Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Page 56
26. apríl 2019
17. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Þeir gætu verið
tvíburar ... og
svona líka
brosmildir!
522 4600
www.krokur.net
Krókur hf. er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta
í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
• 24 stunda þjónustu allt árið um kring
• björgunarþjónustu og aðstoð ef bílar bila eða flytja þarf þá á verkstæði
Taktu Krók á leiðarenda
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
á þinni leið
Tvífarar:
Píanistinn
og ritstjórinn
Ó
hætt er að segja að mikill
svipur sé með tónlistar
manninum Jóni Ólafs
syni og ritstjóranum fyrr
verandi, Styrmi Gunnarssyni.
Þó að vissulega sé hinn síðar
nefndi töluvert eldri.
Jón hefur glatt Íslendinga
með hljómsveitinni Ný dönsk í
hartnær þrjátíu ár en þar áður
hafði hann getið sér frægðar
með Bítlavinafélaginu. Jón hef
ur einnig gefið út sólóplötur og
stýrt hinum geysivinsælu þátt
um Af fingrum fram sem sýndir
eru á RÚV.
Styrmir er einn af áhrifa
mestu fjölmiðlamönnum Ís
lands og ritstýrði Morgun
blaðinu í 36 ár. Styrmir hefur
verið áberandi í þjóðfélagsum
ræðunni síðan og meðal annars
gefið út bók um bankahrunið.
Hvað er
Pétur „Jesús“
að horfa á?
P
étur Örn „Jesús“ Guð
mundsson, söngvari
með meiru, horfir mikið
á þætti byggða á vísinda
skáldskap og elskar hrollvekjur.
Hvað ert þú að horfa á?
„Ég var að klára þriðju þátta
röð af þáttum sem heita Travel
ers og eru „scifi“þættir sem
fjalla um tímaferðalanga. Ég
er mjög hrifinn af þeim og bíð
spenntur eftir næstu seríu.
Svo er ég að horfa á aðra
seríu af Star Trek Discovery,
sem er besta Star Trek sem ég
hef séð. Ég er voðalega mikið
fyrir vísindaskáldskap eða
hrollvekjur og ef það er ekki
geislabyssa eða varúlfur í kvik
mynd þá hef ég ekki áhuga.
Djók. Ég horfi á allt, en helst
geimverur, plánetusprengingar
og vélmennavarúlfa. Ég er líka
að horfa á Attack on Titan sem
eru frábærir „anime“þættir en
ég er mikill „anime“kall.“
Slysagildra í Laugardalnum
G
arðar Sveinbjörn Ottesen
lenti þann 19. apríl í
alvarlegu slysi á bíla planinu
við tjaldsvæðið í Laugardal.
Hann er verkfræðingur sem varð
heimilislaus eftir slys og dvelur þar
ásamt ellefu öðrum. Garðar féll um
steina sem nýlega var komið þar
fyrir og braut úlnlið og rifbein.
Steinunum var komið fyrir á
planinu til þess að auka öryggi.
Garðar og fleiri töldu steinana vera
slysagildru, sérstaklega um kvöld
og nætur þegar planið er óupplýst.
Hafði hann haft samband við ÍTR
og Farfuglaheimilið á svæðinu og
varaði við þeim.
Garðar starfar í félaga samtökum
sem kallast Kærleikssamtökin, en
þau hafa látið sig málefni heimilis
lausra varða. Í samtali við DV segir
hann:
„Ég var að ganga frá bílnum mín
um að næsta bíl til að heilsa gestum
sem voru að koma. Ég er á hækjum
og þurfti að taka tvö skref aftur á bak
þegar bíl dyrnar opnuðust. Þá féll ég
og lenti á síðunni og hendinni. Það
er um metri á milli steinanna og ég
var í raun mjög heppinn að lenda
ekki með höfuðið á næsta steini.“
Garðar segir að steinarnir sjáist
illa, þeir séu líkir planinu sjálfu á lit
inn.
„Hér er fullorðið fólk og krakkar
á hjólum að stytta sér leið í gegn.
Það er stórhætta af þessu. Það eru
líka ferðamenn hér á stórum og
dýrum húsbílum. Þeir eru að bakka
á steinana af því að þeir sjá þá ekki.
En hvorki borgin né forsvarsmenn
tjald svæðisins bregðast við þessu.
Þetta slys gerðist vegna vanrækslu,
þetta hefði aldrei þurft að gerast.
Það þarf alltaf einhver að slasast
áður en eitthvað gerist.“
Ekki náðist í ÍTR fyrir vinnslu
þessarar fréttar. Nánar má lesa um
málið á dv.is.