Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Síða 51
FÓKUS - VIÐTAL 5126. apríl 2019
vökudeildinni með því að fá RS
vírusinn.“
Hver dagur tók virkilega á fjöl
skylduna en með aðstoð frá nán
ustu fjölskyldu, vinum, starfsfólki
vökudeildar og prestinum Vig
fúsi komust þau í gegnum þenn
an tíma.
„Það var oft grátið. Ég hefði ekki
geta hugsað mér að vera annars
staðar á öllum þessum 113 dög
um en á vökudeild og við hittum
aldrei neinn lækni eða hjúkrunar
fræðing sem okkur leist ekki á.
Vökudeild er einn af þeim stöðum
sem verða líklega alltaf í huga okk
ar og starfsfólkið líka.“
Vinnur í sjálfri sér
Meðan á dvölinni stóð minnist
Heiðrún þess að hafa óskað þess
heitast að komast heim. Hún hafi
talið það geta bætt úr vanlíðan sinni.
„Núna, þegar ég lít til baka, þá
hlæ ég að því vegna þess að við tóku
líka erfiðir dagar hér heima. Þá tóku
bara við önnur verkefni. Við höfum
verið að vinna með næringarvanda
mál Þórdísar síðan
við komum heim og hún
glímir enn við það. Einnig mætum
við með hana í sjúkraþjálfun einu
sinni í viku þar sem hún er eftir á í
hreyfi og málþroska og hún er alltaf
í ströngu fyrirburaeftirliti á barna
deildinni á Akureyri. Hún byrjaði
svo á leikskóla núna í janúar og við
erum virkilega ánægð með leik
skólann, en Dalvíkur
bær hefur staðið við bakið
á okkur, allt strax frá fyrsta degi, og
hjálpað okkur mikið. Ég hef líka ver
ið að vinna í mínum andlegu mál
um eftir heimkomu og þegar hún
byrjaði á leikskólanum fór ég að
taka mig á í hreyfingu. Ég tók strax
ákvörðun um að hlaupa 10 kíló
metra í Reykjavíkurmaraþoninu
fyrir vökudeild því án hennar væri
Þórdís Helga ekki hér hjá okkur.“
Heiðrún stendur nú í ströngu við
undirbúning fyrir Reykjavíkurmara
þonið og hægt er að heita á hana á
hlaupasíðu Reykjavíkurmaraþons
ins (www.hlaupastyrkur.is) und
ir nafni hennar, Heiðrún Edda Ing
þórsdóttir. n
Led húsnúmer
Falleg húsnúmer í öllum stærðum og gerðum
· Sérsmíðum númer á öll hús og fjölbýli
Best er að panta í gegnum facebooksíðuna okkar: ledhúsnúmer
Einnig hægt að hringa í sími 775 6080
· Ledlýsing sem endist og eyðir litlu rafmagni
· Hægt að fá í lituðu áli eða ryðfríu stáli
· Verið velkomin á facebooksíðu okkar: Led húsnúmer
NÚ ER RÉTTI TÍMINN
TIL AÐ LEITA TILBOÐA
„Að þurfa að jarða annað barnið
sitt og vera með hitt á vökudeild“ „Við skoðun
kom í ljós
að hjarta annars
tvíburans hafði
stoppað
Á vökudeild
Heiðrún með
Þórdísi Helgu,
dóttur sinni.
Dætur Heiðrúnar,
Þórdís og Tanja.
LJÓSMYND: KRISSY