Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Síða 50
50 FÓKUS - VIÐTAL 26. apríl 2019
H
eiðrún Edda Ingþórsdóttir
er tuttugu og átta ára
gömul, tveggja dætra
móðir sem býr á Dalvík
ásamt Veigari, manni sínum.
Eldri dóttir Heiðrúnar, Tanja Lind,
fæddist árið 2016 eftir eðlilega
meðgöngu og að fæðingarorlofi
loknu fór Heiðrún að starfa á Heil-
brigðisstofnun Norðurlands en á
þeim tíma bjó hún á Blönduósi.
Fljótlega flutti hún til Dalvíkur og
hóf þá störf í leikskóla þar. Lífið lék
við fjölskylduna og í byrjun júní
árið 2017 komst Heiðrún að því að
hún var aftur orðin þunguð.
„Í endann á júní komumst við
að því að um tvíbura var að ræða,
sem var mikið áfall fyrir okkur
en ég náði fljótt að jafna mig eft-
ir fréttirnar og varð tilhlökkunin
mikil hjá okkur öllum. Þegar ég
fór svo í sónar um miðjan ágúst
kom í ljós að mikill bjúgur og vökvi
var til staðar hjá öðrum tvíburan-
um og við vorum send frá Akur-
eyri til Reykjavíkur í skoðun,“ segir
Heiðrún í viðtali við DV.
Ekkert sem gat undirbúið þau
fyrir komandi erfiðleika
Við tóku virkilega erfiðir tímar hjá
fjölskyldunni sem ekkert þeirra
gat undirbúið sig fyrir.
„Það voru þung skref fyrir okk-
ur að fara til Reykjavíkur og þegar
þangað var komið kom í ljós að
eitthvað mikið væri að. Við tókum
þá ákvörðun í samráði við lækna
að halda meðgöngunni áfram og
sjá hvað myndi verða, þar sem
annar tvíburinn virtist vera heil-
brigður sem reyndist síðan vera
rétt. Þegar ég var gengin tuttugu
og fjórar vikur fann ég fyrir mikl-
um samdráttaverkjum og það
byrjaði að blæða hjá mér. Þarna
vorum við aftur komin norður og
við skoðun á Akureyri kom í ljós
að hjarta annars tvíburans hafði
stoppað. Ég var í kjölfarið send
suður með flugi.“
Heiðrún lá á Kvennadeild
Landspítalans í viku sem hún seg-
ir hafa verið langa og erfiða. Eftir
vikudvöl fór fæðing af stað sem
ekki var hægt að stöðva.
„Það komu tvær stelpur í heim-
inn. Önnur andvana, sem fæddist
eðlilega, en hin kom með bráða-
keisara og var þá 724 grömm og
ég gengin 24 vikur og fimm daga.
Næstu dagar á eftir voru skrítn-
ir. Að þurfa að jarða annað barnið
sitt og vera með hitt á vökudeild,
fárveikt, og vita ekkert hvernig allt
myndi fara.“
Mikil veikindi tóku við
Erfiðleikum Heiðrúnar og Veigars
var langt í frá lokið en í kjöl-
far jarðarfarar dóttur þeirra, Evu
Bjarkar, sem í ljós kom að hafði
Turner litningagalla, tóku við
langir og strangir 113 dagar á
vökudeild Landspítalans með eft-
irlifandi dóttur þeirra, Þórdísi
Helgu.
„Við fengum íbúð hjá Barna-
heill og dvöldum þar á meðan.
Allir voru rifnir úr sinni daglegu
rútínu og fékk eldri stelpan okk-
ar að vera hjá okkur ásamt því að
dvelja með foreldrum mínum.
Það var mjög erfitt að fara að sofa
á kvöldin og vita ekkert hvað tæki
við daginn eftir. Þetta voru 113
dagar í óvissu og tókum við einn
dag fyrir í einu. Ferillinn byrjaði
á því að fósturæðin lokaðist ekki
og þurfti lyfjameðferð við því, síð-
an fékk hún veirusýkingu og í jan-
úar kom stórt högg. Þá fékk hún
ROB (Retinopathy of prematurity)
augnsjúkdóm á háu stigi og þurfti
lyfjameðferð við því. Þórdís Helga
endaði svo sína síðustu daga á
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. Rafrænir innri ferlar
eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
stjórnun á
stóran þátt í góðum
áran ri fyrirtækja.
OneQuality er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneReco ds er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mála
innan fy irtækisins og notendur
geta á einfaldan máta sótt
l sta yr þau mál sem þeir
bera ábyrgð á.
Vilt þú koma
skjalamálunum
í lag?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Records
Mála- og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.one.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057
„Að þurfa að jarða annað barnið
sitt og vera með hitt á vökudeild“
Tvíburar Heiðrúnar fæddust eftir 24 vikna meðgöngu
„Það var mjög erfitt
ð fara að sofa á
kvöldin og vita ekkert
hvað tæki við daginn eftir
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is „Vökudeild er
einn af þeim
stöðum sem verða lík-
lega alltaf í huga okkar
113 dagar í óvissu Fjölskyldan
tók einn dag í einu.