Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 49
SAKAMÁL 4926. apríl 2019
skokka fór hún iðulega þangað,
sannfærð um að nauðgarinn léti
sjá sig.
Meira en ári síðar, sunnudaginn
13. apríl, 2003, uppskar Samira
ávöxt staðfestu sinnar; þarna sat
hann á vespunni sinni, reykjandi
Chesterfield. Samira komst svo
nálægt honum að allur efi fauk út
í veður og vind. Þetta var hann og
enginn annar.
Samiru tókst að fá far heim til
sín þar sem hún hringdi á lög-
regluna. Patrick var á sama stað
þegar lögreglan kom. Hann var
með Chesterfield-sígarettu á milli
varanna og nokkrir stubbar lágu
við fætur hans.
Lítill vafi
Fljótlega lá ljóst fyrir að maðurinn,
Patrick Ghiliazza, hafði nauðgað
Samiru, en hafði hann líka ráð-
ist á hinar ungu konurnar og myrt
Jennifer Dion.
Í öllum tilvikum hafði sömu að-
ferð verið beitt, gerandi var á grárri
vespu og reykti Chesterfield. Til-
viljanir eiga sér stað, en litlum vafa
virtist undirorpið að Patrick væri
sekur um allt áður nefnt.
Ein stúlknanna rifjaði upp
þegar hún lenti í klónum á Pat-
rick, 13. ágúst 2002. Patrick braut á
henni öxlina í ofsanum. „Þú fékkst
mig til að skilja raunverulega
merkingu orðsins hatur,“ sagði
stúlkan við réttarhöldin.
Sagðist ekkert muna
„Mér þykir það leitt,“ stamaði Pat-
rick upp. „Ég hef reynt að muna
hvað gerðist, en ekkert rifjast upp
fyrir mér,“ bætti hann við.
Hið sama var uppi á teningn-
um hjá Patrick þegar hann heyrði
frásagnir annarra. Hann rámaði
til dæmis ekkert í tvær árásir sama
daginn, 7. nóvember 2002, fórnar-
lömb hans þá voru 14 og 15 ára.
Viku síðar réðst Patrick á tíu
ára stúlku; nei, hann mundi ekk-
ert eftir því. Hálfum mánuði síðar
myrti hann Jennifer Dion og fjór-
um mánuðum síðar réðst hann á
tólf ára stúlku.
„Ég man ekki eftir neinu af
þessu,“ var viðkvæðið hjá Patrick.
Fullkomin gleymni
Hvað Jennifer Dion varðaði þá
sagði Patrick að hann hefði reykt
sígarettu, Chesterfield, til að
byggja upp hugrekki til að nauðga
henni. En einn rannsóknarlög-
reglumaður sagði: „Hann nauðg-
aði henni tvisvar og ég tel að hann
hafi fengið sér að reykja á milli
nauðgana.“
Dómsformaðurinn spurði Pat-
rick: „Hefurðu fleiri nauðganir á
samviskunni, fleiri morð?“ og Pat-
rick svaraði: „Það er mögulegt, en
ég man það ekki.“
Málalyktir urðu þær að Patrick
Ghiliazza fékk lífstíðardóm með
möguleika á reynslulausn eftir 30
ár. n
en Ursinus, úr berklum var í upphafi talið. Síðar kom í ljós að Sophie hafði keypt slatta af
arseniki.
Þann 24. janúar, 1801, dó frænka Sophie, Christiane Witte, eftir skamma sjúkralegu. Hún hafði
arfleitt Sophie að þokkalega vænum auðæfum. Sophie hafði skömmu áður keypt arsenik.
Undir lok febrúar árið 1803, veiktist þjónn Sophie, Benjamin Klein, heiftarlega eftir að hafa
rifist við hana. Á meðal þess sem Sophie gaf Benjamin var súpa sem gerði honum ekki gott.
Hann fylltist grunsemdum og lét í laumi kanna plómur sem hún færði honum. Þær reyndust
innihalda arsenik.
Réttarhöldum yfir Sophie lauk 12. september árið 1803. Hún var sakfelld fyrir að hafa myrt
frænku sína og reynt að myrða þjón sinn og fékk lífstíðardóm. Hún var náðuð eftir 30 ár og
endurheimti sess sinn meðal heldri borgara í Glatz. Sophie dó árið 1836.
aðrir útsölustaðir
Epal - Laugavegi 70
EPAL - Harpa
Airport fashion - Leifsstöð
Reykjavik Raincoats
LAUGAVEGUR 62, 101 RVK
www.reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com
GHILIAZZA: GLEYMNI GLÆPAMAÐURINN
n Nauðgaði mörgum stúlkum en sagðist ekkert muna n Eitt fórnarlambið einsetti sér að hafa hendur í hári hans n Staðfestan bar ávöxt
„Ég meiði þig
ekkert. Ég mun
bara gera þér gott.
„Þú fékkst mig
til að skilja
raunverulega merk-
ingu orðsins hatur
Jennifer Dion Sú eina sem Ghiliazza myrti.