórunnar tók betri beygju. Hún flutti að Grímsstöðum í Mý- vatnssveit árið 1894 og gerðist þar húsfreyja. Hún giftist Sigfinni Sig- urjónssyni en hann var bróðir Guð- mundar Hofdal, glímukappans og stríðshetjunnar, sem var eini Ís- lendingurinn til að vera dæmdur fyrir samkynhneigð. Eignuðust Þórunn og Sigfinnur saman tvö börn, Kristjönu og Jóhannes, sem var merkur listamaður, náttúru- lífsunnandi og fréttaritari Morgun- blaðsins. Þórunn lést tæplega ní- ræð að aldri árið 1962. Blóðskömm glæpur gegn guði Mál feðginanna Andrésar og Þór- unnar er borðleggjandi. Barn kemur undir, móðirin feðrar það föður sínum og heldur fram nauðgun. Faðirinn viðurkenn- ir ekki aðeins nauðgunina held- ur tvær til viðbótar. Engu að síður var Þórunn ákærð fyrir sifjaspell og þrælað í gegnum öll dómstig- in, allt til Hæstaréttar í Danmörku. Henni voru ekki dæmdar nein- ar bætur heldur var hún „sýkn“ af ákærunni og átti auðsjáanlega að standa í þakkarskuld fyrir það. Þetta mál verður að setja í sögu- legt samhengi því að ekki voru nema rúmlega 20 ár síðan Stóri- dómur var afnuminn úr lögum. Það gerðist árið 1870 þó að fram- kvæmd hans hefði reyndar mild- ast töluvert á 18. öld og fyrri hluta 19. aldar. Hugarfarið var þó það sama og blóðskömm sterklega for- boðin í trúarlegum skilningi. Blóð- skömm var glæpur gegn guði og á ábyrgð beggja aðila. Nauðgun gat vissulega orðið til þess að refsing væri milduð og lífi kvenna þyrmt. En hana var erfitt að sanna og jafn- vel þótt hún væri sönnuð gátu þær misst lífið. Stóridómur var lögfestur árið 1565 og á þeim tíma voru 50 Ís- lendingar teknir af lífi fyrir sifja- spell. Jafnmargar konur og karl- ar, 25. Karlar voru hálshöggnir, stundum með bitlausri öxi eins og dæmin sanna, og konum var drekkt í köldum hyl. Allt var þetta framkvæmt á þingum fyrir framan fjölda fólks og enginn mátti und- an líta. Það var vegna þessara harka- legu refsinga sem fjöldi barna var borinn út, dulsmál. Á þeim tíma sem Þórunn ól sitt barn voru duls- mál enn algeng. Á árunum 1874 til 1913 komu upp að minnsta kosti sex dulsmál á Íslandi, sum þeirra eftir sifjaspell. Þetta hefði hæglega getað orðið raunin í máli Þórunnar því að ef Andrés hefði ekki viður- kennt brot sitt hefði hún einnig verið dæmd. Orð gegn orði. n Ákærð fyrir sifjaspell þó að faðirinn hefði viðurkennt nauðgaun n Til Hæstaréttar í Danmörku n Stóridómur orsök dulsmála Saurbær í Eyjafirði Jörðin þar sem Þórunn var í vist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.