Skessuhorn - 29.04.1999, Qupperneq 5
úniðsunv/^
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
5
S j ó n l a r i m i b F 1 o s a
Kúkur á priki
Skoðanakannanir - skoðanakannanir - skoð-
anakannanir.
Nú kemst handboltinn varla að fyrir skoðana-
könnunum.
Það hefur lengi verið útbreidd skoðun að ekk-
ert sé jafn marklaust í lífinu og tilverunni eins og
skoðanir.
Þarf svo sem engan heimspeking til að sjá
það.
Skoðanir eru, þegar best lætur, einhvers kon-
ar fálmkennd viðbrögð mannskepnunnar við að-
steðjandi síbreytileik umhverfisins og snar þáttur
í viðleitni hvers og eins til að lifa af.
Þess vegna hafa menn eina skoðun í dag,
aðra á morgun og algengt að menn skipti um
skoðun á hraða Ijóssins ef svo ber undir þegar
ein skoðun getur komið sér betur en önnur.
Síðan er það sérstök íþrótt að reyna að
sannfæra sjálfan sig og alla aðra um að skoðan-
ir manns séu hugsjónir eða jafnvel guðlegur inn-
blástur, sem ekkert hafi með persónulegt hag-
nýti að gera, heldur sé hver skoðun knúin fram
af göfuglyndi manngæsku og sannleiksást.
Þetta á ekki hvað síst við um stjórnmálaskoð-
anir.
Þegar ég var ungur svona að þreifa fyrir mér
um það hvaða skoðanir væru geðþekkar og
hverjar ógeðfelldar óraði mig ekki fyrir því hve
langt ég mundi ná í lífinu. Já hvursu óralangt.
í æsku fylltist ég depurð við þá tilhugsun að
sitja uppi með það til æviloka að verða dag-
launamaður við þröngan kost. Ég gekk auðvitað
til liðs við kommana í von um betri kjör og bætt-
an hag.
Nú er búið að leggja kommana niður og eftir
sitjum við „hugsjónamennirnir" einsog kúkur á
priki.
Kratar gerðust kratar til að fá djobb hjá Trygg-
ingastofnuninni en nú er búið að leggja Alþýðu-
flokkinn niður og við það minnkar náttúrlega
kúkurinn á „hugsjónaprikinu11.
Þeir sem í æsku ætluðu sér frama og vegtyll-
ur hjá Sambandi ísl. Samvinnufélaga fylltust
ástríðufullri löngun til að bjarga heiminum og
gerðust framsóknarmenn og samvinnumenn af
hugsjón.
Nú er búið að afleggja Sambandið og eftir
sitja stórir hópar af framsóknarmönnum - einsog
kúkar á priki.
Þeir sem bundu vonir við að komast í álnir og
safna auði og völdum með því að láta peninga
og annað fólk vinna fyrir sig, fylltust eldheitum
guðmóði frjálshyggjunnar, störtuðu sjoppu,
fengu kvóta og urðu sjálfstæðismenn af hug-
sjón. Hjá þeim var sjálfsbjargarviðleitnin jafnan í
lagi og þess vegna verða þeir áreiðanlega aldrei
einsog kúkur á priki.
Hugsjónir, hugsjónir, hugsjónir.
Allt þetta góða fólk heldur að það hafi haft
skoðun sem sprottin sé af hugsjón, en í raun og
veru er þetta ekkert annað en aðferð apanna í
frumskóginum til að nálgast hneturnar.
Skoðanir hefur mannskepnan eftir því hvern-
ig vindurinn blæs og stundum kallað að aka
seglum eftir vindi. En eins og allir vita er nú veð-
urfarið í lífinu stundum æði svipult.
Þessa dagana er forgangsverkefni að kanna
skoðanir.
Það er gert með SKOÐANAKÖNNUNUM.
Stórar og merkilegar vísindastofnanir eru í
því og engu öðru dægrin löng en að hringja í
Pétur og Pál og Siggu og Guddu til að fá skoð-
anir þessa góða fólks á landsins gagni og nauð-
synjum, allt frá tilverurétti sauðkindarinnar og
fegurðardrottninga uppí spurningar um kjaramál
og vexti.
Og auðvitað er það eins og við manninn mælt
að skoðanir fólksins í landinu einskorðast við
það sem kallað er eiginhagsmunir.
í hundrað manna úrtaki má reikna með að
tveir til þrír standi með sauðkindinni, eða þeir
sem að einhverju leyti byggja afkomu sína á
henni. Hinir hata þennan unaðslega ferfætling
sem ekkert annað hefur unnið sér til óhelgi en
að bíta gras.
Fagrar konur hafa þá skoðun að fegurðar-
samkeppnir stuðli að þjóðarheill, en Ijótar konur
álíta að fegurðarsamkeppnir séu smánarblettur
á þjóðinni. Að ekki sé nú talað um þá staðreynd
að þeir sem eiga bankabók hafa aðra skoðun á
vaxtastefnu en þeir sem skulda.
Er það ekki alveg furðulegt að nokkur skuli
láta sér detta í hug að skoðanakannanir geti ver-
ið vísbending um það hvað sé rétt og rangt í líf-
inu og tilverunni?
Á undanförnum árum hefur verið sýnt framá
það með skoðanakönnunum að íslenska þjóðin
er trúaðasta og jafnframt vantrúaðasta þjóð í
heimi, sú glaðasta og hryggasta, kvíðnasta og
hugrakkasta, Davíð vinsælastur og jafnframt
óvinsælastur o.s.frv...
Marktækasta skoðun í skoðanakönnunum,
sem nú tröllríða öllu, semsagt skoðanakönnun-
um um kjörfylgi er auðvitað skoðun þeirra sem
ekki hafa skoðun, enda eru þeir oftar en hitt fjöl-
mennasti hópurinn.
Mér bara svona dettur þetta í hug af því að
núna eru skoðanakannanir, eins og sagt er, í al-
gleymingi.
Flosi Ólafsson
Bergi
Kartöflu
æktendtd
Mjög gott útsæði,
Gullauga o§
rauðar.
'elinaamenrj
MötuneyHj
Veisluhaldararl
Kartöfluskífur til
gratineringar oj
afhýddar kartöflur
afgreitt í 7 kg. fötum.
>' Kartöflur í 25. kg. sekkjura.i
mmwm®
1 - Meiasveit - 301 Akranesl
Símar: $ 8890,896 999«, ‘
«98720 05897 9025
Hárhús Kötlu.
Mikiö úrval affrábærum
S j<‘ V \
■
hársrtyrtivörum
Fáiö faglega ráöleggirtgu
Stillholti 14 - Sími 431 3320
SKOR" SKOR- SKOR
á börn - dömur °q herra
mikið urval ar domueaudolum.
JÖKUMVEL
Á MÓTI YKKTJR
KJRKJUBRAU74-6
L
Hdtíðarhöldin 1. maí 1999
fara fram á Hótel Borgarnesi og
hefjast kl. 14.00.
Húsið opnað kl. 13.30.
Nemendur úr Tónlistarskóla Borgarfjarðar
leikafrákl. 13.40.
Stjórnandi: Olafur Flosason.
Dagskrá:
Samkoman sett:
Sólrún Konrdðsdóttir, form. 1. maf-nefndar.
Hátíðarræða:
Þráinn Hallgrímsson, skrifstofustjóri Eflingar.
Kórsöngur:
Barnakór Borgarness
Stjónandi Birna Þorsteinsdóttir
Einsöngur:
Björg K. Jónsdóttir.
Undirleikari Zsuzanna Budai.
Atriði frá nemendafélagi Grunnskóla Borgarness.
Upplestur:
Ferðasaga.
Flytjandi Marfa Jóna Einarsdóttir
Kórsöngur:
Samkór Mýramanna.
Stjórnandi Jónína Arnardóttir
Undirleikari. Zsuzanna Budai.
Avörp:
Elfn Björg Magnúsdóttir
Magnús Jósepsson
Kvikmyndasýningar fyrir börn í
Félagsmiðstöðinni Oðali
kl. 13 og 15.
Kaffisala á hótelinu að loknum hátíðarhöldum.
Minnumst verkalýðsdagsins.
Fjölmennum á staðinn.
Góða skemmtun.
1. maf - nefnd.