Skessuhorn - 29.04.1999, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
an£99UtU/^
Jóhannes Ragnarsson formaöur Verkalýðsfélags Snœfellsbœjar.
Frá Verkalýðsfélagi Snæfellsbæjar
Stjómin endurkjörin
Jakob Hallgeirsson er genginn til liðs við Skallagrím á ný.
Skallagrímur fær liðsauka
Jakob kominn aftur
Aðalfundur Vlf. Snæfellsbæjar
var haldinn 20. apríl sl. Stjóm fé-
lagsins var öll endurkjörin á
fundinum til næstu tveggja ára.
Formaður er Jóhannes Ragnars-
son. Samkvæmt ársreikningum fyr-
ir árið 1998 var afkoma sjóða sem
hér segir:
Félagssjóður: 888.262,00 kr.
hagnaður, Sjúkrasjóður:
485.022,00 kr. hagnaður Orlofs-
sjóður: 150.651,00 kr tap Allir
sjóðir: 1.231.497,00 kr hagnaður.
Á fundinum voru samþykktar
reglugerðir fyrir Sjúkra- og styrkt-
arsjóð, Fræðslusjóð, Vinnudeilu-
sjóð og Orlofssjóð.
Einnig voru samþykktar breyt-
ingar á lögum félagsins varðandi
kosningar í trúnaðarstöður félags-
ins. I hinum nýju ákvæðum segir
m.a. „I nóvember það ár sem
stjórnarkjör fer ekki fram (stjórnar-
kjör fer fram á tveggja ára fresti)
skal á íúndi í trúnaðarmannaráði
kjósa kjörnefnd fyrir félagið."
Kjörnefhd gerir tillögur um fé-
laga í allar trúnaðarstöður fyrir
næsta kjörtímabil. Kjörnefnd skal
hafa lokið störfum fyrir 31. jan.
Trúnaðarmannaráð gengur end-
anlega frá tillögunum og leggur
síðan fram lista til stjómarkjörs eigi
síðar en 15. feb. og auglýsir jafh-
framt eftir breytingartillögum.
Hægt er að leggja ffam breytingar-
tillögur um félaga í einstakar trún-
aðarstöður og einnig um nýja
heildartillögu.
Komi fram breytingartillögur
skal kosið um þær samkvæmt
ákvæðum reglugerðar ASI um alls-
herjaratkvæðagreiðslur.
EMK
Dómarar
þinga
Knattspyrnudómarar landsins
koma saman eina helgi á hverju
vori til að stilla saman strengi sína
og bera saman rauðu spjöldin fyrir
komandi keppnistímabil. Síðustu
þrjú vor hafa þeir hist í Borgarnesi
enda er aðstaðan þar með því besta
sem gerist. Ljósmyndari Skessu-
horns leit inn í íþróttahúsið í
Borgarnesi síðasdiðinn laugardag
en þar tókust dómararnir á í inn-
anhússknattpyrnu og þar var venju
fremur vægt tekið á brotunum.
Þessi var nýkominn úr sundi og
leit við í salnum til að fygljast með
tæklingunum.
Mynd: G.E.
Bakvörðurinn eitilharði Jakob
Hallgeirsson úr Borgamesi hef-
ur snúið aftur á heimaslóðir og
mun leika með Skallagrími í 1.
deildinni í sumar. Jakob gekk til
liðs við Víking í Reykjavík eftir
síðasta keppnistímabil en mun
ekki hafa líkað vistin hjá þeim
sem skyldi og ákvað að snúa aft-
ur til sinna gömlu félaga.
Fyrir skömmu fengu Skallarnir
einnig góðan liðstyrk af Skaganum
er framherjinn Ivar Orn Benedikts-
son gekk frá félagaskiptum. „Þessir
tveir koma til með að styrkja liðið
hjá okkur mikið. Jakob er með
sterkari bakvörðum landsins og
Ivar Orn lofar góðu. Þetta er góður
drengur og léttur á sér,“ sagði
Jakob Skúlason formaður knatt-
spyrnudeildar Skallagríms.
Að sögn Jakobs eru Skagamenn-
irnir Ingi Steinn Erlendsson, Grét-
ar Árnason og Sveinbjörn
Hlöðversson til reynslu í herbúð-
um Skallagríms. Einnig er Sigmar
Scheving kominn til félagsins ffá
Víði í Garði. Þá sagði Jakob að fé-
lagið hefði áhuga á að fá þá Jón Þór
Hauksson og Frey Bjarnason aftur í
Borgarnes en þeir hafa verið í
hópnum hjá Skaganum í vor og það
á eftir að koma í ljós hvort þeir
verða með þeim gulu í sumar.
„Við erum að huga að fleiri Ieik-
mönnum en það sem okkur vantar
er fyrst og ffemst sterkur miðju-
maður. Við sjáum hvað gerist á
næstu dögum því það hlýtur að fara
að koma að rýmingarsölunum hjá
stóru félögunum,“ sagði Jakob.
G.E.
Auglýsing um framboðslista
I Vesturlandskjördæmi í alþingiskosningum 8. maí 1999.
B-listi
F ramsóknarflokks:
1. Ingibjörg Pálmadóttir, Heilbrigðis-
ráðherra, Vesturgötu 32A, Akranesi.
2. Magnús Stefánsson, Alþingismaður,
Engihlíð 8, Ólafsvík.
3. Þorvaldur T. Jónsson, bóndi, Hjarð-
arholti, Borgarbyggð.
4. Sigrún Ólafsdóttir, bóndi, Hallkels-
staðahlíð, Kolbeinsstaðarhreppi.
5. Sturlaugur Eyjólfsson, f.v. bóndi,
Brunná, Dalasýslu.
6. Ragna ívarsdóttir, húsmóðir, Vatns-
holti, Ólafsvík.
7. Guðni Tryggvason, verslunarmaður,
Espigrund 2, Akranesi.
8. Hilmar Hallvarðsson, rafverktaki, 1.
Nestúni 5, Stykkishólmi.
9. Elísabet Svansdóttir, mjólkurfræð-
ingur, Miðbraut 1, Búðardal. 2.
10. Bjami Arason, f.v. ráðunautur,
Þórólfsgötu 15, Borgamesi. 3.
D-listi 4
Sjálfstæðisflokks:
1. Sturla Böðvarsson, Alþingismaður,
Ásklifi 20, Stykkishólmi.
2. Guðjón Guðmundsson, Alþingis-
maður, Jörundarholti 31, Akranesi.
3. Helga Halldórsdóttir, skrifstofumað-
ur, Hamrakletti 4, Borgamesi.
4. Skjöldur Orri Skjaldarson, bóndi,
Hamraendum, Dalasýslu.
Borgarnesi 26. apríl 1999
5. Sigríður Finsen, hagfræðingur,
Hlíðarvegi 8, Gmndarfirði.
6. Hildur Edda Þórarinsdóttir, dýra-
. læknir, Giljahlíð, Borgarfjarðarsveit.
7. Sigurður Valur Sigurðsson, nemi,
Bjarkargmnd 30, Akranesi.
8. Ólafur Magnús Helgason, tækni-
fræðingur, Eystra Súlunesi 1, Borg-
arfirði.
9. Karen Lind Ólafsdóttir, danskennari,
Jömndarholti 6, Akranesi.
10. Sigurður Kristjónsson, fv. útgerðar-
maður, Munaðarhóli 10, Snæfellsbæ.
F-listi
Frjálslynda flokksins:
Sigurður R. Þórðarson, matvæla-
verkfræðingur, Glaðheimar 8,
Reykjavík.
Kjartan Eggertsson, skólastjóri,
Vallholti 4, Ólafsvík.
Pétur Gissurarson, skipstjóri,
Hjallabraut 15, Þorlákshöfn.
Eðvarð Ámason, yfirlögregluþjónn,
Reitarvegi 4a, Stykkishólmi.
Bergur Garðarsson, útgerðarmaður,
Fagurhólstúni 2, Gmndarfirði.
Helgi Helgason, bóndi, Þursstöðum,
Borgarbyggð.
Marteinn Karlsson, útgerðarmaður,
Engihlíð 10, Ólafsvík.
Sævar Berg Gíslason, stýrimaður,
Silfurgötu 40, Stykkishólmi.
Sigríður B. Ásgeirsdóttir, húsmóðir,
Grenigmnd 12, Akranesi.
10. Jón Sigurðsson, f.v. framkvæmda-
stjóri, Miðleiti 12, Reykjavík.
H-listi
Húmanistaflokksins:
1. Sigmar B. Hilmarsson, verkamaður,
Skagasel 9, Reykjavík.
2. Áslaug Ólafína Harðardóttir,
kennari, Norðurás 9 Reykjavík.
3. Sveinn Víkingur Þórarinsson,
kennari, Ulfsstöðum 2, Borgarfjarð-
arsveit.
4. Kolbrún Ósk Hrafnsdóttir, háskóla-
nemi, Langahlíð 9, Reykjavík.
5. Þorgrímur Einar Guðbjartsson,
bóndi, Erpsstöðum, Dalasýslu.
S-listi
Samfylkingar innar:
1. Jóhann Ársælsson, skipasmiður,
Vesturgötu 59A, Akranesi.
2. Gísli S. Einarsson, Alþingismaður,
Esjubraut 27, Akranesi.
3. Dóra Líndal Hjartardóttir,
tónmenntakennari, V-Leirárgörðum,
Borgarfirði.
4. Hólmfríður Sveinsdóttir, deildar-
stjóri, Holtsgötu 25, Reykjavík.
5. Eggert I. Herbertsson, rekstrarfræði-
nemi, Ennisbraut 4, Ólafsvík.
6. Kolbrún Reynisdótth, húsmóðir,
Sæbóli 46, Gmndarfirði.
7. Erling Garðar Jónasson, umdæmis-
stj. Rarik, Ásklifi 15, Stykkishólmi.
8. Guðrún Konný Pálmadóttir, hús-
móðir, Lækjarhvammi 9, Búðardal.
9. Eiríkur Jónsson, laganemi,
Vesturgötu 160, Akranesi.
10. Klara Bragadóttir, sálfræðingur,
Staðarstað, Snæfellsnesi.
U-Iisti
Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs:
1. Halldór Brynjúlfsson, deildarstjóri,
Böðvarsgötu 6, Borgamesi.
2. Hildur Traustadóttir, landbúnaðar-
starfsmaður, Brekku, Borgarfjarðar-
sveit.
3. Ragnar Elbergsson, verkamaður,
Gmndargötu 23, Gmndarfirði.
4. Ólöf Húnfjörð Samúélsdóttir, náms-
ráðgjafi, Akurgerði 8, Akranesi.
5. Kristinn Jón Friðþjófsson,
útgerðarmaður, Háarifi 5, Rifi.
6. Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
nemi, Brúarlandi, Borgarbyggð.
7. Guðrún Katrín Jóhannesdóttir, nemi,
Hábrekku 18, Ólafsvík.
8. Bima Kristín Lámsdóttir,
safnvörður, Bmnná, Dalasýslu.
9. Bjöm Gunnarsson, svæfingalæknh,
Brekkubraut 16, Akranesi.
10. Einar Valdimar Ólafsson, bóndi,
Lambeyrum, Dalabyggð.
Yfirkjörstjórn Vesturlandskjördœmis
Gísli Kjartansson form., Guðjón Ingvi Stefánsson,
Ingi Ingimundarson, Páll Guðbjartsson, Guðný Arsœlsdóttir.